Deila á Facebook
« Helgin 29. - 30. september | Aðalsíða | Gaui - Amazed »

Bíllinn kominn!
Skrifað miðvikud. 4. október 2006 - 12:47
athugasemdir skrifaðar - toppur / botn
Af hverju að blogga þegar dagurinn er ekki einu sinni búinn? Jú, það er út af því að ég hafði ekki tíma til að blogga í gær. Kannski ég bloggi bara aftur í kvöld? Hver veit?

En nýjustu fréttirnar eru þær að bíllinn minn er kominn úr viðgerðinni. Það þurfti að rífa olíupönnuna úr honum og sjóða í hana. Það gekk ekki að sjóða í hana, þannig þeir þurftu að smíða nýjan botn í pönnuna. Meira vesenið! Þetta kostaði mig 30.000 kr. Svo er eitthvað leiðinda brakhljóð í bílnum, en ég held það sé eitthvað sem snertir balancestöngina. Bílabras...vesen!

Sæti kisinn minn...



En ég var til 2 í gærnótt að skrifa fyrirlestur fyrir lífsleikni. Ég las hann svo fyrir bekkinn núna kl 8 í morgun. Djöfull gekk það vel. Kennaranum líkaði líka mjög vel við umræðuefnið, þar sem ég skrifaði um útlit, staðalmyndir og fordóma.

Svo kom ég bara heim og hér er ég niður kominn. Ég er að fara aftur í skólann núna eftir 40 min sirka, en ég ætla að hoppa í sturtu eftir smá stund.

En Dofri bauð mér á KF Nörd vs. FH á laugardalsvellinum kl hálf 8 í kvöld. Ég ákvað að þiggja boðið og sagði hann mér að hafa samband við einhvern gaur til þess að fá miða. Ég gerði það og reddaði hann mér 4 miðum. Ég býð Grétari, Helga og Gumma, en þar sem Jökull er að vinna kemst hann ekki með. Ég hefði samt getað reddað 5, þannig miðafjöldi var ekki vandamálið.

En núna ætla ég að drífa mig í sturtu og svo að skella mér í skólann. Segjum þetta ágætt í bili.




Athugasemdir ():