Föstudagurinn - Videokvöld
Skrifað laugard. 21. október 2006 - 22:47Ég verð nú bara að segja að gærkvöldið hafi bara verið það sæmilegasta, þó ég hafi ekki farið neitt niður í bæ. Ég fékk mér samt að drekka en við Kamil slöppuðum bara af yfir sjónvarpinu. 
Ég byrjaði auðvitað kvöldið á því að hanga bara í tölvunni. Þegar klukkan var orðin 10 hringdi Kamil í mig og sagðist koma til mín eftir klukkutíma. Svo þegar hann kom skellti ég mér í sturtu og gerði mig fínan. Við byrjuðum bara að drekka og slappa af fyrir framan sjónvarpið og horfðum við á myndina Unstoppable með Wesley Snipes í aðalhlutverki.

Hún fjallar um Dean Cage (Wesley Snipes), fyrrverandi hermann, sem er sprautaður af eitri sem ber nafnið X.E. Það sem þetta eitur gerir er að láta hann ímynda sér allt sem er sagt við hann eins og það sé raunveruleikinn. Þetta er sem sagt sterkasta ofskynjunarlyf í heiminum. Hann er sprautaður af þessu ofskynjunarlyfi en áður en hann er fluttur til gaursins sem ætlar að heilaþvo hann með fölsuðum raunveruleika, er sagt eitthvað við hann, þannig hann byrjar að ímynda sér allt annan raunveruleika og getur því gaurinn ekki skipað honum fyrir. Myndin gengur bara út á það að hann og félagi hans, Amy Knight, reyna að ná mótefninu við eitrinu.
Þessi mynd heillar mig ekki nógu mikið sem spennumynd og fær því einungis 2 stjörnur af 5.
Eftir myndina komu Jökull, Helgi og Jói. Þeir voru þá búnir að fara niður í bæ og komnir aftur. Ég og Kamil ætluðum niður í bæ en við gátum ekki reddað okkur fari, þannig við höfðum það bara kózý, þömbuðum bjór og horfðum á sjónvarpið. Þetta var ágætis kvöld.
Síðasti möguleikinn til að redda fari var að hringja í Dofra, en ég vildi nú helst sleppa því, þar sem hann er búinn að gera manni allt of mikið af greiðum. Á endanum hringdi ég í hann en þá var klukkan orðin svo margt að Kamil ætlaði bara að fara heim. Dofri kom og Kamil fór með honum. Stuttu síðar fóru Helgi, Jökull og Jói bara heim og ég var einn eftir.
Ég horfði bara aðeins meira á sjónvarpið en það byrjaði svo spennandi mynd að ég varð að horfa á hana. Hún heitir Cradle 2 the Grave og er með Jet Li og DMX í aðalhlutverkum. Þessi mynd er algjör snilld!

Hún fjallar um Fait, sem leikinn er af DMX. Hann og félagar hans brjótast inn í banka, þar sem það eru helling af öryggishólfum. Þau stela helling af demöntum og smarögðum, en ástæðan fyrir því af hverju þau brutust inn var að ná í svarta steina, sem eru mjög mikils virði. Steinarnir voru upprunalega frá Taívan en þeim var stolið þaðan af glæpaklíku. Su, sem leikinn er af Jet Li, fréttir að Fait hafi stolið steinunum og eltir hann og reynir að ná steinunum af honum, en tekst það ekki. Seinna tekst glæpaklíkunni að ná steinunum af Fait, en með þeim er hægt að framkalla meiri orku en kjarnorku, og ætla þeir því að setja þessa steina á uppboð og selja æðstu vopnasölum í heiminum. Jafnframt því að hafa náð steinunum, tókst glæpaklíkunni að ná dóttir Fait, þannig hann og Su reyna að ná steinunum aftur og dóttir Fait og sigrast á þessari glæpaklíku.
Þessi mynd er mjög góð. Ég mæli hiklaust með henni, þeir sem hafa ekki séð hana. Snilldar leikarar, snilldar söguþráður, snilldar spennumynd. Hún fær því heilar 4 stjörnur af 5.
En svo eftir hana fór ég bara að sofa.
Ég var svo að vakna áðan kl 9 og skellti mér beint fram að elda mér pizzu. Skellti henni inn í ofninn og var að ljúka við hana. Mmmm! En núna ætla ég að skella mér í sturtu og heilsa upp á strákana, þar sem það er víst heljardjamm í kvöld. Grétar og Jónas fóru víst í sumarbústað með Kella og Hildi, þannig við erum laus við hann.
Jökull ætlar víst að vera edrú, þar sem hann er kominn með ógeð á því að drekka, þannig það eru bara ég, Helgi, Gummi og Kamil sem verðum að drekka. Spennandi! 
Segjum þetta ágætt í bili. Ég blogga svo meira á morgun um kvöldið í kvöld.

Athugasemdir (