Deila á Facebook
« Helgin 13. - 15. október | Aðalsíða | Opera & Eintal »

Byrjaður í ræktinni aftur
Skrifað þriðjud. 17. október 2006 - 20:50
athugasemdir skrifaðar - toppur / botn
Í gær fór ég í kaffi til vinar míns. Ég hef alltaf ætlað að hitta hann, en ég var próflaus í 3 mánuði þannig ég gat ekkert hitt hann. Ég fór til hans um 12 leytið um miðnætti og kom heim kl 3. Mamma og pabbi héldu að ég væri kominn út úr skápnum, þar sem ég fór til VINAR míns í 3 klukkutíma um hánótt. Hahaha! Ég hafði bara ekkert að gera og nennti ekki að vera í tölvunni, þannig ég ákvað að heilsa aðeins upp á hann, sem ég hef ekki gert lengi.

En í dag mætti ég bara í skólann. Ég fór í heimspeki í fyrsta tíma, þar sem kennarinn var með svona heimspekikaffihús. Það er víst eitthvað þar sem maður kemur með skoðanir sín og rökfærslur með þeim o.s.frv. og svo rökræðum við um það. Það komu nú ekki dýpri umræður en um Bandaríkin og hvað þeir ofgerðu þessum leitum þegar maður væri að fara í flug hjá þeim.

En skólinn var fínn. Ég mætti í heimspeki, sögu, fór svo í gat og mætti svo þýsku. Í gatinu fórum við Grétar í World Class. Ég sagðist ætla að byrja í ræktinni strax og ég fengi bílprófið og gerði ég það. Núna er ég kominn með 2 mætingar. Ég þarf 22 mætingar svo ég fái 5 í áfanganum, enda er ég mjög sáttur við það. Ég þarf sem sagt bara að mæta 8x í viðbót í 70 mínútur í senn, þar sem ég fer pottþétt í Elliðárdalsgönguna og fyrir hana fæ ég 5 mætingar, þannig þetta reddast.

En í ræktinni tókum við feitt á því. Við æfðum axlir og brjóstkassann. Við byrjuðum á því að labba og skokka en svo fórum við í bekkinn þar sem við tókum stöngina eina og sér 20x. Þetta var samt ekki venjuleg bekkpressa, þar sem þarna fórum við niður með stöngina alveg að hökunni og vorum með olnbogana fyrir neðan bekkinn, þannig þetta reyndi rosalega á kassann. Þetta var rosalega hressandi. Við hittum líka Sigga Svans, þar sem hann var að taka hressilega á því.

Svo eftir World Class skelltum við okkur á Subway og fengum okkur 12" skinkubáta. Maður verður nú að borða eftir svona hressilega æfingu. Svo komum við okkur bara í þýsku. Svo fórum við bara heim.

En núna áðan þegar við fjölskyldan vorum við matarborðið (reyndar bara ég, mamma og pabbi, þar sem Ella er flutt út), þá vorum við að tala um flugprófið hans pabba, þar sem hann var í soloprófi í dag og náði hann því með glæsibrag. Hérna er samtalið:

Ég: Ætlaru núna ekki að taka atvinnuflugmanninn, pabbi?
Pabbi: Nei, ég býst nú ekki við því.
Ég: Af hverju ekki? Þá gætum við farið til útlanda í hverjum mánuði.
Mamma: Hann getur nú flogið með okkur til útlanda í lítilli rellu.
Ég: Hún kæmist í mesta lagi til Grænlands.
Mamma: Já, hvernig væri nú ef við myndum fara til Súlukúk?

Ef þig fattið ekki grínið, megið þið alveg lesa undirstrikaða orðið betur, þar sem höfuðborgin í Grænlandi heitir Kúlusúk, en mamma hélt hún héti Súlukúk. Hahahahahaha. Það var ekki lítið hvað við köfnuðum úr hlátri við þetta!

En allavega, til hamingju pabbi með að vera orðinn flugmaður!

En segjum þetta ágætt í bili.




Athugasemdir ():