Deila á Facebook
« Fimmtudagur - Bjórkvöld? Neee! | Aðalsíða | Bíllinn kominn! »

Helgin 29. - 30. september
Skrifað mánud. 2. október 2006 - 21:51
athugasemdir skrifaðar - toppur / botn
Jæja, þar sem það er engin heitasta færslan fyrir októbermánuðinn, verð ég að bæta úr því með því að búa til eitt stykki færslu. Allir eitthvað að tuða í mér að það sé svo langt síðan ég bloggaði síðast. Vitiði, það er bara mjög erfitt að vera í skóla, djamma um hverja einustu helgi og reyna þar að auki að blogga fyrir hvern einasta dag. Það er mjög erfitt get ég sko sagt ykkur, en ég ætla að bæta ykkur það upp með doktorsritgerðarbloggi núna. Dömur mínar og herrar; HELGIN Í SMÁATRIÐUM!

Helgin var mjög skemmtileg og vil ég bara þakka öllum sem ég var með, fyrir frábæra helgi.

Ég ætlaði að vera edrú á föstudaginn en vinir mínir (aðallega Grétar) tóku það ekki í mál og helltu í mig. Við vorum heima hjá Jökli og voru þar: Ég, Jökull, Grétar, Helgi, Jói og Jónas. Því miður gat Gummi ekki verið með okkur þetta kvöld, þar sem kallinn var að vinna, en hann var með okkur næsta kvöld.

Eftir stutta veru heima hjá Jökli kláruðum við bjórinn, þannig við fórum heim til Grétars og náðum í meiri bjór. Grétar gaf mér samtals 4 bjóra og svo fengum við okkur Tópas, sem Jökull bruggaði. Djöfulsins snillingur. Taka dry vodka og setja tópas pillur ofan í það og láta bíða. Mmmm!

Þegar okkur var farið að langa í bæinn reyndum við allir að redda fari, en það tókst ekki, þannig ég hringdi bara og pantaði stóran leigubíl. Leigubíllinn var eldsnöggur á staðinn og vorum við fyrir utan þegar hann kom. Svo þegar hann var að keyra okkur spurði einhver af okkur hann hvort hann hafi hent einhverjum út á miðri leið, og sagði hann já. Hann hafði þá verið að skutla tveim hommum einu sinni, sem voru að tala um hver ætti að sjúga hann fyrir farinu, og fékk hann nóg af þeim og henti þeim út... og rukkaði þá fyrir farinu! Snillingur!

Þegar við komum niður í bæ, tók Jói upp veskið. Meiri háttar höfðingi að splæsa á okkur farinu. Sumir fengu samviskubit og borguðu honum með peningum sem þeir voru með á sér, en við sem áttum ekki neinn pening, þökkuðum bara kærlega fyrir farið. Kjéllinn á bara inni greiða hjá mér!

Við röltum auðvitað beint á Sólon. Ég hitti Júlla Berserk og var hann svaka kátur. Vinir mínir voru alltaf að trufla mig í samtalinu við hann, þannig hann sagðist bara tala við mig seinna og fór. Það var víst eitthvað vesen með Jóa og inngöngu á Sólon. Hann var með önnur skilríki og þar var hann '81 módel, og tók Siggi ekki í mál að hann væri fæddur '81, þ.e. 4 árum eldri en við. Svona er að vera babyface.

Jói, Heiða, einhver stelpa og Helgi. Allir voða kátir!


Eftir langar viðræður við Sigga gaf hann sig sko ekki! En svo þegar Siggi skreppur eitthvað inn, laumum við Jóa í röðina og var honum hleypt inn af einhverjum öðrum gaur en Sigga. Svo þegar Jói var að labba inn kemur Jói og hendir honum út. Djöfull var þetta leiðinlegt, en við gátum ekkert gert. Siggi ætlaði sko ekki að gefa sig. Jói sagðist þá bara fara og finna vini sína einhverstaðar og djamma með þeim. Okkur fannst þetta mjög leiðinlegt og kvöddum Jóa með tárin í augunum.

