Deila á Facebook
« Íslensku vefverðlaunin 2005 | Aðalsíða | Hann á afmæli í dag, hann á afmæli í dag... »

Langur og mikill dagur
Skrifað miðvikud. 16. nóvember 2005 - 03:50
athugasemdir skrifaðar - toppur / botn
Í dag var ég búinn í skólanum kl 14:40, fór svo upp í vinnu til pabba og prentaði út boðs- og bjórmiðana fyrir afmælið okkar Grétars.

Því næst fór ég í kór kl 16:40. Kom samt aðeins of seint því ég var að stússast í þessu afmælisrugli. Var svo búinn í kór kl hálf 5, fór svo með Grétari heim og við skárum, plöstuðum og klipptum boðs- og bjórmiðana. Vil þakka pabba kærlega fyrir að lána okkur plöstunarvélina og skurðartækið.

Eftir það fóru ég, Grétar og mamma á Nings og splæsti kella á okkur stóra #65 -- best í heimi!

Því næst fóru ég og Grétar að keyra út boðsmiðana. Við keyrðum ekki út ALLA boðsmiðana, enda eru flestir í Borgó sem er boðið. Við skutluðumst með nokkra miða. En núna í kvöld, vorum við bara að fara með boðsmiða fyrir fólk sem ég bauð. Allir af vinum Grétars eru í Borgó eða eiga vini sem eru í Borgó. Þannig hann dreifir boðsmiðunum bara í skólanum. Ég líka að vísu en ég á vini, félaga og kunningja sem búa út um allt.

Fyrst fórum við til Jónasar sem býr í sömu götu og við. Hann var með okkur í grunnskóla og er/var mjög góður vinur okkar.
Þar næst fórum við til Ellu, Maju og Kollu, 3 yndislegar frænkur mínar.
Næst fórum við til Danna og létum hann fá sinn, Kamil og Kristínar boðsmiða, þar sem Kamil var ekki heima.
Svo skutluðumst við til Áka en hann var ekki heima þannig við skildum bara boðsmiðann eftir hjá pabba hans. Vonandi á hann eftir að sjá hann. Annars mun pabbi hans drekka allan bjórinn.
Þar næst fórum við til Dofra vinar míns. Dofri er frábær hreinskilinn, einlægur og hjartnæmur vinur minn. Hann er yndi!
Svo brunuðum við í Hafnarfjörð til Kidda félaga míns. Kiddi er afskaplega góður strákur og er búinn að vera félagi minn í mörg ár.
Að lokum fórum við til Huldu, minnar fyrrverandi. Hehe, það var góður endir á góðum rúnti. Hulda var hress eins og alltaf og spjölluðum við lengi saman fyrir utan hjá henni á meðan Grétar blundaði í bílnum mínum. Hulda er yndisleg manneskja og erum við góðir vinir.

Við töldum 60 gesti samtals (33 strákar og 27 stelpur (pulsupartý)) en fækkuðum við niður í 54, vegna forfalla hjá fólki.
Við gerðum það þannig að hver og einn gestur fær 2 bjórmiða meðfylgjandi með boðsmiðanum. Við pöntuðum 2x30L VIKING bjórkúta. 1 glas = 0,5L, 2 glös = 1L. Sem sagt 120 glös = 60L (2x30L kútar). Þannig þetta ætti að stemma nokkurn veginn, þannig allir ættu að fá jafn mikinn bjór! En það eru náttúrulega alltaf auka forföll og sumir drekka ekki og svona þannig vonandi verður smá afgangur svo ég geti haft kútinn inni í herberginu mínu tengdan með röri upp í rúm til mín. Hehe, segi svona.
En já, það er búið að negla allt niður. Dagsetning, staður, áfengis- og matarveitingar, hljómsveit og allt. Núna er bara um að gera að mæta í rosalegasta afmælispartý ársins!

Ég vill taka það sérstaklega fram að í gær (15. nóv) var met í heimsóknum á þessari síðu! 130 unique heimsóknir og yfir 500 flettingar! Alveg ótrúlegt. Ég vil þakka kærlega fyrir mig og mun ég án efa reyna að bæta þessa síðu í nánustu framtíð.

Fólk hefur verið að biðja mig um upp á síðkastið að setja aftur upp kóðasafnið sem ég var með á gömlu gaui.is. Það var náttúrulega bara vinsælt! Ég man að það voru 500+ unique gestir á dag og yfir 10.000 flettingar! Það er ROSALEGA gott á miðað við svona einstaklingsvef.

Ég þarf líka að henda upp svona tenglasafni þar sem ég linka á aðra bloggara. Glatað að vera með heimasíðu og ekki vera með svoleiðis system.

En þetta kemur um leið og það róast hjá mér. Allt að verða vitlaust! Þetta afmælisstúss tekur sinn tíma, eins og margt annað sem er að gerast í lífi mínu núna þessa dagana.

Djöfull er ég minnugur að muna svona nákvæmlega eftir öllu.

Það sem ég á eftir að gera:
- Halda afmælispartý ársins
- Setja upp tenglasafn
- Setja upp kóðasafn

En já, núna er ég bara að fara að sofa rétt bráðum. Ég á að mæta kl 11:20 í skólann á morgun. Ef ég vakna kl 11, fæ ég sem sagt að sofa í 7 tíma. Er það ekki bara fínt? En morgundagurinn stefnir í það að verða bara góður.
Ég á pantaðan tíma í klippingu og strípur fyrir afmælið mitt. Og auðvitað er það mamma mín sem sér um þann pakka. Gott að eiga mömmu sem er hárgreiðslumeistari.
Ég ætla líka að skreppa í Kringluna á morgun og kaupa mér flotta hvíta skyrtu, kíkja svo í ljósatíma og taka því svo bara rólega. Pústa smá.

Allavega, ég býð ykkur góða nótt.

Lag dagsins er:
R.E.M. - Losing My Religion




Athugasemdir ():