Deila á Facebook
« Föstudagurinn - Videokvöld | Aðalsíða | Mýrin »

Laugardagurinn - Pælingar ofl.
Skrifað mánud. 23. október 2006 - 03:29
athugasemdir skrifaðar - toppur / botn
Jæja, þá er enn önnur helgin liðin og verð ég að segja að ég fæ alltaf meira og meira ógeð af þessu djammlífi. Þetta er farið að verða þannig að maður hugsar bara um að verða geðveikt fullur á eins stuttum tíma og maður getur, drífa sig í bæinn eins fljótt og maður getur, án þess að hugsa neitt út í hvernig maður kemst t.d. heim. Maður bara drekkur og drekkur, drífur sig í bæinn og svo þegar bærinn er að loka hugsar maður: "Andskotinn, ég er fastur niðri í bæ". Svona er þetta bara.

En laugardaginn byrjaði bara í rólegis náttfatatölvuchilli hérna heima. Ég fékk mér fyrsta bjórinn í kringum 12 leytið og það var þá sem fyrsta fólkið kom. Kamil, Jökull, Gummi og Gunni, vinnufélagi hans, voru þeir fyrstu sem kíktu til mín. Svo komu Helgi og Andri seinna og að lokum kom Jói. Helgi kom nú aldrei inn, þar sem hann fór bara heim að sofa, þar sem hann var víst of fullur til þess að meika meira.

Við slöppuðum bara aðeins af heima hjá mér, horfðum á sjónvarpið, drukkum bjór og spjölluðum saman. Þetta var bara fínt. Við skelltum okkur svo í bæinn. Gummi fór bara með Gunna, þar sem hann var edrú, og ég, Kamil og Jói fórum bara með Jökli. Svo þegar við komum niður í bæ, kíktum við aðeins á Sólon. Það var ógeðslega mikið af fólki þar og held ég að ég hafi aldrei séð svona stóra röð fyrir utan einn skemmtistað.

Gummi reddaði okkur í VIP og það var nú meira VIP'ið, þar sem við fórum bara inn bakdyramegin. Við erum sko að tala um alvöru VIP. Ég hef ekki hugmynd af hverju við þurftum að fara inn bakdyramegin. Kannski út af því að það væri svolítið asnalegt að hleypa helling af fólki í VIP og röðin myndi ekki hreyfast neitt. Fólkið í röðinni yrði sko ekki sátt. En við allavega komumst inn, það er fyrir mestu. En því miður var Siggi ekki til í að hleypa Jóa kallinum inn, en Jökull fór bara með honum, þar sem hann ætlaði ekki að skilja Jóa eftir. Æji, þetta var leiðinlegt.

Ég fór bara á efri hæðina með Kamil og bauð hann mér upp á vodka í Magic. Takk maður. Svo hitti ég Aron fulla, Ívar, Hjalta, Palla og Rafn. Svo fórum við bara á dansgólfið. Við stoppuðum ekkert lengi á Sólon, þar sem það var svo ógeðslega troðið þarna og hálf leiðinlegt bara. Við skelltum okkur aðeins á dansgólfið en þetta var sko ekki að gera sig. Ég hef aldrei séð þennan stað svona troðinn. Það er ömurlegt að geta ekki hreyft sig/dansað út af fólki og vona ég svo innilega að þetta verði ekki svona næst. Þetta var vonandi bara svona út af Airwaves.

En ég, Kamil, Ívar, Palli, Hjalti og Rafn fórum á Pravda. Það kostaði 1000 kall þar inn, og var Kamil svo góður að splæsa á mig. Ég vildi það ekki en hann gerði það samt. Óþolandi að geta ekki gert það sama til baka, þar sem maður er fátækur og atvinnulaus. En það kemur að því, ég lofa því, fyrr eða síðar. Við fórum upp á dansgólfið og dönsuðum. Það var einhver svaka DJ sem ég man ekkert hvað hét, en þetta var mjög gaman. Svo bauð Kamil mér aftur upp á vodka í Magic. Hættu!!!

Svo eftir mikinn dans þurfti Kamil að fara og týndi ég strákunum, þannig ég fór eitthvað að dansa einn og hitti stelpu sem hafði verið í röðinni fyrir framan mig í röðinni áður en við fórum inn, þannig við fórum eitthvað að dansa saman. Hún var nýhætt með kærastanum sínum, greyið. Svo leiddi hún mig niður í eitthvað VIP herbergi, þar sem við fórum bara að spjalla saman. Hún bauð mér upp á sígarettu og reyktum við þarna og spjölluðum saman. Svo var klukkan orðin korter yfir 6, þannig ég sagði við hana að ég þyrfti að fara, þannig hún gaf mér númerið sitt og ég fór svo.

Ég hljóp yfir á Sólon, þar sem Benni var svo elskulegur að hleypa mér fram fyrir röðina í VIP, þannig ég skottaðist inn. Ég hitti Arnar, félaga minn, sem er að vinna þarna á Sólon. Svo hitti ég Kollu, sem er MinnSirkus vinkona mín. Við fórum eitthvað að dansa en svo lokaði staðurinn. Við fórum þá bara niður og settumst í hvíta sófann. Dyravörðurinn sagði mér að fara út, en ég sagði bara nei og setti fæturnar upp á borð. Hann missti svo þolinmæðina og hótaði að ná í Sigga, þannig ég drullaði mér út að lokum.

