Deila á Facebook
« Skyrtukaup ofl. | Aðalsíða | I did it!!! »

Skólinn að verða búinn
Skrifað fimmtud. 17. nóvember 2005 - 11:43
athugasemdir skrifaðar - toppur / botn
Ég vaknaði í skólann kl 8 og var mættur á slaginu 8:10 í tíma. Ég náði frábæru stæði beint fyrir framan skólann og dagurinn leit út fyrir að byrja bara vel.

Ég trúi þessu varla. Sirka ein vika eftir af skólanum, svo eru bara prófin eftir. Ég fer í 5 próf. Það er að segja í: FÉL203, LAN103 (uppáhalds fagið mitt og Betu...NOT!), ÞÝS203, ENS403, ÍSL212H. Síðasta prófið mitt er í íslensku og er það 12. des! Ég sem sagt verð búinn í prófunum þegar ég og Beta eigum afmæli... 13 des! Djöfull verður djammað þá. Þetta er einum of gott til að vera satt.

En já, afmælisveislan okkar Grétars er á morgun. Djöfull hlakkar mig til! Þetta verður svaka stuð og það verður sko ekki sparað drykkjuna. Ég og Grétar erum að spá í að fara út að borða á undan, en spurningin er hvert við eigum að fara? Ekki eitthvað of dýrt samt. Komið með hugmyndir.

En núna er ég bara í STÆ313 (Excel) með Betu og ég nenni ekki að gera handtak. Er búinn með flest allt en það er eitt stórt verkefni eftir. Ætli maður verði ekki bara að skella sér í þetta. Eftir skóla fer ég í kór og svo beint að vinna.
Ég er að spá í að gera eitthvað flippað fyrir morgundaginn og klæða mig í bleikan bol og vera í, í vinnunni í kvöld. Er það ekki bara ágætt flipp?

En ég er farinn að gera eitthvað af viti. Ég mun koma með huge ass færslu á morgun, eftir afmælispartýið.




Athugasemdir ():