Deila á Facebook
« Laugardagurinn - Pælingar ofl. | Aðalsíða | Annir »

Mýrin
Skrifað þriðjud. 24. október 2006 - 01:58
athugasemdir skrifaðar - toppur / botn
Þar sem ég er svona rosalega duglegur við það að vaka langt fram á nætur og rausa einhverja vitleysu, ákvað ég að henda inn einni stuttri færslu.

Núna er ég byrjaður í ræktinni á fullu. Planið er að mæta 3 í viku og gera þetta almennilega. Ég er t.d. að fara núna á morgun með Grétari og Jökli. Það verður gaman að sjá hvað kemur út úr því.

En þetta er fyrsti dagurinn minn reyklaus. Þetta var svo erfitt í dag að ég gróf upp nikotínstautinn minn góða sem ég notaði forðum í Vinnuskólanum. Það bjargaði mér alveg. Svo er bara spurning um að fara að hætta þessu endanlega. Eins og Helgi orðaði það svo skemmtilega: "Kellingarnar fíla þetta bara ekki!".

En allavega, við strákarnir kíktum á Mýrina í kvöld. Við vorum reyndar bara 3 en það var skárra en ekkert. Ég byrjaði á því að sækja Jökul og fór svo og sótti Helga. Ég fékk lánaðan þúsundkall hjá múttu þannig ég komst með strákunum. En svo þegar ég kom í bíóið kostaði 1200 kr. á íslenskar myndir. Djöfull var ég að spá í að fara frekar á Monster House! En Jökull kallinn lánaði mér 300 kall.

Þegar myndin byrjaði var aspect ratio'ið ekki rétt, þannig myndin var geðveikt flöt og asnalegt. Djöfull var þetta óþægilegt! Maður gat ekkert skilið leikmyndina, en svo eftir nokkrar mínútur var það lagað og klappaði allur salurinn fyrir þessum snilling í sýningarsalnum sem fattaði að laga þetta.

Myndin er mjög góð. Þetta er náttúrulega byggt á bók eftir snillinginn Arnald Indriðason, sem skrifaði Grafarþögn, Mýrina, Dauðarósir, ofl. bækur. Ég mæli hiklaust með myndinni! Nú er bara að vona að hann fái Baltasar Kormák til að gera bíómynd sem byggð er á Grafarþögn. Það væri of gott!

En núna er ég bara að fara að lúlla, þar sem ég er geðveikt þreyttur.




Athugasemdir ():