Ég og Kolla hittum einhvern asískan gaur með helling af tréflautum. Það var sko svolítið mál að flauta með þeim, en maður þurfti spes tækni við það. Kollu tókst samt á endanum að flauta með þeim, en mér tókst ekkert, sama hvað ég reyndi. Svo urðum við svo svöng að við fórum á Hlölla og fengum okkur að borða, eða bara ég. Svo röltum við eitthvað og reyndum að redda fari, en ekkert gekk. Svo röltum við aftur í Hlöllavagninn og þá sagði Júlía, sem er að vinna þarna, ef við myndum bíða eftir Hlölla, gætum við fengið far með honum. Við ákváðum að gera það.

Svo kom Hlölli og náði í vagninn. Við fórum með honum upp á Höfða og hjálpuðum honum að þrífa boxin og tæma bílinn. Svo skutluðum við bara vagninum og svo skutlaði hann okkur heim. Djöfull var gott að komast heim.

Þetta var fínt kvöld, en svo á sunnudaginn vaknaði ég kl 10 um kvöldið og eldaði mér pizzu, þar sem ég var að deyja úr hungri þegar ég vaknaði. Svo komu Grétar, Helgi, Jökull og Jónas. Við settumst eitthvað fram í sólstofu og þeir reyktu vindla og ég bara sígarettu. Svo fóru Grétar og Jónas og Helgi og Jökull voru bara eftir, þannig við fórum bara að spjalla saman og horfðum svo á video'in frá Tenerife. Þetta var algjör snilld. Ég ætla að reyna að redda þeim á netið þannig þið getið líka horft á þau, þar sem þetta er eintóm snilld.

En á laugardagskvöldið hitti ég Mumma POSE.is. Djöfull bjóst ég ekki við því að hann myndi vita hver ég væri en hann ávarpaði mig sem "Gaui.is". Haha, djöfull var það magnað. Svo var einhver POSE.is ljósmyndari sem tók mynd af okkur saman. Haha, ég man að ég sagði: "Nei, ekki! Mummi er miklu tanaðri en ég". Hehehe, fínn gaur.

Ég og Mummi á Sólon. Skooooo! Hann er svona 100x tanaðri en ég. Djöfulsins tan monster.


En svo núna er ég bara að blogga þessa vitleysu og horfa á tónlistarmyndböndin á Sirkus TV. Ég er ekki sáttur við eitt varðandi þetta og það er það að birta ekki nafnið á flytjendunum á lögunum eða nöfnin á lögunum. Sem sagt lögin sem ég heyri og langar í, þá verð ég að taka textabút úr laginu og skrifa á Google og finna nafnið á laginu svoleiðis. Ömurlegt!

En áðan fór ég fram í ísskáp til þess að fá mér eitthvað að drekka og hvað sé ég þá? Hálftóma Kristal plús flösku! Það er eitthvað við það sem pirrar mig geðveikt mikið. Það er eins og þetta sé gert bara svo ég og aðrir geti ekki fengið okkur að drekka. Af hverju að klára hálfa flöskuna og skilja svo restina eftir inni í ísskáp? Ég veit að sumir gera þetta og klára hana svo næsta dag, en það er ekki svoleiðis hérna. Ég get ekki fengið mér þetta, þar sem ég er með pempía dauðans og finnst ógeðslegt að drekka einhverja afganga af því sem aðrir hafa verið að drekka. Af hverju ekki bara að klára helvítis flöskuna?

En úr því ég er kominn út í svona djúpar pælingar, þá verð ég að skrifa eina pælingu hérna. Myndir af skemmtanalífinu, eins og t.d. á POSE.is. Hver er tilgangurinn með þeim? Jú, til þess að sýna okkur hvernig skemmtanalífið er og svo við getum séð myndir af okkur/öðrum úti á lífinu. En þetta er svolítil gæslumyndavél, er það ekki? Maður getur séð hvort kærastan manns sé að halda fram hjá, hvaða gaurum stelpan sem maður er hrifinn af var með, o.s.frv. Einnig getur þetta sært marga, þar sem maður getur séð fyrrverandi kærustuna sína kyssa annan strák og það særir. Ég er ekki að tala um mig, en þessi pæling er skrifuð út frá félaga mínum. Þetta er sem sagt skemmtilegt, gagnlegt og hættulegt. Það sem maður veit ekki, særir mann ekki. Ekki satt?

En jæja, slúttum þessu í bili áður en hausinn á mér springur af of miklum pælingum. Það er líka alveg rétt að hausinn á manni fari í gang á næturnar, þar sem ég er með svo mikið af pælingum sem ég er að velta fyrir mér akkúrat núna. En ég ætla að segja þetta ágætt í bili. Takk fyrir helgina, elskurnar.




Athugasemdir ():