Felgukaup?
Skrifað föstud. 6. október 2006 - 18:46Ég fór í skólann í morgun í tvö próf. Ég var nú ekki að taka skólatöskuna með, þar sem ég þurfti hana ekkert, þannig ég fór bara með pennaveskið. 
Eftir skóla fór ég bara heim og horfði á Mi Gorda Bella. Ég ætla nú ekkert nánar út í hvað gerðist í þeim þætti, þar sem ég vil nú ekki drepa lesendur mína úr leiðindum.
En svo kom Óli og sýndi mér nýju felgurnar á bílnum sínum. GEÐVEIKAR! 

Við fórum upp í Hjólbarðahöll, þar sem hann keypti sínar felgur og skoðuðum felgur. Svo datt honum í hug að fara að máta felgur undir minn bíl, en þar sem það var bara ein tegund til varð ég að prófa bara þær. Þær voru nú ekkert svaðalegar, en mun skárri en þær sem eru undir honum núna.

En já, þessar felgur eru á 40% afslætti, þar sem þeir eru að reyna að losa sig við chrome felgurnar, þar sem þeim tekst ekkert að selja þetta núna í vetur. Ég hefði sem sagt getað fengið 4x18" chrome felgur (eins og þarna á myndinni) á 59.760 kr. Það er nú ekki dýrt, en það þarf auðvitað að kaupa 18" dekk og er það dýrast í þessum pakka, og það er 80.438 kr., sem er sjúklega dýrt fyrir gúmmí!
En svo kom ég bara heim og fór í tölvuna. Núna í kvöld er víst hörkudjamm og ég er með bjór og læti, þannig það verður dottið feitt í það í kvöld.
Segjum þetta ágætt í bili, en allar myndirnar eru hér:
/img/cougar/06.10.06/
/img/mazda_oli/
Verið í bandi ef þið ætlið að djamma í kvöld.

Athugasemdir (