Deila á Facebook
« Óður dansari? | Aðalsíða | Fimmtudagur - Bjórkvöld? Neee! »

Hotel Rwanda
Skrifað fimmtud. 28. september 2006 - 01:00
athugasemdir skrifaðar - toppur / botn
Ég vaknaði í dag rétt fyrir skólann, en Jökull svaf yfir sig, þannig ég fékk bara far hjá pabba. Takk, pabbi.

En ég kom á réttum tíma í skólann. Fyrsti tíminn var lífsleikni, þar sem við horfðum á mjög áhrifamikla mynd sem heitir Hotel Rwanda með Don Cheadle í aðalhlutverki.

Myndin fjallar um þjóðarmorðin í Rúanda, þar sem stríðsglæpa- og uppreisnarmenn drápu fjölmarga saklausa flóttamenn. Friðargæsluliðar Sameinuðu Þjóðanna reyndu að flytja eins marga og þeir gátu, en þeir fengu einungis leyfi fyrir flutning á nokkrum fjölskyldum, sem voru bara örfáar af öllum fjöldanum þarna. Paul Rusesabagina (Don Cheadle) var hótelstjóri þarna og reyndi að hjálpa öllum þessum flóttamönnum með því að hýsa þau á hótelinu sínu. Herinn ruddist inn og hótaði að drepa alla, en Paul talaði við Tillens, sem er leikinn af Jean Reno, og talaði hann við stjórn frakka og fengu þeir herinn burt.

Þetta er voða sorgleg mynd, og fór ég nánast að gráta á köflum, þar sem brjálæðið og mannvonskan var í svo miklu hámarki. Ég átti auðvelt með að halda aftur af mér með að fella tár, þar sem ég var nú í skólanum. Einnig er bara sorglegt að sjá Paul, hótelstjórann, reyna allt sem hann getur til að bjarga aumingja fólkinu, og má með sanni segja að sá maður er með hjarta úr gulli. En ég mæli hiklaust með þessari mynd, þar sem hún er byggð á sannsögulegum atburðum. Ég gef henni 4 stjörnur af 5 mögulegum.

En svo eftir skóla fór ég bara heim. Svo í kvöldmatinn pöntuðum við pizzu og fékk ég mér 15" pizzu með skinku, sveppum og beikoni, bara til að prófa eitthvað nýtt. Ég verð nú bara að segja að þetta hafi verið prýðisblanda og á ég örugglega eftir að panta það sama aftur.

En með pizzunni pantaði ég kók. Hvað fékk ég? VOLGT KÓK! Pantar maður ekki kók/gos með pizzunni svo maður geti drukkið það með pizzunni? Ég drekk ekki volgt kók með pizzunni minni, takk fyrir. Dominos missir eitt prik fyrir þetta. Ég ætla rétt að vona að þetta komi aldrei fyrir aftur!

En svo eftir þessa dýrindis kvöldmáltíð fórum við feðgar upp í Kælitækni og sóttum ísskápinn sem var í viðgerð fyrir Ellu systir og Gumma kærastann hennar. Við hentum ísskápnum upp á kerru og keyrðum hann svo í Mosfellsdal, þar sem turtildúfurnar búa. Svo hjálpuðum við þeim að koma honum fyrir. Þetta var allt voða gaman.

Svo núna er ég hér niður kominn og er bara að fara að henda mér í háttinn, þar sem það er skóli klukkan 8 á morgun. Góða nótt.




Athugasemdir ():