Svo förum við inn á Sólon og skellum okkur beint upp á dansgólfið. Ég byrja á því að taka myndir af öllu fólkinu þar. Það er erfitt að dansa við þrjá aðila í einu, sem vilja ekki dansa saman. Ég þurfti að dansa við Eygló, Helga og Elfu. Það var ekkert auðvelt, þar sem þau vildu sko ekki dansa öll saman, þannig ég varð að flakka á milli. Svo reyndi ég mjög mikið að dansa við Elfu og vinkonu hennar, en Eygló var alltaf að stela mér frá henni. Svo fórum við á barinn og fengum okkur að drekka og svona eftir dansinn. Það kom samt að vatnsglasinu, þar sem við vorum bæði orðin svolítið full.

Svo seinna um kvöldið eftir sveittan dans, fer Helgi, þar sem hann var að fara að vinna um morguninn. Við kveðjum hann og förum á barinn til Gumma. Hann gaf mér Aygo. Takk, kallinn minn. Svo fórum við bara að dansa meira og ég gef Elfu að smakka Aygo í fyrsta skipti á ævi sinni. Hahaha, ég held henni hafi bara fundist hann góður.

Við dönsum þarna, en svo sé ég allt í einu frekar leiðinlega sjón. Þá var Eygló að kyssa eitt glasabarnið á Sólon. Það var frekar ófögur sjón, þar sem hún var gjörsamlega á rassgatinu og hann var edrú. En hann var alveg sætur, þannig þetta var allt í lagi.

Eftir að Sólon lokaði fór ég á barinn og bað Gumma um far heim og þá sagði hann bara nei og sagðist ætla að fara með stelpunni á barnum heim. Hahaha, sem betur fer var kallinn bara að djóka. Stelpan segir mér bara að róa mig og gefur mér Carlsberg í gleri. Ég róa mig auðvitað og fer bara með Grétari og Jónasi niður og bíðum þar.

Svo allt í einu byrja ég að finna rosalega mikið á mér. Þetta gerist alltaf í lok kvöldsins, þá bara er ég nánast að deyja, þannig ég fór út í frískt loft og dróg Grétar og Jónas með. Ég bið svo Grétar um að koma á Hverfis, en hann nennir því ekki. Ég tuða aðeins í honum og að lokum gefur hann sig, en með því einu skilyrði að ég skalli eitthvað umferðarskilti þarna. Þá þegar Grétar lítur undan, þykist ég skalla skiltið, þ.e. ég kýli í það og þykist vera geðveikt illt í hausnum eftir að hafa "skallað" það. Grétar trúði mér ekki og skallaði mig! Hann ætlaði að skalla mig í ennið en hann rann í nefið á mér, þannig mér verður geðveikt illt. Fyndið grín!

Við röltum svo á Hverfis, en hann er lokaður. Þá ætlum við að kíkja á Celtic Cross og Ellefuna, en þeir eru líka lokaðir. Þannig við röltum bara eitthvað og hittum Heiðu, Sigga dansara og Hauk, sem var að vinna með mér í Bónus Video. Þau voru öll vel hress. Ég fæ húfuna hjá Heiðu lánaða og geri hlut sem ég sé geðveikt eftir. Ég var bara ógeðslega fullur, þannig ég vissi ekkert hvað ég var að gera.

En svo seinna sé ég að Grétar er að rökræða við einhvern gaur. Ég fer að þeim og kemst þá að því að gaurinn haldi því fram að geta tekið 180 kg í bekkpressu. Ég og Grétar teljum það vera kjaftæði, þannig ég skora á gaurinn í sjómann. Hehehe, ég og sjómaður! Gaurinn kemur í sjómann við mig og skíttapar! 180 kg segiru? Gaurinn byrjar bara að afsaka sig og eitthvað. Þetta var of fyndið.

