Hættur að reykja
Skrifað föstud. 20. október 2006 - 18:08Þá er komið að því. Ég er hættur að reykja í bili. Ég hef bara ekki efni á þessu lengur, þar sem ég er ekki í neinni vinnu og fæ enga innkomu.
Það er alveg hræðilega erfitt að vera í skóla og ekki í neinni vinnu, þannig allt sem maður gerir má ekki kosta krónu. Ég skulda símareikninginn fyrir síðasta mánuð, ég á ekkert bensín á bílinn, ég á ekki pening til þess að djamma, ég á ekki pening til þess að reykja, ég á bara engan pening! Þetta er hræðilegt ástand. Ég skulda m.a.s. nær öllum vinum mínum pening. Þó það sé nú ekki lágar upphæðir, þá skulda ég samt og það er ömurlegast í heimi að skulda einhverjum eitthvað!

Vandinn er sá að mig langar ekkert til þess að hætta að reykja, en samt verð ég að gera það. Ég ætla að hætta núna þangað til ég er kominn með ágætt þol og byrja svo kannski aftur ef mig langar þegar ég fæ vinnu og einhverja peningainnkomu. Kannski ég fái mér bara að reykja á fylleríum héðan í frá, þ.e.a.s. þegar ég er kominn í vinnu og á pening.
En varðandi planið um helgina, þá ætla ég ekki að gera neitt í kvöld. Ég á 10 bjóra og ætla ég bara að drekka þá á morgun. Eftir það á ég ekkert áfengi og engar sígarettur og fæ ekkert fyrr en ég fæ mér vinnu. Ég er samt búinn að sækja um vinnu og var m.a.s. boðaður í atvinnuviðtal á miðvikudaginn næsta.
En núna ætla ég bara að leggja mig eða eitthvað og vona að þetta kvöld verði fljótt að líða, þar sem ég veit að þetta reykingaleysi á eftir að verða helvíti eftir nokkra tíma og næstu daga. Best að sofa bara sem mest, þar sem á meðan maður sefur finnur maður enga þörf fyrir sígarettu.
En allavega, segjum þetta ágætt í bili.

Athugasemdir (