Helgin 22. - 24. september
Skrifað mánud. 25. september 2006 - 01:22Á föstudaginn fór ég í partý heim til Gumma. Ég kalla þetta gellugleði, þar sem Gummi sagðist ætla að bjóða öllum stelpum sem hann þekkti, þannig þetta átti að vera svona 20% strákar á móti 80% stelpum. Við vorum eitthvað þarna strákarnir; Ég, Grétar, Jökull, Helgi, Steini, Andri, Palli, ofl. Byrjuðum bara á því að taka upp gítarinn og syngja með honum, en svo þegar klukkan var orðin svolítið margt komu einhverjar stelpur. Þetta var nú meira 80% strákar á móti 20% stelpum. Ekki alveg eins og við vorum búnir að búast við. 
Seinna um kvöldið voru allir komnir í svo mikið stuð að við urðum að fara niður í bæ. Jói darling var edrú og kom og sótti okkur kappana. Ég og Jökull áttum fyrst að verða eftir og bíða eftir Ívari, en svo var allt í einu óvænt pláss fyrir okkur. 7 manna Volvo, klikkar ekki!
Jói lagði bílnum bara einhverstaðar þarna niðri í bæ og við röltum á Sólon. Það var svo mikil röð að ég nennti engan veginn að bíða í henni, þannig ég fór fyrir framan og vonaðist til þess að komast inn í VIP, en Siggi var ekki í hurðinni, þannig ég beið bara. Siggi kom svo og spurði: "Hversu margir?" og ég sagði: "Fjórir", en þá kom einhver gaur og hvíslaði að mér: "Nei, fimm! Segðu fimm. Félagi þinn var búinn að lofa mér inn". Þá hafði Grétar talað við einhvern gaur og sagst ætla að redda honum inn í VIP. Ég var nú ekkert á því að hleypa þessum gaur inn með mér, þannig ég gaf Sigga einhvern svip og hann fattaði strax hvað ég var að tala um og hleypti gaurnum ekki inn með okkur. Siggi snillingur. 
Við fórum bara inn og beint upp á dansgólfið. Þar fórum við bara að dansa. Það var geðveikt gaman. Ég hitti Huldu, fyrrverandi mína, og var hún með vinkonu sinni, sem ég náði ég ekki alveg hvað hún heitir. Það var rosa gott að hitta Huldu, þar sem við höfðum ekki sést lengi. Ég ætlaði að bjóða henni upp í dans, en hún hvarf bara eitthvað og kom svo allt í einu og sagðist vera að fara, þannig ég náði ekki að bjóða henni upp í smá snúning. Ég kvaddi hana bara og bauð Eygló upp á smá snúning. Við tókum auðvitað dansgólfið út af fyrir okkur og vorum ekkert að fara leynt með það.
Við verðum samt að fara að æfa ný dansspor. Alltaf með það sama.
En það er alltaf jafn gaman að dansa við þig, Eygló. 
Svo eftir snúninginn var maður gjörsamlega orðinn blautur af svita. Það er sko ekki auðvelt að taka svona á í þessu lofti þarna inni á Sólon. Eygló bauð mér svo upp á skot á barnum. Eftir það fór ég bara á dansgólfið aftur einn, og þá voru bara allir farnir. Ég hef ekki hugmynd um hvert, en það voru allavega allir farnir. Einu sem voru eftir voru ég, Maja frænka, Svava (vinkona Olgu sem er vinkona Maju), Steini og Ívar, vinur Steina. Það var mjög gaman með þeim, þar sem Steini er nú bara frábær gaur í alla staði og algjör snilld að djamma með honum! Við dönsuðum við nokkur lög á dansgólfinu saman. Ég sagði Steina að reyna við Svövu, þar sem Maja frænka hafði sagt mér að hún væri heit fyrir honum, en svo þegar hann fór að reyna við hana, þóttist hún ekki taka eftir honum. Vá hvað hún fór í taugarnar á mér eftir það. Steini er gullfallegur og frábær strákur, og get ég sko með sanni sagt að hún hafi misst af miklu.
Svo seinna um kvöldið sendi Jökull mér sms og sagðist vera á leiðinni heim og bauð mér far. Ég afþakkaði auðvitað farið, þar sem ef ég fer niður í bæ, er ég þar þangað til það lokar!
Svo eftir smá dans með strákunum bauð Steini mér upp á bjór. Takk æðislega fyrir það, kall.
Svo eftir að hafa drukkið bjórinn skelltum við okkur aðeins á dansgólfið aftur áður en það lokaði.
