Opera & Eintal
Skrifað miðvikud. 18. október 2006 - 23:59Ég fór í skólann í dag kl 8. Ég byrjaði á lífsleiknitíma þar sem leikstjóri í íslensku óperunni kom til okkar og hélt fyrirlestur um óperur. Þessi fyrirlestur var svei mér fróðlegur, þar sem ég kynntist Töfraflautunni, undraverkinu eftir Mozart. Algjör snilld.
Í tímanum hlustuðum við á Pavarotti, Mariu Callas (nú veit ég hvar Hulda fékk gælunafnið sitt), ofl. óperusöngvara. Þetta var bara helvíti fróðlegt og skemmtilegt. Ég hugsa að ég sé hættur að vera svona andvígur óperutónlist héðan í frá. Ágætis afþreying bara.
Eftir tímann fór ég bara heim og lagði mig. Því miður svaf ég yfir mig þýsku, en það er allt í lagi, þar sem ég er með mjög góða mætingu þar. Svo vaknaði ég fyrir uppeldisfræðitímann og brunaði í skólann.
Í uppeldisfræði horfðum við á Eintal með Stefáni Karli. Eintal er 90 mínútna myndband sem Stefán Karl bjó til, þar sem hann heldur fyrirlestur um hvað foreldrar eru að gera rangt í uppeldinu. Djöfulsins snillingur er þessi maður, þar sem ég er sammála öllu sem hann segir í þessum fyrirlestri.
Hann talar t.d. um að það að krakkar læri það sem fyrir þeim er haft. Með þessu meinar hann t.d. þegar foreldrar blóta á heimilinu. Frá ungaaldri læra krakkar þetta og nota svo t.d. í skólanum. Svo þegar krakkinn notar blótsyrðin heima við, halda foreldrar þess að það hafi lært þau hjá krökkunum í skólanum, en svo var það frá þeim sem krakkinn lærði þetta.
Þetta er ekki eini punkturinn í þessu, heldur kemur hann með endalaust marga punkta. Þ.á.m. að foreldrar hafi engan tíma fyrir börnin sín. Þ.e. að börnin eru í leikskólanum til 5, svo koma þau heim, foreldrarnir setja þau fyrir framan sjónvarpið að horfa á barnaefnið til 6, svo bara matur og svo beint í háttinn kl 8. Þetta er sem sagt í mesta lagi 2 klukkutímar sem foreldrarnir eyða með börnunum sínum. 5-6 er barnaefni, svo 6-7 matartími og svo 7-8 fréttir, svo bara 8 háttatími hjá börnunum.
Hann sagði einnig að foreldrar nota ekki virka hlustun á börnin sín. Þ.e. að þau segja bara "já já" en HLUSTA ekki. Virk hlustun er þegar maður hlustar almennilega og forvitnast um það sem maður er að heyra, t.d. með því að spyrja á móti, ræða efnið betur, o.s.frv.
Hann heldur því bara fram að ástæðan af hverju fólk er að eignast börn sé vegna sýniþarfar. Ég skil ekki alveg hvað hann meinar með þessu, en það er nú eitthvað til í þessu hjá honum.
Hann hefur víst mikla reynslu á bak við þetta allt saman, þar sem hann hefur farið í fjölmargar vitjanir til barna og talað við þau, ásamt því að hann var lagður í einelti þegar hann var lítill.
Ég ráðlegg ykkur hiklaust að sjá þetta video með honum Stefáni Karli. Þetta er alls ekki leiðinlegt eins og flest svona fræðsluvideo, þar sem hann notar "stand-up" hæfileika sína til þess að gera þetta áhugavert og fyndið.
En svo eftir skóla fór ég bara heim. Aron, sem kennir okkur uppeldisfræði, gaf okkur frí í tímanum á morgun, þar sem við unnum þetta verkefni í sambandi við fyrirlesturinn hjá Stefáni Karli. Hinir krakkarnir voru í þessari leikskólaheimsókn, þannig þau þurfa að mæta á morgun.
UPPFÆRT 02:16
Í allt kvöld hef ég haldið að uppeldisfræði væri fyrsti tíminn minn á morgun, þannig ég ákvað að fara svolítið seint að sofa, út af því að ég hélt ég þyrfti að mæta kl 10, en svo var ég að athuga stundatöfluna núna og þá sé ég að saga er fyrsti tíminn og uppeldisfræði annar tíminn! Þetta er helvítis vesen og þýðir það að ég þarf að vakna eldsnemma í fyrramálið og mæta í þennan eina tíma. Arg!

Athugasemdir (