Deila á Facebook
« X Factor - Er nú ekki komið nóg? | Aðalsíða | Laugardagur »

Föstudagur
Skrifað laugard. 16. september 2006 - 22:43
athugasemdir skrifaðar - toppur / botn
Jæja, það var skellt sér á skrallið síðustu nótt. Það var ágætt, þó að drama hafi einkennt kvöldið frekar mikið. En það bara gengur og gerist, ekki satt?

Ég byrjaði að taka mig saman svona í kringum 9, fór í sturtu og svona. Svo kemur Grétar á meðan ég var í sturtu, en ég svara ekki, þannig hann labbar hringinn í kringum húsið og talar við mig í gegnum gluggann á meðan ég var í sturtu. Hehe, það var frekar fyndið. Gummi hafði þá sótt hann og Jökul og þeir ætluðu að sækja mig, en ég var bara ekki tilbúinn. Ég sagði þeim bara að fara og að ég myndi redda mér til þeirra.

Ég kláraði bara að gera mig kláran, hringdi svo í Kamil og hann kom og sótti mig. Takk fyrir það, Kamil. Hann skutlaði mér svo bara til Gumma, þar sem partýið var. Þegar við komum þangað ætlaði hann bara heim að skila bílnum og myndi svo koma aftur. Ég rölti bara inn og heilsaði fólkinu. Þarna voru: Herdís, Helgi, Jökull, Grétar, Steini og auðvitað Gummi. Ég settist bara niður þarna á milli Jökuls og Grétars. Við fórum bara að syngja og eitthvað, eins og við gerum í öllum partýum.

Stuttu seinna komu einhverjir vinir hans Steina. Þeir voru held ég fjórir og ég man ekkert hvað þeir heita, en þeir voru fínir. Svo spurði ég Gumma hvort Inga vinkona mín og vinkona hennar mættu koma og auðvitað leyfði hann þeim að koma. En svo gátu þær ekki reddað sér til okkar, þannig við ætluðum bara að hittast niðri í bæ.

Þetta var fínt kvöld heima hjá Gumma, en það sem kom mér mest á óvart þarna heima hjá Gumma var það að Helgi gat tekið heilan Litla Jón (1L bjór) í trekt á 7,31 sekúndu! Ég hef aldrei séð neinn þamba bjór svona hratt. Þetta var skuggalegt og vil ég óska Helga innilega til hamingju með þennan áfanga í lífinu.

Þessa mynd tókum við heima hjá Gumma. Við ákváðum að halda allir á Jökli. Þetta er snilldar mynd og allir geðveikt hressir, eins og sést á myndinni


Svo seinna um kvöldið kom Kamil. Hann kom víst með Óla black, þannig við báðum Óla um að skutla okkur niður í bæ. Hann var auðvitað til í það, en Jökull var ekki orðinn nógu fullur til að fara niður í bæ, þannig hann fékk Óla bara til að bíða inni á meðan hann drakk meira. Helgi vildi endilega drífa sig niður í bæ, þar sem Halli var í einhverju veseni og langaði að lemja einhverja gaura. Helga langaði svo að sjá það, þar sem Halli er með svarta beltið (2. dan) í Tae Kwon Do. Jökull var samt alveg heillengi að klára áfengið sitt, en svo kom að því að honum tókst að klára það og við drulluðum okkur niður í bæ.

Hvað er að fólki og að virða ekki Shotgun reglurnar. Ég kallaði "shotgun" en samt settist Kamil fram í. Er hann þá ekki réttdræpur, skv. reglum leiksins?

En allavega, eftir að við komum niður í bæ var bara rölt á Sólon. Grétar var í skottinu, þar sem við vorum svo margir, þannig það var auðvitað byrjað á því að opna fyrir honum. Svo röltum við bara á Sólon. Helgi kom svo að mér og sagði: "Hvað er að þér? Það voru gellur þarna og þú labbaðir bara fram hjá þeim!". Hehehe, þannig við þurftum auðvitað að fara aftur að gellunum og heilsa þeim.

En svo kom að svolitlu fyndnu. Við vorum bara labbandi þarna þegar ein stelpa byrjar að hlæja geðveikt hátt, ég hlæ þá að henni. Þá kemur hún upp að mér og segir: "Hættu að gera grín að hlátrinum mínum!". Ég fór þá bara að hlæja ennþá meira, en svo ætlaði hún að sparka í og lemja mig. Helgi segir þá: "Ert þú ekki stelpan sem var að reyna við Rikka G (á FM957) en hann vildi þig ekki?", og þá trompast hún og reynir að drepa Helga. Hleypur á eftir honum öskrandi og reynir að sparka og lemja hann með veskinu sínu. Vinkonur hennar hjálpuðu henni auðvitað. Þetta var bara fyndið!

Við héldum bara áfram að rölta á Sólon, og þar hittum við Halla. Hann var alltaf að mana Helga upp í að spyrja einhverja gamla konu þarna hvort henni hefði líkað við Magna, og ef hún svaraði, sagði hann: "Hahaha, lessan þín!". Vá hvað það eru þroskaðir einstaklingar í þessum vinahóp. Svo kom Halli til mín og sagði: "5000 ef þú snertir brjóstið á henni!". Ég gerði það náttúrulega ekki, þar sem ég læt ekki mana mig upp í svona vitleysu. En Halli er samt snillingur og er synd að hann hafi farið heim svona snemma í gær, en svona er að vera í bandi. Við þekkjum þetta allir, strákar, og erum fegnir að vera lausir úr böndunum okkar.