Svo líður tíminn og Gummi kemur brunandi niður laugarveginn. Við stökkvum inn í bílinn hans og spyrjum af hverju hann hafi ekki hringt, og segist hann þá ekki hafa átt inneign og hafi verið heillengi að leita að okkur. Sorry, kallinn minn. Næst skulum við bara vera inni eða fyrir utan Sólon.

Svo brunuðum við á Subway í Ártúni, þar sem ég eyddi síðustu peningunum mínum í mat. Svo skutlaði Gummi okkur bara heim og ég fór beint að sofa. Takk æðislega fyrir farið, Gummi minn, og takk æðislega fyrir kvöldið, strákar.

Svo vakna ég ógeðslega þunnur á laugardaginn. Ég svaf ríkið af mér, þannig ég átti ekkert áfengi. Ég kíki samt í partý til Helga og fæ bjór lánaðan hjá pabba. Þeir sem voru í partýinu hjá Helga voru: Ég, Helgi, Grétar, Oddur, Jökull, Gummi og Steini. Þetta var fínt kvöld, þar sem við sungum bara og spiluðum á gútarinn.

Allir voða kátir heima hjá Helga... Frá vinstri: Jökull, Gummi, systir Helga, Steini og Helgi með gútarinn


Svo þegar við okkur langaði niður í bæ, hringdum við í Jónas og það fyrsta sem hann spurði var: "Á ég að skutla ykkur?". Kallinn vissi að við værum í neyð. Þannig hann kom og skutlaði okkur. Steini var reyndar edrú á bíl en við vorum svo margir, þannig við þurftum annan driver. Jökull fór bara heim, þar sem hann var eitthvað slappur greyið og nennti ekki í bæinn.

Við byrjuðum á Sólon, en þar sem staðurinn var troðfullur af einhverju grunnskólapakki, ákváðum við að við skyldum ekki vera þar þetta kvöld. Við fórum út og hittum Gumma og Helga. Við skelltum okkur þá á Q-bar, þar sem Gummi þekkir eigandann þar. Við vorum nú ekki lengi þar, þar sem það lokaði eitthvað hálftíma eftir að við komum þarna. Við hittum samt Jóa, sem er nýkominn frá Kung-Fu æfingabúðum í Kína. Kallinn var auðvitað eldhress að vanda. Velkominn heim, kall. Hann sagði að ef hann hefði ekkert að gera í Kína, hefði hann alltaf skoðað bloggið mitt. Hehehe, gott að vita að einhver les þetta ennþá.

Eftir Q-bar fóru Helgi og Gummi bara á Sólon, en ég, Grétar og Oddur fórum á Hressó. Það var nú dúndurfjör þar, en því miður komst Jói ekki inn, þannig Grétar fór með honum og reddaði honum inn á Sólon. Á meðan Grétar var að redda Jóa, fórum við Oddur á trúnó.

Þetta var æðislegt kvöld, og vil ég þakka Oddi kærlega fyrir alla bjórana og öll skotin sem hann bauð okkur upp á. Við hittum líka snarklikkaða gellu, sem heitir víst Ása, og reyndi alltaf að kyssa mig. Hún settist í sætið hans Odds, á meðan hann var á klósettinu, og um leið og hann kom aftur, neitaði hún að fara úr sætinu. Ég beið henni þá bara að setjast á lærið mitt og gerði hún það, þannig Oddur fékk sætið sitt aftur. Svo hitti ég vinkonur hennar og spurði þær hvort hún væri bara svona skrítin eða hvort hún væri bara ógeðslega full, og sögðu þær að hún væri bara svona ógeðslega full. Hehehe, það hlaut að vera.

