Deila á Facebook
« Helgin 6. - 7. október | Aðalsíða | Hausthlé »

Misútreikningur
Skrifað miðvikud. 11. október 2006 - 00:28
athugasemdir skrifaðar - toppur / botn
Jæja, bílprófið nálgast en ég hélt að ég ætti að fá það á miðvikudag, en ég fæ það víst ekki fyrr en á fimmtudaginn. Smá misútreikningur hjá mér. Ég gerðist líka svo sniðugur að vera á seinustu stundu að skila inn ökuskírteininu, þannig ég þarf að bíða til 4 með að ná í ökuskírteinið, en þá lokar skrifstofan einmitt. Ég held það sé örugglega þannig.

En á mánudaginn fór ég bara í skólann og svo heim. Seinna um kvöldið var Kamil svo góður að bjóða mér á rúntinn og þáði ég það. Takk æðislega fyrir rúntinn, Kamil.

Svo á þriðjudaginn fór ég bara í skólann eins og vanalega. Ég byrjaði á ömurlegum heimspekitíma, þar sem ég, Jökull og Gunnar kynntum verkefnið okkar um tækni. Við gerðum skýrslu um hvort hún væri slæm eða góð. Við fengum mjög góða einkunn fyrir það verkefni.

Svo eftir það fór ég í sögutíma. Við fengum að fá að vita úr prófinu sem við vorum í um daginn, en ég fékk nú bara 6,2. Ég er nú ekki vanur að fá svona lágt í sögu, en skýringin er sú að ég fattaði ekki að það væru spurningar á öftustu blaðsíðunni, þannig ég skilaði prófinu með það óútfyllt. Ég hefði getað fengið allt upp í 8. Æðislegt!

Eftir sögu fór ég bara heim og lagði mig. Svo kom Grétar og sótti mig og við fórum í þýsku. Þar horfðum við á video sem við tókum upp um daginn, þar sem við tókum svona viðtal við hvort annað. Það var geðveikt fyndið. Svo í lok tímast fengum við niðurstöðuna úr prófinu sem við vorum í um daginn, og fékk ég 4 úr því prófi. Þetta var ógeðslega erfitt próf og misskildi ég það heiftarlega, en ég get huggað mig við það að Grétar, Andri, Peppi, ofl. fengu bara 2.

En svo fór ég bara heim, fékk mér að borða og horfði á sjónvarpið. Fór svo bara í tölvuna og hér er ég búinn að vera, vinnandi í einhverju uppeldisfræðiverkefni um leikskóla. Verst að eftir mikil skrif fór rafmagnið af húsinu, þannig ég er hér allslaus. Ég klára þetta eftir skóla..

Ég er nefnilega að fara í heimsókn í leikskólann Klettaborg eftir skóla, þar sem ég á að skoða umhverfið og spyrja leikskólakennarana að ýmsum spurningum. Svo á ég að skrifa skýrslu um leikskólann og bera hann við Hjallastefnuna og aðalnámskrá leikskóla. Það er mjög stressandi að þurfa að hugsa til þess að ég þurfi að fara einn þarna á morgun og gera beina athugun á leikskólanum. Ég hef einu sinni gert beina athugun áður og það var í sálfræði 103, þar sem við Andri fórum og gerðum beina athugun á stefnuljósanotkun Íslendinga. Það var allt öðruvísi!

En núna ætla ég bara að fara að sofa og pirra mig aðeins meira yfir þessu bölvaða bílprófi. Segjum þetta gott í bili.




Athugasemdir ():