Deila á Facebook
« Dökkhærður? | Aðalsíða | Frábær dagur! »

Helgin - Dauð, dramarík og ofbeldisfull
Skrifað mánud. 30. október 2006 - 05:08
athugasemdir skrifaðar - toppur / botn
Jæja, þá er það enn önnur þynnkan á sunnudögum. Alltaf gaman.

Á föstudaginn gerði ég voða fátt. Ég hékk bara heima til miðnættis og horfði á Ice Princess og The 51st State. Ég verð nú bara að segja að þó Ice Princess sé algjör stelpumynd, þá er hún bara nokkuð góð. Allavega fyrir svona tilfinningaverur eins og mig. Alveg fór maður næstum því að gráta þegar hún sá mömmu sína á keppninni. Djöfulsins kelling er ég.

En The 51st State er náttúrulega bara snilldar mynd. Ég hafði aldrei séð hana og hélt alltaf að hún væri geðveikt leiðinleg, en þessi mynd er bara stórkostleg. Ég myndi alveg horfa á hana aftur ef hún væri aftur í sjónvarpinu. Þetta er náttúrulega spennutryllir með hinum stórkostlega Samuel L. Jackson og skoska leikaranum Robert Carlyle, ásamt einhverjum öðrum góðum aukaleikurum. Hún fjallar um Elmo McElroy, sem er snilldar efnafræðingur. Honum tekst að finna upp eiturlyf sem er bara gert úr löglegum efnum og er 50% betra en öll þessi helstu eiturlyf. Svo fjallar myndin bara um þegar hann er að reyna að selja formúluna sína fyrir $20 milljónir. Snilldar mynd! Ég gef henni 4 stjörnur af 5, hún er náttúrulega ekki alveg fullkomin.

En svo eftir þetta sjónvarpsgláp skrapp ég á rúntinn. Ég skutlaði mömmu niður Kælitækni til pabba, þar sem vinnan hans var að halda eitthvað októbersfest fyrir alla samstarfsaðila sína. Frír bjór og frír matur. Öss, ég hefði getað farið á frítt fyllerí þarna um kvöldið. Þeir keyptu nefnilega heila pallettu af bjór, þ.e. ~50 kassa, sem er SLATTI!

En ég var bara edrú á bíl þetta kvöldið. Það var nú ekki mikið um fólk vera að notfæra sér edrúismann minn, sem það hefði nú alveg mátt gera. En ég var þarna uppi í vinnu hjá pabba. Einhverjir gaurar komu til mín og báðu mig um að skutla sér í Mosó fyrir 2000 kr. Ég samþykkti það nema það að það var ekki pláss fyrir alla, þannig þeir tóku bara taxa. Ég bauðst til þess að fara tvær ferðir fyrir 3000 kr., en þeir sögðu að ég væri of seinn, þar sem leigubíllinn var á leiðinni.

Ég skutlaði svo Ása, vinnufélaga pabba, upp í Mosó, Hann var nýkominn úr aðgerð, þannig það minnsta sem ég gat gert var að skutla honum. Svo fór ég bara aftur upp í Kælitækni. Þá voru allir farnir þannig við settumst bara niður og spjölluðum eitthvað saman. Svo fór ég út í bíl og beið þar. Svo stuttu síðar koma pabbi og mamma, ásamt Hauki og Tryggva, vinnufélögum pabba. Þau sem sagt ætluðu að troða sér 3 aftur í bílinn minn. Hahaha, fyrir þá sem vita ekki, þá er bíllinn minn bara fjögurra manna. En þau tróðu sér þarna aftur í og skutlaði ég þeim út um allt þegjandi og hljóðalaust.

Svo þegar ég var búinn að skutla þeim bað ég pabba um að borga mér eitthvað bensín, þar sem ég var búinn að skutla öllu þessu fólki, sem hann þekkti, án endurgjalds. Honum fannst það alveg sjálfsagt og sagði mér að fara á Olís þar sem hann fyllti bílinn minn. Gaman að gera eitthvað fyrir fólk þegar maður fær það til baka. Takk, pabbi.

