Mi Gorda Bella
Skrifað föstud. 22. september 2006 - 13:43Fyrir svolitlu síðan skrifaði ég um slæmt sjónvarpsefni á Stöð 2, en mitt álit á einum þætti gjörbreyttist í gær, eftir að ég horfði á annan þátt í þessari þáttaröð.
Í gær leiddist mér þannig ég kveikti á sjónvarpinu og sá þennan þátt aftur; Mi Gorda Bella (My Sweet Fat Valentina). Þetta er ekki rétt þýtt, en rétt þýðing er: "My Beautiful Fat Person". Þó ég sé ekki stolltur af því, þá verð ég að viðurkenna að eftir annað áhorf á þessum þætti, festist ég yfir honum. Ég festist yfir spænskri sápuóperu! Hversu slæmt er það?

Þessi þáttur fjallar um góðhjartaða stelpu, sem heitir Valentina og er ekkert sérlega heppin með líkamsvöxt. Hún er samt voða góðhjörtuð og vill öllum vel. Þátturinn fjallar allavega um hana, Villanueva fjölskylduna og Lorenz fjölskylduna, ásamt mörgum öðrum persónum. Valentina var með lögreglumanninum Franklin Carreño, en áður en þau byrjuðu saman var hún geðveikt hrifin af fjarskyldum frænda sínum, Orestes Villanueva. Orestes var með gullfallegri gellu sem heitir Chiquinquirá Lorenz (Norkys Batista), sem er bæði fyrirsæta í þáttunum og í raunveruleikanum (skiljanlega), en þau hættu saman ásamt því að Valentina og Franklin hættu saman.
Svo núna í þættinum í gær kysstust Orestes og Valentina, en Valentina vildi ekki að það myndi gerast neitt á milli þeirra, en Orestes var hins vegar ekki á sama máli. Olimpia Villanueva, móðir Orestes, drap föður Valentinu, en hún hefur falið það í mörg ár, en systir Orestes, Pandora Villanueva, varð vitni að því og reyndi að segja Valentinu það, en það leið yfir hana þannig hún gat ekki sagt henni það.
Valentina reynir þá að hjúkra að Pandora en Aquiles Villanueva, bróðir Pandora og Orestes, kemur að þeim og heldur að Valentina hafi gert Pandora eitthvað illt, þannig hann hendir Valentinu í burtu. Aquiles missti minnið, þannig hann veit ekkert að Valentina er góð og vill öllum vel, og að hún gæti aldrei gert flugu mein.
Svo heldur maður Olimpiu, Juan Ángel, fram hjá henni með Tza Tza, sem er ung leikkona á framabraut. Svo komst Orestes að því að hann hefði fæðst 7 mánuðum eftir að móðir hans og Juan Ángel kynntust, þannig hann gat varla verið faðir sinn. Þannig hann kemst að því að Juan Ángel er ekki faðir sinn.
En svo var þátturinn búinn. Þetta er ógeðslega spennandi, þó það sé ótrúlega mikið drama í þessum þáttum. Næst er það bara að sjá hvort Valentina komist að því að Olimpia hafi drepið föður sinn og svo hvort Orestes komist að því að Juan Ángel er ekki raunverulegi faðir sinn. Spennó, spennó!
Og svo er Chiquinquirá Lorenz (Norkys Batista) ekki lítið heit gella...

Orestes og Valentina í þáttaröðinni "Mi Gorda Bella"

Athugasemdir (