Við Helgi hittum Geir Ólafs fyrir framan Sólon og urðum við auðvitað að smella mynd af okkur með honum


En svo fórum við bara inn á Sólon. Það var fínt þar. Karen og Eygló voru að vinna. Ég pantaði drykk hjá Eygló, en þar sem ég var svona hífaður, ákvað ég bara að fá mér HREINT kók. Það var geðveikt gott, enda er ég kókisti. En kvöldið er í hálfgerðri móðu. Ég man að ég tók nokkra snúninga með Eygló á dansgólfinu. Það var geðveikt gaman og vil ég þakka Eygló kærlega fyrir dansinn, þar sem hann bjargaði gjörsamlega hluta af kvöldinu.

En þetta kvöld náttúrulega gat ekki án drama, þannig það var svolítið um það. Þetta byrjaði á klóssetinu niðri á Sólon. Kamil fór eitthvað að væla yfir því að bróðir Hreiðars hafi kýlt hann einhverntíman á Essoplaninu. Þetta var náttúrulega ekki bara út af því, heldur líka þessari helvítis loftbyssu, sem Hreiðar á að hafa skilað aldrei til Kamils. En allavega, Helgi fór eitthvað að skipta sér af þessu og þá byrjuðu kítingar á milli hans og Hreiðars. Hreiðar manaði Helga í 1on1 og Helgi sagði bara let's go, en þá hætti Hreiðar við og þorði ekki. Ég sá í augunum á Helga að honum langaði þetta svo, en ég nennti ekki þessu bulli, þannig ég fór bara upp. Svo þegar ég var kominn upp, sé ég bara dyravörð á Sólon henda Kamil út. Ég fer að dyraverðinum og spyr hann hvað þetta hafi verið, en þá segir hann að Kamil hafi splúndrað glasi viljandi þarna niðri.

Svo út af því að ég vildi ekki fara af Sólon með Kamil, út af því að honum var hent út, fór hann í fílu og sagði mig ekki vera vin sinn og eitthvað. Hann sagði mér líka að fara í rassgat. En svo seinna hitti ég hann aftur og þá reyndi ég að redda honum inn og bauðst til þess að borga þetta glas, og lofaði að þetta myndi ekki gerast fyrir aftur. Kamil lofaði öllu fögru, en svo stuttu seinna brotnaði hann saman og hótaði Sigga öllu illu. Minnir að hann hafi sagt nákvæmlega: "Á morgun eru allir að fara að fljúga í gegnum rúður hérna. Án gríns, ég þekki helling af pólverjar".

En um kvöldið ætlaði ég að hitta Ingu. Ég sendi henni sms og spurði hana hvar hún væri og sagðist hún vera á ellefunni, þannig ég dró Grétar, Jökul ofl. þangað. Þegar við komum þangað, var allt troðið. Þeir fóru bara á dansgólfið. Ég sá einhverja stelpu sem var svolítið lík Ingu (hafði aldrei séð hana nema á mynd), þannig ég spurði hana hvort hún væri Inga og hún sagðist já, þannig ég faðmaði hana og reyndi eitthvað að spjalla við hana, en hún fór bara. Ég bara ok... Varð geðveikt pirraður, fór út með strákunum og sendi henni: "Bless?" og þá sendi hún á móti: "What?". Þá segi ég henni að hún hafi bara farið eftir að hafa hitt mig, en þá segist hún ekki kannast við þetta. Hahaha! Ég hafði þá farið að vitlausri stelpu! Ég var kominn á Sólon aftur en fór strax aftur á ellefuna með Jökli og hitti hina RÉTTU Ingu. Haha, djöfull var þetta steikt.

Ég, Inga, vinkona hennar og Jökull fórum bara út og ætluðu þær bara heim. Ég bauð þeim á Sólon en vinkona Ingu neitaði, þar sem hún var víst að fara að vinna kl 9, en það voru sirka 4 tímar í það. Ég kvaddi þá bara Ingu og við Jökull fórum aftur á Sólon. Þegar við komum þangað, var klukkan orðin 5 þannig það var búið að loka. Gummi reddaði okkur samt inn. Takk, Gummi elskan mín. Við biðum bara þarna eftir Eygló, þar sem hún ætlaði að skutla okkur heim. Við vorum orðnir svo þreyttir á biðinni, þannig við ákváðum að kíkja út. Ég var orðinn frekar hífaður þarna, þannig ég settist hliðiná einhverjum gaur sem var dauður og lokaði augunum. Allt hringsnérist, þannig ég ákvað bara að standa á fætur og hætta þessu kjaftæði. Það rann strax svolítið af mér.

Ég og Jökull röltum á Hlöllavagninn, en Júlía var bara búin að loka, þannig við fengum ekkert að borða. Hlölli á Ingólfstorgi kemur heldur ekki til greina, þar sem það eru ógeðslegir bátar þar. Vagninn er bestur! En svo kom Eygló bara og sótti okkur og skutlaði okkur heim. Takk, Eygló mín.

Núna var ég bara að vakna og er ógeðslega þunnur. Ég er varla að meika að drekka í kvöld, enda þegar ég fæ bílprófið þá verður bara rúntað og skutlað fólki á föstudaginn en svo drukkið á laugardaginn. Mér finnst bara of mikið að drekka bæði kvöldið, þar sem ég drekk alltaf svo mikið og enda alltaf með að vera ógeðslega þunnur daginn eftir!

En núna ætla ég að drulla mér í sturtu og kíkja yfir til Jökuls. Hann og Helgi eru bara þar að drekka. En ég vil þakka öllum fyrir gærkvöldið.




Athugasemdir ():