Deila á Facebook
« Bankaskipti og sorg | Aðalsíða | Mi Gorda Bella »

Slæmt ástand?
Skrifað miðvikud. 20. september 2006 - 23:26
athugasemdir skrifaðar - toppur / botn
Já, ég held það nú. Hversu slæmt er það þegar maður á ekki sígarettur og heldur engan pening til þess að kaupa sér sígarettur. Hætta að reykja? Ég held ekki!

En það var nú ekki neitt merkilegt sem ég gerði í dag. Ég fór bara í skólann með Jökli kl 8, en svo komst ég að því að það væri ekki tími. Ég var í gati til 13:20 eftir þann tíma, þannig ég nennti ekki að bíða og hringdi í pabba og bað hann um að sækja mig. Hann vissulega gerði það. Takk, pabbi.

Svo fór ég bara heim, ætlaði að leggja mig þangað til ég færi í skólann aftur, en ég fór ekkert að sofa. Það er þessi tölvufíkn sem ég er sýktur af.

Sem minnir mig á það að ég flutti fyrirlesturinn minn í Uppeldisfræði um börn og tölvur, í dag. Það gekk ágætlega, nema það að ég var ógeðslega stressaður, þar sem allir voru með glósur á blaði til að lesa út frá punktunum á PowerPoint glærunni, en ég var ekki með neinar glósur. Bara punkta á PowerPoint glærunni og talaði ég bara út frá því. Það gekk nú samt mjög vel og held ég að Aroni, sálfræðikennara, hafi bara litist ágætlega á þetta hjá mér.

Svo eftir skóla fór ég bara heim með Jökli. Við stoppuðum aðeins í 10-11 á leiðinni heim og keyptum rúllutertubrauð, aspas og beikonost, svo við gætum gert fræga aspasréttinn a la Jökull. Djöfull var hann ógeðslega góður, þó ég hafi eldað sér heima hjá mér og Jökull sér heima hjá sér. Þetta var fínt.

En núna er ég bara að klára síðustu dropana af kókinu mínu og svo fer ég og skelli mér í háttinn, þar sem ég þarf víst að mæta kl 8 á morgun. Ég er samt búinn kl 12:40, þannig það er kostur.

Ég þarf samt að hringja á morgun í tannlækninn minn og færa tímann sem ég á, á föstudaginn, yfir á mánudaginn næsta. Ég verð voða upptekinn um helgina, þannig ég nenni ekki að vera að drepast í kjaftinum þá og ég hef heyrt að áfengi og verkjalyf blandist illa saman.

Svo þarf ég líka að sækja um vinnu. Ef þið vitið um einhvern sem er að leita að starfsfólki, látið mig endilega vita.

En svona í lokin langar mig sýna ykkur eina mynd, sem ég tók um daginn. Það er stelpa í heimspeki með okkur Jökli og sat hún beint fyrir framan okkur. Við ákváðum að taka mynd af henni, þar sem hún á fyndnasta bol í heimi. Þetta er alveg sæt stelpa og eflaust fín líka, en þessi bolur var umræðuefnið okkar allan tímann!

Hvernig væri ef hún snéri honum hinsegin?





Athugasemdir ():