Eftir að það lokaði á Sólon kl sirka 5 röltum við Steini og Ívar bara niður laugarveginn. Við fórum að leita að einhverjum stöðum sem voru ennþá opnir, en það voru engir staðir opnir! Við hittum þá Röggu, vinkonu Grétars. Hún var auðvitað blindfull og hress, þannig við spjölluðum við hana í smá tíma. Svo sparkaði hún í hnéið á Steina, þannig hann varð geðveikt haltur. Ég skammaði hana auðvitað fyrir það og kom einhver gaur og skammaði hana líka. Hahaha, það var geðveikt fyndið. Röggu leið eins og skít.
Eftir það héldum við bara áfram að rölta, og röltum á Hlölla á Ingólfstorgi. Af einhverjum ástæðum var búið að loka Hlöllavagninum, þannig við urðum að fara á Ingólfstorg. Strákarnir fengu sér bara að borða. Ég var ekki með neitt far heim, þannig ég spurði Steina hvort ég mætti gista hjá honum, og var það ekkert mál. En svo sendi ég Maju frænku sms og spurði hana hvort hún væri farin heim, og þá hringdi hún í mig og bauð mér far með Olgu, vinkonu sinni. Hún sagði mér að fara upp á Sólon og bíða þar eftir henni. Ég gerði það auðvitað. Takk samt æðislega fyrir boðið á gistingunni, Steini. Eins og ég hef sagt áður, þú ert gull af manni.
Ég rölti bara upp á Sólon og beið eftir Olgu. Svava var þarna að daðra við einhvern gaur. Vááá, þessi stelpa fer svo í taugarnar á mér. Hún hagar sér eins og 14 ára frek smápíka, sem hefur fengið allt upp í hendurnar og aldrei þurft að hafa fyrir neinu. Allavega, ég ætla ekki að skíta meira yfir þessa greyið stelpu, þó þessi stuttu kynni mín af henni hafi orðið til þess að ég missti allt álit á henni.
En svo kom Olga, vinkona Maju frænku, og sótti mig og Svövu. Á leiðinni heim heyrði ég öskur aftur í: "DRULLASTU TIL AÐ SVARA MÉR!" og það var þá Svava, sem var að springa úr frekju út af því að einhver Dabbi vinur hennar svaraði henni ekki. Greyið!
En svo þegar ég kom heim, þurfti litla frekjudósin að pissa og þar sem ég er algjör herramaður bauð ég henni auðvitað inn á gestaklósettið inni hjá mér. Svo fór ég bara að sofa. 
Vá, mikið sem gerðist þetta kvöld.
Eða gerðist bara svona lítið og ég kann að draga svona mikið úr þessu? Þetta var nú bara föstudagurinn, þannig þið eruð hálfnuð með lesturinn.
Þið sem eruð ennþá að lesa þetta.
Svona er þegar ég kemst í þennan ritflæðispakka. 
Á laugardaginn vaknaði ég ógeðslega þunnur! Ég þurfti auðvitað að fara að hjálpa pabba strax og ég vaknaði. Þetta er alltaf svona. Ef ég vakna ógeðslega þunnur og með ógeðslega mikinn hausverk eða þá að ég er búinn að sofa ógeðslega lítið og er ógeðslega þreyttur, þarf ég alltaf að fara að gera eitthvað mikilvægt. Svo þegar ég er búinn að sofa nægilega og líður vel, hef ég ekkert að gera!
Ég fór allavega með pabba upp í Mosfellsdal, þar sem Ella systir mín og Gummi kærastinn hennar, búa. Þau voru að senda ísskáp í viðgerð, þannig þau þurftu fjóra fílhrausta karlmenn til þess að koma ísskápnum upp í kerruna. Auðvitað var ég valinn.
Hehehe!
Það gekk ágætlega að koma þessum ísskáp í kerruna. Tók smá tíma, en það tókst að lokum. Svo brunuðum við pabbi með ísskápinn niður í Kælitækni. Svo fórum við bara heim.
Heima beið okkar svaka veisla; kjúklingur í apríkósusósu. Mmmm, það var svo gott!
Takk æðislega fyrir frábæran mat, mamma.
Svo eftir þennan æðislega mat fór ég bara í tölvuna og gerði ekki neitt. Ég ætlaði nú bara að taka það rólega þetta kvöld, þar sem ég var ógeðslega þunnur og með ógeðslega mikinn hausverk. En, það tókst ekki...
