Fimmtudagur - Bjórkvöld? Neee!
Skrifað föstud. 29. september 2006 - 22:08Í gær fór ég með Grétari, Helga og Gumma á bjórkvöld hjá Borgó, sem haldið var á Klúbbnum. Það var vægast sagt ömurlegt.
Við komum þarna og staðurinn var gjörsamlega dauður! Við settumst eitthvað niður og fórum bara að spjalla en þessari stemmningu var bara ekki viðbjargandi. Gummi stakk þá upp á því að kíkja á Sólon. Við vorum allir til í það.
Þegar við komum á Sólon var stemmningin þar í hámarki. Við kíktum upp og þar var Ingó að trúbadorast. Ég hitti Unni og Söndru og heilsaði þeim á leiðinni upp. Gummi vinnur þarna, þannig hann reddaði borði og stólum, þrátt fyrir að staðurinn hafi verið troðinn og engin borð né stólar lausir. Gumma tókst samt að redda því.
Við settumst þarna niður og hlustuðum á Ingó og einhvern sem var með honum, syngja og spila á gítar. Stuttu síðar kom Jökull og settist hjá okkur. Ég ætlaði nú ekki að drekka neitt þetta kvöld en þurfti þá ekki Gummi að kaupa 3 fötur af bjór.
Hahaha, auðvitað varð ég að fá mér bjór, sem endaði með því að ég drakk heila fötu og varð frekar fullur.
Þetta var æðislega gaman. Takk æðislega fyrir bjórinn, Gummi. 
Svo eftir að Sólon lokaði skruppum við á Esso planið til að spjalla við Jökul, þar sem hann var á bíl. Ég og Helgi enduðum með að dansa eins og fávitar við tónlistina í bílnum hans Grétars. Þetta var algjör snilld!
Svo komu einhverjar stelpur að dansa með okkur. Ég bauð þá einni stelpunni upp í dans og kenndi henni nokkur spor. 
Helgi þurfti auðvitað að enda þetta með leiðindum og byrjaði að rífa kjaft við stelpurnar. Stelpurnar óku þá að háa kantinum á Esso planinu, stoppuðu bílinn og rifu kjaft á móti við Helga. Svo kom að því fyndna. Stelpan var svo pirruð að hún tók ekki eftir því að bíllinn væri alveg upp við kantinn og brunaði áfram og rak bílinn skemmtilega upp undir í kantinn. Greyið!
En svo fórum við bara heim. Á leiðinni heim hlustuðum við á geðveikt lag sem pumpaði upp stemmninguna hundraðfalt. Það heitir Old Pop In An Oak og er það eftir Rednex, sem gerðu Cotton Eyed Joe lagið vinsæla. Þetta er snilldar lag!
En núna í kvöld er ég að hugsa um að taka það bara rólega. Ég á ekkert áfengi, er þreyttur og frekar óglatt. Ég borðaði yfir mig áðan og er þess vegna óglatt. Strákarnir eru að reyna að fá mig út, en ég er ekki viss um að ég láti verða að því, þar sem ég er bara ekki í neinu stuði í kvöld. Einnig sögðust þeir ætla að taka föstudaginn rólegan, en svo núna er allt í einu allt búið að breytast og ætla þeir að verða "mökkölvaðir", eins og þeir svo skemmtilega lýstu því.
Segjum þetta ágætt í bili.

Athugasemdir (