Spilafíkn? - Nördablogg
Skrifað þriðjud. 26. september 2006 - 00:44Jæja, dömur mínar og herrar. Ég fór allt of seint að sofa í gær, en ástæðan var sú að ég installaði Quake 3 aftur. Ég fór að sofa eitthvað í kringum 6 leytið og var sko allt annað en hress þegar ég vaknaði í skólann.
Já, það er rétt. Ég er byrjaður aftur að spila Quake 3. Það eru svona 2-3 ár síðan ég fór í hann síðast, en ég ákvað að prófa í gær út af því að Jökull setti upp server í gær og vildi fá mig inn til að prófa. Ég get nú ekki sagt að ég hafi verið að fíla þetta, þar sem ég var með 200-800 í ping á meðan hann var með 0.
En já, ég gerði nú voða fátt í dag. Strax eftir skóla fór ég bara heim í Quake 3 og er búinn að vera í honum síðan. Það er ekkert lítið hvað tíminn er fljótur að líða þegar maður er að spila þennan leik. Kannski ég grípi bara í þetta þegar ég hef ekkert að gera, svo tíminn líði hraðar.
Ég ætla mér nú ekki að festast í þessari vitleysu aftur...vonandi. En núna er ég orðinn það þreyttur að ég er byrjaður að dotta yfir skjánum að ég ætla bara að drífa mig að fara að sofa. Góða nótt.

Athugasemdir (