Svo eftir gott trúnó, spjall og rólegheit skelltum við okkur á dansgólfið. Ég mætti Rebekku á leiðinni á dansgólfið, en hún var eitthvað að drífa sig, þannig ég sleppti því að heilsa. Við fórum þarna á dansgólfið og lentum í einhverjum 3ja metra háum gaur. Hann var dansandi eins og hann væri einn á dansgólfinu og var Grétar ekki að fíla það, þannig hann dansaði svolítið utan í honum. Þá hrinti gaurinn Grétari og það virtist ætla að enda með slagsmálum, en ég og Oddur stoppuðum það, ásamt hjálp vina gaursins. Meira ruglið.

Svo eftir að Hressó lokaði fórum við bara út. Þar hitti ég Gulla gaulza og Hörð SonnY, sem eru dyggir Live2Cruize unnendur. Þeir voru eldhressir að vanda. Gulli var með tvo bjóra í rassvasanum og hjálpaði ég honum að opna þá. Ég fékk auðvitað nokkuið marga sopa. Við fórum bara að bulla í einhverju fólki, aðallega Gulli þó. Svo endaði með því að við sáum einhvern dauðan gaur á bekknum þarna, og varð Gulli auðvitað að cockslappa greyið kallinn. En það var ógeðslega fyndið og náði ég mjög góðri mynd af því.

En svo eftir þetta allt saman ákváðum við að drífa okkur bara heim. Við fórum á Lækjartorg og þar hitti ég Margréti, fyrrverandi kærustuna mína, og aðra Margréti, sem er vinkona mín. Hahaha, tvær Margrétur á sama staðnum. Svo tókum við bara taxa heim og fórum að sofa. Þetta var fínt kvöld. Takk æðislega fyrir það, Grétar og Oddur.

Svo í gær á sunnudag vaknaði ég bara ógeðslega þunnur. Gummi og Hildur komu með Kristján litla og nýfædda drenginn, sem var 2ja vikna á sunnudag. Algjör rúsína! En svo var Jói frændi í kaffi á flotta Honda Shadow 1100cc, sem er ekkert smá tæki! Hann skutlaði mér út í sjoppu og aftur til baka á hjólinu, sem var geðveikt fjör! Djöfull var þetta gaman. Ég verð að drífa mig í að kaupa mér hjól og taka mótorhjólapróf!

Svo seinna um kvöldið fóru ég, mamma og pabbi í mat til Ellu systir og Gumma kærastanum hennar. Þar fengum við kjúkling í einhverri geðveikt góðri gulri sósu (ekki karrý) og var það alveg himneskt! Takk æðislega fyrir þetta frábæra matarboð, elskurnar mínar.

Eftir að því lauk skruppum við Kamil á rúntinn. Hann var í grendinni þegar ég kom heim, þannig við tókum nokkra laugara og fórum svo bara heim. Strax og ég kom heim fór ég að sofa, þar sem ég var að deyja úr þreytu, en ég náði nú ekkert að sofna, þannig ég fór bara í tölvuna. Svo klukkan 3 fór ég aftur í rúm og reyndi að sofna, en ég sofnaði ekki fyrr en 5 eða eitthvað.

Svo í morgun núna á mánudegi vaknaði ég ógeðslega þreyttur. Jökull svaf aftur yfir sig, þannig ég hringdi í Grétar og bað hann um far. Hann kom brunandi til mín og náði ég á réttum tíma í skólann. Takk, Grétar minn.

En núna er þetta orðið svolítið langt hjá mér, þannig ég er að spá í að segja þetta bara gott í bili. En eins og þið vitið, þið sem þekkið mig, þá eru 10 dagar í bílprófið mitt! Hvað er það fyrsta sem ég ætla að gera þegar ég fæ prófið aftur? Jú jú, keyra hratt! Nei djók. Ég ætla að keyra löglega og reyna að vera punktalaus eins lengi og ég get.

En svona í lokin; Myndirnar sem ég tók um helgina bæði föstudag og laugardag, eru hérna! Bæjó!




Athugasemdir ():