Bankaskipti og sorg
Skrifað miðvikud. 20. september 2006 - 00:41Ég er nú ekki að ýja að því að það sé sorglegt að skipta um banka, þó það sé það að vissu leyti, þar sem ég er búinn að vera í þessum banka í mörg ár.
Allavega, ég gerði nú ekki margt í dag. Skellti mér í skólann, fór svo heim í gat og fór svo aftur í skólann. Þýskukennarinn minn er mjög ósanngjörn, þar sem hún lét sem heimaverkefni fyrir morgundaginn að skrifa 50 orða frétt og svo valdi hún einhver orð sem urðu að vera í fréttinni. Það var svo erfitt að tengja þessi orð saman í fréttinni að þetta varð algjör steypa.
En svo eftir tíma, fór Grétar í kór, en ég bara heim. Ég var svo ógeðslega heppinn að hitta Aron og Palla fyrir utan World Class, þannig ég plataði Aron til að skutla mér heim. Takk kærlega fyrir það, kall.
En svo eftir að ég kom heim, skelltum við mamma okkur í Smáralindina til þess að kvarta undan gleraugunum mínum, þar sem ég sé ömurlega með þeim. Ég var nefnilega að fá ný gler í þau um daginn. Konan sagði mér bara að taka 1-2 vikur í að venjast þeim, þar sem gömlu glerin voru of sterk og það tæki smá tíma að venjast nýja styrknum.
Svo eftir þetta kíktum við í Zöru, þar sem Gugga er að vinna. Við kíktum nú ekkert í Zöru út af því að Gugga er að vinna þarna, heldur sá ég svo ógeðslega flottan frakka, þannig ég varð að skoða hann. Gugga var auðvitað þarna vinneríng þannig maður heilsaði, þó hún hafi verið of upptekin til að heilsa manni.
Svo fórum við bara í Nóatún og keyptum kjúklingabringur í matinn...mmm! Enginn American Style meir, þar sem maður er víst að reyna að spara.
Fyrir matinn fór ég heim til Grétars og við gerðum þessa þýskufrétt saman. Ég verð nú að viðurkenna að við svindluðum svolítið og notuðum BabelFish okkur til stuðnings. En það er nú ekkert bannað.
Svo eftir lærdóminn fór ég bara heim og borðaði kjúklingabringur í heitri apríkósusósu. Það er ógeðslega gott og verð ég að bjóða ykkur við tækifæri í mat og leyfa ykkur að smakka það!
En svo núna í kvöld hringdi kona í mig frá Sparisjóð Vélstjóra og bauð mér debetkort, kreditkort, bíókort, fataúttekt, ofl. fyrir ekki neitt. Kosturinn við þetta er að þetta er allt ókeypis og það er ekkert árgjald á kreditkortinu. Ég tók að sjálfsögðu vel í þetta, þar sem þetta er mjög virtur banki og eru foreldrar mínir í viðskiptum við þennan banka og segja bestu þjónustuna og fríðindin þar.
Ég segi sem sagt skilið við Landsbankann á næstu dögum. Ég hef alls ekkert slæmt um Landsbankann að segja, en mér voru boðin betri fríðindi hjá SPV, þannig auðvitað þigg ég þau, ásamt fríu kredit- og bíókorti... gerist ekki betra!
En varðandi sorgina var mér bent á tengil rétt áðan, þar sem stúlka skrifar átakanlega sögu um hvernig hún missti yngri systir sína í umferðarslysi. Hræðilegt alveg.
Ég vil allavega votta henni og hennar nánustu mína dýpstu samúð. 
En allavega, ég á að mæta kl 8 í skólann á morgun, þannig ég er farinn að sofa. Góða nótt.

Athugasemdir (