Helgin 13. - 15. október
Skrifað mánud. 16. október 2006 - 04:52Jæja, þá er vetrarfríið að verða búið. Ég er svakalega þreyttur eftir þessa helgi, en því miður tókst mér ekki að standa við það að djamma bara á laugardaginn. Það er alltaf eitthvað sem fær mig til að halda að ég sé að missa af einhverju á föstudeginum, en það er bara í hausnum á mér. Djammfíkill? Það má eiginlega segja það. 
En byrjum á föstudeginum. Ég hélt smá hitting hérna heima hjá mér, þar sem mamma og pabbi fóru yfir helgina í Reykjanesið. Það mættu nú flest allir nema Gummi, en hann var því miður að vinna.
Kvöldin eru öll svo svipuð að ég man ekki alveg hverjir voru þarna, en það voru allavega: Ég, Helgi, Grétar, Jökull, Eygló, Anja og Rúna. Svo kíktu Kamil og Danna í örstutta stund.
Svo komu einhverjar stelpur sem Grétar fékk ekki einu sinni leyfi fyrir að bjóða. Þessar stelpur voru nú ekki fegurstar þarna, en hvaða andskotans máli skiptir það? En jú, það voru allir að tala um það, sem mér finnst fáránlegt og sorglegt! En útlitið skiptir miklu, þó aðrir haldi öðru fram. M.a.s. ég er á móti því að fara eftir ytri-fegurð, en ég geri það samt! Hvað er að mér? Ég vil ekki vera grunnhygginn!
En þessi pæling er pottþétt efni í aðra færslu, þannig ég ætla ekkert nánar út í þetta.
En við vorum allavega heima hjá mér. Svo ætluðum við að fá einhverja fleiri með okkur og "slysaðist" ég til þess að senda stelpu sms, sem ég hafði ekki talað við lengi. Hún sendi til baka og sagði mér að hætta að senda henni sms og sagði mér að eyða sér út af MSN. Það var ógeðslega sárt að fá þetta framan í sig og tók það mig smá stund að hætta að hugsa um þetta og koma mér í "gírinn" aftur, en með hjálp Grétars og skítkastsins frá Helga, tókst það að lokum. Djöfullinn sjálfur. En það var nú ekkert sérstakt við þetta blessaða kvöld, þar sem við fórum bara í bæinn og svo heim. Bara venjulegur föstudagur, hundfúll og leiðinlegur. Grétar endaði með að vera of fullur, með fyllerísleiðindi ofl. og svo skutlaði Gummi okkur heim. Takk æðislega fyrir farið, Gummi. Þú veist allavega að ég met það mikils hvað þú gerir fyrir okkur, og finnst það engan veginn sjálfsagt. Elska þig, kall.
Laugardagurinn var mun skárri! Ég vaknaði ógeðslega seint og frekar þunnur. Ég byrjaði bara strax á því og ég vaknaði að henda pizzu inn í ofninn. Dofri talaði við mig á MSN og spurði hvort ég væri upptekinn, þar sem hann var að klára að vinna á ljósastofunni og ætlaði að skella sér í einn tíma, og ákvað að vera svo góður að bjóða mér í tíma líka. Auðvitað þáði ég þetta yndislega boð hans. Takk æðislega fyrir, Dofri minn.
Svo fór ég bara heim skaðbrunninn á rassinum!
Skellti mér í sturtu og svona áður en fólkið ætlaði að koma. Eini gallinn við þetta var sá að ég gleymdi pizzunni í ofninum en sem betur mundi ég að slökkva á ofninum, þannig pizzan var bara smávegis brunnin, og vel hægt að borða hana af bestu lyst. Svo seinna komu Helgi, Steini, Andri og Elli. Grétar ætlaði að sleppa því að djamma þetta kvöld, þar sem hann var að fara í skírn hjá frænda sínum. Drengurinn var skírður Grétar Atli, alveg eins og frændi sinn, og vil ég óska Grétari innilega til hamingju með nafnið á litla frænda sínum. 
Svo seinna komu einhverjar 3 vinkonur Steina. Um leið og þær komu fórum við bara strax yfir til Jökuls, þar sem hann var með eitthvað íbúðarbreytingar-partý. Það var nú múgur og margmenni þar, en m.a. ég, Jökull, Helgi, Steini, Andri, Elli, Eygló, Gugga, Kata, systir Kötu, Rúna, Anja, vinkonur Steina, ofl. Ég skemmti mér konunglega hjá Jökli og vil ég þakka kærlega fyrir mig, og vil í leiðinni segja að ég er hæst ánægður með breytingarnar á íbúðinni.
Svo seinna um kvöldið kom Jói og vinur hans. Þegar við ætluðum niður í bæ fengum við far hjá vini hans Jóa. Þegar við komum niður í bæ fórum við bara á Sólon.
Strax og ég kom á Sólon byrjaði eitthvað vesen uppi. Ég var alveg nógu ölvaður til þess að grípa inn í, þannig ég gerði það. Það voru einhverjir 2 gaurar með einhverjar ýtingar og eitthvað þannig ég fór bara á milli þeirra, en svo kom í ljós að þessi gaur sem ég "tók í" var bara fínasti náungi. En það tókst samt að stoppa þetta vesen áður en það gekk lengra, sem er bara besta mál. Harður gaur.
En svo fór ég bara að dansa og eitthvað. Ég man að ég og Eygló tókum nokkur vel valin spor, en þar sem það var svo ógeðslega þröngt þarna var það enginn barnaleikur.
En okkur tókst allavega að dansa eitthvað, sem var bara gaman.
Svo fór ég bara niður með Eygló og settumst við niður. Svo fór hún eitthvað en kom ekki aftur. Geðveikt.
