Laugardagur
Skrifað mánud. 18. september 2006 - 01:20Í gærkvöldi var kíkt smá á djammið. Ég var engan veginn að nenna því en ég hafði ekkert betra að gera, þannig ég ákvað bara að skella mér.
Ég dreif mig í sturtu og kíkti svo heim til Odds, bróðir Grétars, og Agnesar, kærustu Odds og systir Jökuls. Þau voru með eitthvað smá partý þar, þar sem ég, Helgi, Jökull, Grétar, Ívar, Oddur, Agnes, Hlynur og kærastan hans, voru. Það var fínt. Við drukkum bara og fórum í Sing Star keppni, þar sem Helgi rústaði þeirri keppni gjörsamlega. Til hamingju, Helgi.
Svo tókum við bara gítarinn og sungum og skemmtum okkur konunglega.
Svo þegar við ætluðum að fara niður í bæ, hringdi ég í Kamil og bað hann um að sækja okkur. Hann var til í það og kom eftir sirka hálftíma. Grétar og Oddur voru orðnir svolítið fullir, þannig þeir slepptu því að fara í bæinn og fóru ég, Helgi, Jökull og Ívar bara með Kamil niður í bæ. Við brunuðum auðvitað á Sólon, þar sem stemmningin var.
Ég get nú ekki sagt að ég hafi skemmt mér sérstaklega vel niðri í bæ, en toppurinn á kvöldinu var að hitta Lísu. Við dönsuðum smá, en vinkona hennar vildi svo fara út af því að hún passaði ekki inn á þennan "hnakkastað", eins og hún svo skemmtilega orðaði það. Ég kvaddi þá bara Lísu og fór svo að dansa. Lísa sagði mér samt frá einu, og það var það að hún fann síðuna mína!
Mér finnst frekar skrítið að stelpur, sem ég hitti á djamminu, séu að skoða síðuna mína. En allavega, hún fær prik fyrir það að finna síðuna mína. Hehe. 
Gummi Jónss var auðvitað hress á barnum, og var yndislega gaman að sjá kallinn. Einnig var Steini ógeðslega hress og er mér nú farið að finnast hann vera ógeðslega fínn gaur. Ég hef nú aldrei kynnst honum neitt almennilega, en hann er frábær gaur, og kynntist ég því í gær, þar sem hann var þarna með vinkonu sinni í hörkustuði.
Svo var bara komið að því að fara heim, þar sem við vorum nú ekki það lengi niðri í bæ. Við fórum niður í bæ í kringum 3 og svo var klukkan allt í einu orðin allt of margt, þannig við drifum okkur bara heim. Anja keyrði okkur heim, en löggan stoppaði okkur á leiðinni og sá að við vorum með yfirfarþega. Löggukonan tók fyrst ekkert eftir því en svo byrjuðum við að hlæja og þá leit hún aftur í og tók eftir því. Hún bað Önju um að koma yfir í lögreglubílinn og gaf henni séns með að sleppa við sekt og punkt ef hún myndi losa sig við einn farþega. Jökull var svo góður í sér og fór út, þannig við skutumst með Söndru í Hafnarfjörð og svo fórum við og sóttum Jökul.
Karlinn var gegnumblautur þegar við komum og sóttum hann í Kringluna, en hann var samt geðveikt hress. En allavega, svo fórum við bara heim og ég fór beinustu leið að sofa.
Ég vaknaði svo klukkan 7 og mamma eldaði bestu þynnkumáltíð í heimi bara fyrir mig; nautakjöt (medium rare) með gulum baunum, kókglasi og mikið af tómatsósu. Þetta var geðveik máltíð. Takk æðislega, mamma.
En svo núna í kvöld fór ég með Jökli aðeins á rúntinn, tókum brekkuna (laugarveginn) nokkrum sinnum og fórum svo á höfnina og fengum okkur "hommaprik", eins og hann svo skemmtilega orðar það.
En svo fórum við í Esso í Ártúnsbrekku, þar sem ég fékk mér brasilíuhnetur og kók. Þar hittum við líka vinkonu hans Jökuls, hana Ásu. Hún var að vinna þarna, þannig við spjölluðum aðeins við hana, og ákváðum að fara saman á kaffihús á morgun.
Allavega, ég vil þakka æðislega fyrir mig á laugardaginn, og biðja Gumma afsökunar yfir því að ég hafi bara farið án þess að kveðja. Ég þoli ekki þegar fólk gerir það við mig, þannig ég er með svolítið samviskubit. Ég sendi honum samt sms þegar ég kom heim, þar sem ég þakkaði honum fyrir kvöldið. Takk fyrir mig allir!
Núna ætla ég bara að fara að sofa bráðlega, þannig ég segi þetta bara ágætt í bili.

Athugasemdir (