Fimmtudagurinn - Bílaþvottur
Skrifað föstud. 13. október 2006 - 18:21Jæja, fyrsti frídagurinn minn af 5 var í gær, þannig ég ætlaði að sofa út, en ég var vakinn kl 8 af pabba. Verst var að ég fór að sofa kl 6 þannig ég náði að sofa í 2 tíma áður en pabbi vakti mig. Tilgangurinn með vakningunni var að fara að sækja ökuskírteinið. 
Við pabbi brunuðum niður á lögreglustöð og viti menn, þá var það ekki þar. Ég þurfti að fara í Borgartún 7B til þess að sækja skírteinið. Við fórum þangað og ég fékk ökuskírteinið. Ekkert vesen. Ég bjóst alveg við því að konan hefði sagt mér að koma rétt fyrir kl 4, þar sem ég skilaði því á þeim tíma fyrir 3 mánuðum, en svo var ekki.
Pabbi skutlaði mér bara heim og ég fór á bílnum út á bensínstöð og fyllti bílinn af bensíni. Eftir það fór ég út í sjoppu og fékk mér pylsu og kók. Svo brunaði ég bara heim til Grétars.
Ég prófaði að hringja í símann hans Grétars, en Jökull svaraði. Þá hafði Grétar gleymt símanum sínum heima hjá Jökli kvöldið áður. Verst var að ég fattaði fyrst ekki að þetta væri Jökull sem ég var að tala við þannig, ég talaði við hann eins og þetta væri Grétar. En svo á endanum fattaði ég það. Ég fór svo bara heim til Jökuls og sótti símann hans Grétars.
Eftir það fór ég heim til Grétars með símann hans. Grétar var steinsofandi en mamma hans hleypti mér inn, þannig ég gat farið inn til hans og vakið hann.
Hann hundskaðist á lappir, fékk sér að borða og svona á meðan ég byrjaði að þrífa bílinn minn heima hjá honum. Á meðan þreif hann bíl fyrir einhvern kúnna. Svo þegar við vorum báðir búnir að þrífa bílana, sóttum við annan til að þrífa. Við þrifum hann saman.
Svo þegar við vorum búnir að þrífa þessa þrjá bíla, var klukkan orðin 6. Ég fór bara heim eftir það en stuttu síðar kom Grétar og sótti mig. Hann bað mig um að koma með sér að skutla mömmu sinni, skila bílnum og fara í ríkið. Ég var auðvitað til í það.
Svo skutluðum við mömmu hans út að borða, fórum svo heim til kauða sem var með bílana tvo sem við þrifum og fengum 10.000 kall hjá honum. Svo skunduðum við bara í ríkið og keyptum 2 kassa af bjór. Einn handa mér og einn handa Grétari. Svo skutlaði Grétar mér bara heim.
Eftir þetta fór ég bara heim til mín að borða og Grétar heim til sín. Ég kláraði að borða og fór svo bara í tölvuna. Svo þegar klukkan var orðin mjög margt fór ég á rúntinn. Ég hitti Kamil, Ívar og Danna á Hafnarbakkanum og settist aðeins inn í bláa Evo'inn hans Íbba og spjallaði við þá. Eftir það fór ég bara að rúnta með Kamil, eftir að hann var búinn að skutla Danna heim.
Við tókum bara nokkra laugara, spjölluðum og svona og svo skutlaði ég Kamil bara aftur að bílnum sínum. Á meðan Kamil var með mér sendi Gugga mér sms og bað mig um að koma á rúntinn. Hún vildi samt ekki koma á rúntinn fyrr en ég hafði BOÐIÐ henni með. Þ.e.a.s. það var ekki nóg að segja: "Jú, þú mátt koma" eða "Þú ert búin að fá það" (þ.e.a.s. boðið), nei nei, heldur þurfti ég að skrifa: "Ég er að bjóða þér á rúntinn. Þigguru það?". Hahaha, crazy.
Eftir að ég var búinn að ná í hana, fórum við bara heim til Jökuls. Þar voru Jökull og Grétar bara tveir eitthvað að einmanast. Við gjörsamlega hrisstum upp í þeim, en Grétar var nær dauða heldur en lífi þarna. Við sögðum honum bara að fara heim að sofa og hlýddi hann því.
Eftir að Grétar var farinn fórum við öll saman á mínum bíl að skutla Guggu heim. Eftir það fórum við Jökull bara á rúntinn, en ég var svo ógeðslega þreyttur, þannig við fórum bara heim. Á leiðinni heim stoppuðum við á Esso Ártúnsbrekku, þar sem Jökull talaði við Ásu, vinkonu sína. Þau voru svo lengi að tala saman að ég ákvað að bíða úti í bíl. Ég sofnaði úti í bíl og vaknaði þegar Jökull opnaði bílhurðina.
Við vorum búnir að vera svo lengi þarna að ég var orðinn svangur þegar Jökull vakti mig, þannig þar sem við vorum þarna ákváðum við að fara að fá okkur að borða á Subway þarna, þar sem það er nú opið allan sólahringinn.
Svo fórum við bara heim. Takk, Jökull og Gugga fyrir rúntinn. 
En svo núna áðan vaknaði ég áðan kl hálf 6 þegar Helgi hringdi í mig. Hann var bara í vinnunni að spá hvað við ættum að gera í kvöld. Djamm er auðvitað ofarlega á huga mér, þar sem ég er eiginlega kominn með leið á því að rúnta bara. Kannski er það bara út af því að það var fimmtudagur í gær og ekkert að gerast í bænum?
Helgi sagði mér að það hefði verið að fjalla um Amazed sönginn minn á X-inu, þar sem Freysi sagði að ég væri pottþétt samkynhneigður og eitthvað. Heh, Freysi þekkir mig ekki rassgat, þannig hann getur bara troðið fordómum sínum upp þar sem sólin aldrei skín. Helgi sagði líka að þeir hefðu verið að spá í því að spila þetta á X-inu, en hefðu þeir gert það, hefði ég ábyggilega getað kært X-ið, þar sem það er ólöglegt að spila efni einhvers annars án skriflegs samþykkis.
Svona pirrar mig. Einhverjir útúrpoppaðir rokkarar að segja mig samkynhneigðan. Ég hefði kannski frekar átt að taka Led Zeppelin, en það hefði nú bara verið hræðilegt, þar sem sú tegund af tónlist reynir ekki neitt á sönghæfileika.
En ég ætla að segja þetta ágætt í bili. Við hittumst eflaust á djamminu í kvöld.

Athugasemdir (