Grétar bað mig um að kíkja til sín. Ég var nú tregur til að gera það, en ég drattaðist að lokum til hans. Grétar gaf mér einn bjór, þar sem hann þoldi ekki að horfa upp á mig edrú.
Við fórum svo bara í tölvuna og fórum í Counter-Strike og spiluðum á móti hvor öðrum. Það var geðveikt gaman, þangað til Helgi, Villi og Andri komu að sækja okkur. Ég var alveg á því að slappa bara af heima hjá Grétari, spila nokkra leika, drekka kannski 1-2 bjóra og fara svo bara snemma að sofa, en auðvitað þurfti Helgi að draga okkur í ruglið! 
Við fórum heim til Helga og horfðum á eldgamalt video með Elvis Presley. Það var nú ekki slæmt, en ég var svo ógeðslega edrú að ég skemmti mér ekki neitt. Helgi gaf mér þá bjór sem Vatnaliljurnar áttu, og drakk ég allnokkra af þeim. Það endaði bara með því að ég var orðinn fullur, þannig við drulluðum okkur niður í bæ. Jónas ætlaði að drekka, en hætti við, þar sem hann var svo þreyttur og nennti ekki að drekka þetta kvöldið. Strákarnir voru ekkert sáttir við það. Jónas var á bíl, þannig hann skutlaði okkur niður í bæ. Helgi var bara eftir heima, þar sem hann var að fara að vinna um morguninn.
Þegar við vorum komnir niður í bæ, fórum við bara beint á Sólon á dansgólfið. Ég verð nú að segja að þetta hafi verið eitt af skemmtilegri kvöldum sem ég hef upplifað á Sólon, þar sem það voru svo ógeðslega margir þarna: Ég, Grétar, Jökull, Gummi, Steini, Ívar, Halli, Ómar, Hjalti, Rafn, ofl. Þetta var geðveikt gaman og tókum við dansgólfið gjörsamlega út af fyrir okkur.
Svo klukkan nokkrar mínútur yfir 5 vildi Jónas fara heim, þannig við fórum bara með honum. Ég held þetta sé í fyrsta skipti í langan tíma sem ég hef farið heim fyrir lokun á Sólon. En allavega, við fórum bara heim. Við vorum lagðir af stað þegar Ívar hringir í Grétar og snýr þá Jónas við til þess að taka Ívar upp í. Svo skutlum við Ívari bara heim og fórum sjálfir heim.
Við vorum orðnir svo svangir og þyrstir að við ákváðum að fara aðeins út í 10-11 í Rimahverfinu. Þá kemur löggan og stoppar okkur. Löggan spurði Jónas hvort hann væri búinn að drekka eitthvað og hann var svo hreinskilinn að hann varð að segja að hann hefði tekið nokkra sopa af bjór, áður en hann hefði ákveðið að ætla ekki að drekka.
Löggukonan lét hann bara blása og hann náði ekki yfir mörkin, þannig hann slapp. Svo fórum við bara í 10-11 og ég fékk mér kók og nokkrar súkkulaði-brasilíuhnetur í poka (mmm...).
Svo skutlaði Jónas mér, Jökli og Grétari bara heim til Grétars, þar sem við héldum smá eftirpartý. Grétar hélt auðvitað áfram að blanda vodka í Z-up, þannig hann dó innan skamms. Við Jökull fórum bara niður í leik, sem Oddur benti okkur á, sem heitir FlatOut 2. Þessi leikur er ógeðslega steiktur, þar sem þú átt að keyra eftir einhverri braut og skjóta kallinum í einhver skotmörk. Svo er líka hægt að fara í klessó og race, þannig þetta var fínt. Við festumst í þessum leik í einhverja 3-4 tíma, þar sem klukkan var orðin 11 þegar við fórum heim. Djöfull var þetta gaman!
En svo fór ég bara að sofa og svo núna áðan á sunnudegi vaknaði ég kl 5, en ég fór auðvitað aftur að sofa og vaknaði kl hálf 8. Sem betur fer vaknaði ég ekkert þunnur, þannig mér leið bara ágætlega. Ég dreif mig bara í tölvuna. Kamil kom svo áðan í sígó og spjölluðum við smá saman. Langt síðan ég hef hitt kallinn, en það var gott að hitta hann áðan.
En núna er ég bara að læra, þannig við segjum þetta MJÖG GOTT í bili.
Það er sko pottþétt minnihluti sem les þetta allt, þar sem mér tekst alltaf að skrifa svo ógeðslega mikið um "ekki neitt".
En allavega, ciao! 

Athugasemdir (