Deila á Facebook
« Gaui - Amazed | Aðalsíða | Felgukaup? »

KF Nörd vs. FH
Skrifað fimmtud. 5. október 2006 - 20:28
athugasemdir skrifaðar - toppur / botn
Ég fór í gær með Grétari, Gumma og Helga á laugardalsvöllinn, þar sem KF Nörd voru að keppa á móti Íslandsmeisturunum, FH.

Við mættum þarna upp úr hálf 8, en þá var allt orðið troðið. Fólk safnaðist þarna í kringum völlinn, en stúkan var troðfull. Fyrr um daginn reddaði vinur minn mér 4 miðum á leikinn, en svo þegar við komum þarna, þurfti enga miða til þess að horfa á leikinn. Það þurfti einungis miða til þess að fá að vera í stúkunni.

Ég var ekki beint sáttur við að vera með miða en ekki fá sæti í stúkunni, þannig ég fór að tala við einhvern sem sá um þetta, en þeir bentu alltaf á hvorn annan og gátu aldrei ákveðið sig hverjir sæju um þetta. Á endanum gafst ég bara upp við að reyna að komast í stúkuna og stóð bara þarna og horfði á leikinn með strákunum.

Seinna fóru Gummi og Helgi, en Gummi þurfti að fara á æfingu og Helgi þurfti ekki að gera neitt, hann bara nennti ekki að vera þarna. Ég og Grétar vorum bara eftir og horfðum á leikinn.

Hver leikhluti var 20 mínútur, þannig leikurinn í heildina var í kringum 40 mínútur. FH skoruðu 3 mörk á innan við 4 mínútum sem liðið var af leiktímanum, þannig við sáum að þetta efndi í rúst. En Nördarnir stóðu sig ágætlega í seinni hálfleik og endaði staðan í leiknum 11-5 fyrir FH, sem er alls ekki slæmt á miðað við það að FH eru Íslandsmeistarar og Nördarnir eru tiltölulega nýbyrjaðir.

En í dag gerði ég nú ekki margt. Vaknaði eldsnemma í morgun og fór í skólann. Svo eftir skóla fór ég með Jökli upp á Hlölla og við fengum okkur að borða, svo komum við í Augnablikk, sem er blikksmiðja, en kantarnir/hornin voru ekki tilbúin, þannig við fórum bara heim.

Þegar ég kom heim, kveikti ég á sjónvarpinu og þá var sápuóperan Mi Gorda Bella í fullum gangi. Ég settist og horfði spenntur á.

En það sem gerðist í þættinum var það að Olimpia, glæpakvendið, fann Pondoru og Jordi og reyndi að drepa Jordi, þ.e. skaut hann í öxlina. Þau héldu að hann væri dauður, þannig þau fóru bara með Pandoru á geðsjúkrahús, þar sem læknirinn ætlaði að drepa hana með því að fá hjúkrunarkonuna til að sprauta tvöföldum skammti af svefnlyfjum í hana, en svo þegar læknirinn fór, gerði hún það ekki. Valentina og Orestes eyddu nóttinni saman og eru yfir sig ástfangin af hvoru öðru.
Svo seinna hringdi Jordi í Franklin, vinnufélaga sinn, og fékk hann til að koma og hjálpa sér. Hann gerði það auðvitað.
Ariadna fór upp á spítala vegna blæðinga og þá komust foreldrar hennar (Olimpia og Juan Angel) að því að hún var ólétt. Hægt var að bjarga henni, en ekki barninu hennar. Einnig var "tekið hana úr sambandi".
Svo voru Roman og Lorenzo handteknir fyrir áfengissmygl. Orestes kemur svo í fangelsið og lemur Roman í klessu, þar sem hann gerði Ariödnu ólétta.

Það verður spennandi að sjá hvort þau nái að koma Olimpiu og undirtyllu hennar, Roque, í fangelsi. Ég þoli ekki þetta fólk. En það kom mér mjög á óvart þegar ég sá Valentinu (Natalia Steignard) mjóa, en hér er mynd af henni hvernig hún er í RAUN OG VERU:

Bara mjó og sæt


En eftir þáttinn steinsofnaði ég í sófanum. Ég er ábyggilega búinn að eyðileggja allar líkur á því að geta sofnað í nótt, þar sem ég svaf í einhverja 5 tíma. En núna er ég bara að læra fyrir sögupróf, sem er á morgun.

Segjum þetta ágætt í bili.

Lag dagsins:
Breaking Benjamin - Diary of Jane




Athugasemdir ():