Deila á Facebook
« Spilafíkn? - Nördablogg | Aðalsíða | Hotel Rwanda »

Óður dansari?
Skrifað þriðjud. 26. september 2006 - 18:33
athugasemdir skrifaðar - toppur / botn
Þetta lag er svo mikil snilld. Það er bara fyndið að ímynda sér einhvern sem er svona sjúkur í og háður dansi.

Tvíhöfði - Get ekki hætt að dansa

Komdu með mér að dansa.
Komdu með mér að dansa í nótt.
Látum rutmann grípa líkama okkar.
Og færa okkur út á gólfið.

Í samkvæmisdans, í rokkdansi.
Í þjóðlagadans, í trylltum fansi.
Komdu með mér út á gólfið.
Haltu í hönd mína vinan.

Tígum tíguleg sporin í dansi fram á nótt.
Nei, ég vil ekki hætta!
Ég vil ekki hætta að dansa.
Mér er alveg sama þó það sé búið að loka.
Ég vil bara halda áfram að dansa.
Látið mig í friði, ég er dansari!
Dansari í gegnum lífið.

Slepptu mér! Mér er alveg sama!
Ég get ekki hætt að dansa.
Ef þú hringir í lögreglu.
Lögreglan kemur hingað.
Mun ég játast þeim dansandi fótum.
Og fylgja þeim fangelsi í.

Færðu mig í hlekki!
Færðu mig í fangageymslur!
Haltu mér föngnum í hlekkjum.
En ég mun alltaf halda áfram að dansa!
Ég mun dansa í fangi lögreglunnar!
Ég mun dansa... allt lífið!




Athugasemdir ():