Dugnaður og yndislegheit
Skrifað fimmtud. 26. október 2006 - 18:01Það er náttúrulega ekkert að marka þegar ég segist ætla að taka nokkura daga frí frá bloggskrifum, þar sem degi eftir er ég sestur við skrifin. En eins og fastakúnnar tóku eftir datt síðan mín niður í gær, en það komst í lag núna í morgun. Ástæðan var að það var verið að breyta einhverju á vélinni og þurfti að endurræsa vélina svo breytingarnar kæmust í gegn.
En þið eigið örugglega ekki eftir að trúa þessu en ég er búinn að taka mig ógeðslega mikið á, enda líður mér ógeðslega vel í dag.
Ég er að hætta að reykja, byrjaður að lyfta á fullu með strákunum, auk þess sem ég er búinn að sinna náminu mjög vel. Einnig er ég búinn að sækja um vinnu og er ég líka mjög vongóður með þessa vinnu.
Um daginn byrjaði tölvan mín með stæla. Hún byrjaði alltaf að koma með Blue Screen, þannig ég gerði repair install á Windows XP. Það virkaði ekki neitt, þannig ég fór að eyða út driverum og prófa ýmislegt en ekkert gekk. Svo datt mér í hug að þetta væri út af ryki inni í vélinni, en eftir að ég blés það burt, hætti hún ekki að frjósa. Ég var eiginlega alveg að gefast upp og sagði pabba frá þessu. Ég hafði lesið á netinu að þetta væri út af minninu í tölvunni. Seinna um kvöldið kemur pabbi með 2x212 MB minniskubba, þannig núna er ég með 1 GB í innra minni, sem er algjör snilld.
Svo undanfarna daga hefur rafmagnið á húsinu alltaf verið að slá út. Alltaf þegar þetta gerist tapa ég alltaf miklu af gögnum sem ég er alltaf að vinna í. Eins og t.d. um daginn fór rafmagnið og ég var að vinna í ritgerð og allt tapaðist. Djöfull varð ég reiður! Pabbi er samt búinn að redda þessu núna þar sem hann kom með UPS (e. Uninterruptible Power Supply), þannig næst þegar rafmagnið fer af húsinu verður tölvan mín í gangi. Hahaha, snilld!
En já, annars er ég búinn að vera voða duglegur í öllu saman. Eins og t.d. í dag átti ég að skila skýrslunni um leikskólann fyrir Uppeldisfræði, þannig ég tók mig til í gær, slökkti á MSN, ircinu og internetinu og var í 4 tíma að skrifa 8 bls skýrslu. Djöfull leið mér vel eftir að ég kláraði það. Svo skilaði ég skýrslunni í dag og Aron, uppeldisfræðikennari, fékk sjokk þetta var svo löng skýrsla. Ég vona bara að ég fái háa einkunn fyrir þetta, þar sem þetta gildir 15% af lokaeinkunn. Ég vandaði mig mjög við gerð þessarar skýrslu þannig ég hlýt að fá góða einkunn.
En nú er bara eitt sem ég þarf að bæta, og eru það fjármálin mín. Ég skulda allt of mikinn pening og verð ég þess vegna að drífa mig í vinnu og borga þær niður. Ég skulda held ég öllum vinum mínum, þannig ég verð að gera eitthvað í þessu. Ég er sem betur fer með þetta allt skráð í Fjármálastjóranum mínum.
Þetta er vonandi allt á uppleið.
En ég er búinn að ákveða að eftir 1 mánuð ætla ég að byrja að taka kreatín, sem eru einskonar löglegir sterar. Það sem þetta gerir er að stækka vöðvana með því að halda vatni í vöðvunum. Það er bara því miður ekki hægt að nota þetta nema maður sé að æfa 3x eða oftar í viku, annars fer þetta bara í fituna á manni. Þetta er spennandi.
En í dag fór ég bara í skólann og svo í World Class með Grétari, Helga og Jökli. Ég og Helgi tómum bara fæturnar fyrir, þar sem það er ágætt að skipta þessu svona niður. Ég á örugglega ekki eftir að geta gengið á morgun ég verð með svo miklar harðsperrur.
En það á bara eftir að koma í ljós.
En núna ætla ég bara að fara að læra fyrir sögupróf á morgun. Segjum þetta ágætt í bili.

Athugasemdir (