Ég sat sem sagt bara þarna með bjórinn hennar Eyglóar við eitthvað borð með einhverjum stelpum og Dabba Grensás fyrir aftan mig.
Svo komu Helgi og Jökull og þeir og við fórum eitthvað út fyrir með Halla. Þá hitti ég Óla hvíta og var hann hress með einhverjum stelpum. Strákarnir mönuðu mig og eina af þessum stelpum að kyssast, veit ekki af hverju, en svo kom Óli og fór í feitan sleik við hana. Hahaha!
Svo fórum við eitthvað til baka og ætluðum á Sólon aftur en þá hitti ég Lísu og var hún hress með vinkonu sinni. Hún sagði eitthvað við Jökul og hann varð geðveikt pirraður út af því. Skiljanlega, þar sem þetta var rangt sem hún sagði, en það skiptir ekki máli.
Svo fórum við bara aftur á Sólon að dansa. Svo lokaði Sólon og við ætluðum að setjast í hvíta sófann, þar sem við sitjum alltaf eftir að annað hvort Gummi eða Eygló eru búin að vinna svo við getum fengið far með þeim, en Benni, dyravörður á Sólon, sagði að það væri ekki svoleiðis lengur að maður gæti bara beðið í hvíta sófanum eftir starfsmönnum, þannig við fórum þá bara út. Ég, Helgi, Jökull og Halli röltum þá á Hlöllavagninn og keyptum við okkur að borða. Ég lánaði Helga fyrir bát. Svo þegar búið var að strauja kortið mitt langaði okkur svo í kók og bað ég Júlíu um að gefa okkur tvær kók, og gerði hún það. Takk, Júlía.
Á meðan við biðum eftir Gumma og vorum að borða Hlöllabátana okkar ákvað ég að skýla mér frá rigningunni með því að fara inn í símaklefann þarna fyrir aftan Hlöllavagninn, og þá þurftu allir að troða sér inn í símaklefann. Við vorum sem sagt 4 inni í þessum helvítis símaklefa. Þetta var mjög gaman.
Svo röltum við aftur fyrir utan Sólon og biðum eftir Gumma þar. Ása, vinkona Jökuls, kom og beið þarna með okkur.
Svo þegar Gummi var búinn að vinna röltum við að bílnum hans. Við vorum 6 með Ásu, þannig Jökull vildi fara í skottið, en Gummi tók það ekki í mál. Jökull varð þá geðveikt pirraður. Ég skil alveg afstöðu Gumma í þessu máli, þar sem þó að þetta sé á Jökuls ábyrgð að vilja vera í skottinu, gæti Gummi aldrei fyrirgefið sjálfum sér ef bíll myndi keyra aftan á sig og Jökull myndi deyja. Þar sem það er ekki spurningin um hvort hann myndi slasast, heldur hversu alvarlega. En ég skil alveg Jökul hálfpartinn líka, þar sem af hverju leyfum við honum alltaf að vera í skottinu ef Gummi er ekki að keyra? Er það eitthvað öðruvísi þá? Myndi hann slasast minna þá? Nei, þetta er bara kæruleysi hjá okkur og ekkert annað, þar sem við erum fullir en Gummi hafði sense fyrir þessu þarna, þar sem hann var edrú. Flott hjá þér, Gummi.
En þetta var leiðinlegt, þar sem Ása fór fúl í burtu og ætlaði Jökull á eftir henni en hún var horfin. Gummi hefði getað sleppt því að taka Jökul upp í bílinn eftir þetta, en hann stoppaði fyrir honum og hleypti honum. Hvað gerir maður ekki fyrir vini sína?
En þetta var frábært kvöld og frábært að djamma með Halla, þar sem hann er einskær snillingur.
En allavega, takk fyrir kvöldið allir, og takk æðislega fyrir farið, Gummi minn. 
Á sunnudaginn vaknaði ég ógeðslega seint en voða lítið þunnur. Ég var með ógeðslega mikið af missed calls og sms'um, þar sem fólk hélt ég væri dáinn.
Ég fékk m.a.s. nokkrar hringingar frá Dóru. Elskan ætlaði að leyfa mér að prófa BMW of my dreams, en ég var því miður sofandi. Við gerum það bara seinna, en takk æðislega fyrir að muna eftir þessu. 
Seinna hringir Helgi í mig og spyr hvort hann og Gummi megi koma yfir til mín og drekka geðveikt mikið af bjór áður en við færum í bíó. Ég samþykkti það auðvitað, þar sem það er ekkert skemmtilegra en að hanga með þessum snillingum. Þeir komu og byrjuðu að hella í sig, ásamt því að Grétar og Herdís komu. Ég sagðist fyrst ætla að vera á bíl og þeir gætu drukkið, en svo kom Herdís, sem ætlaði líka að vera edrú á bíl, þannig ég ætlaði að drekka, en ég hætti svo við það. Veit ekki af hverju.

En Jackass 2 var ógeðslega góð! Ég held ég hafi aldrei hlegið jafn mikið í bíói. Við ætluðum fyrst að sjá Borat, en hún er ekki komin í almenna sýningu, þannig við ákváðum bara í staðinn að fara á Jackass 2. Ég sé allavega ekki eftir því. Strákarnir voru svo góðir að þeir tóku bjór með sér í bíóið þannig þeir voru geðveikt kátir á meðan myndin var.
En ég vil allavega bara í lokin þakka öllum fyrir helgina og strákunum fyrir bíóið í kvöld. Elska ykkur.
En þetta er orðið allt of langt hjá mér, þannig ég ætla bara að slútta þessu núna!
Djöfull get ég skrifað! 
Lag helgarinnar:
Rednex - Old Pop In An Oak

Athugasemdir (