Eftir það skutlaði ég mömmu og pabba heim og fór niður í bæ að hitta Kamil og Danna. Allt helvítis kvöldið var ég að velta því fyrir mér hvaða ógeðslega lykt væri í bílnum mínum. Svo í enda kvöldsins fattaði ég að það voru tveir kjötpokar (afgangurinn úr vinnunni hans pabba) sem voru aftur í skottinu. Djöfulsins rugl! Þessi fýla verður örugglega í marga daga að fara úr bílnum!

En þegar ég hitti Kamil og Danna, fórum við bara að rúnta á mínum bíl. Tókum nokkra laugara og fórum svo inn á Sólon. Ég ætlaði nú ekkert inn á Sólon þetta kvöld, en ég saknaði svo heimilisins míns. Við röltum þarna inn og þá var Kamil spurður um skilríki. Hann gleymdi veskinu sínu niðri á Essoplani í bílnum hans Danna, en ég sannfærði dyravörðinn um að Kamil væri jafngamall mér, þannig á endanum hleypti hann honum inn.

Við fórum þarna upp og ég hitti Helga, Gumma, Steina, Andra og einhverja. Ég er ekki frá því að ég muni meira frá kvöldum sem ég er fullur en ef ég er edrú. Allavega hvað varðar manneskjur sem eru staddar með mér á djamminu. En allavega, ég fór þarna inn kófsveittur og krullóttur og það voru sko engar stelpur sem litu við mér. Skiljanlega, þar sem ég leit út eins og rolla þarna. Mér finnst skrítið af hverju dýraeftirlitið kom ekki. Jökull á helvíti góða mynd af mér með þennan lubba, sem ég skal henda inn strax og ég næ í kallinn. En allavega, þetta var ömurlegt kvöld! Hundleiðinlegt að vera edrú, en það var fínt að rúnta. Segi ekki annað.

En svo var drama, eins og venjulega. Það var þannig að Helgi hafði verið að reyna við stelpu sem hann hefur oft hitt áður og voru þau alveg í góðu þarna inni, hún með áhuga á honum og hann með áhuga á henni. Svo þegar við strákarnir (ég, Kamil og Danni) byrjum að dansa þarna fer Kamil allt í einu að dansa við þessa stelpu. Hehehe, hann vissi ekkert að Helgi væri að reyna við hana, þannig ég tek mig til og segi honum að sleppa því að reyna við þessa stelpu, þar sem Helgi "var með hana". Þá brjálast Kamil og þýtur í burtu og byrjar bara með leiðindi. Ég reyni að ná í hann og spyr hann hvað hann meini en hann vill ekkert við mig tala. Helgi hleypur þá á eftir honum og talar við hann.

Svo stuttu seinna kemur Danni og segir að Kamil verði að fá bjórinn í bílnum mínum, þannig ég varð að fara. Ég fer og næ í bílinn og hitti svo Kamil og Helga fyrir utan Sólon. Þeir stökkva inn í bíl og ég skutla Kamil og Danna að bílnum sínum. Svo förum við Helgi bara að spjalla saman um ýmislegt. "Trying to catch up", eins og maður orðar það. Svo skutlaði ég bara Helga heim kl 6-7. Greyið átti að mæta kl 8 í vinnu.

En jæja, það er komið að laugardeginum. Hann var nú alveg ótrúlegur. Ég byrjaði á því að fara með Grétari og Jökli í afmælispartý til Ívars. Það var geggjað gaman þar. Takk æðislega fyrir boðið, Ívar, og enn og aftur í 10. skiptið til hamingju með afmælið þann 17.

En það var geðveikt gaman hjá Ívar. Það var helling af fólki þarna, þ.á.m. Ívar, Hjalti, Rafn, Bylgja, Lilja, Palli, Ómar, Ægir, Rebekka, Halli, Edda, Oddrún, Hildur, Kolla, Grétar, Jökull, Bjarni, ofl. Það var nóg af fólki þarna og var þetta alveg geðveikt gaman! En eftir smá dvöl þarna kvöddum við og héldum heim til Guggu (ekki fyrrverandi mín). Hún er allavega með mér og Grétari í þýsku.

Það var líka æðislega gaman þar. Gaman að fara í partý þar sem það er mismunandi fólk. Það er geðveikt gaman. En allavega, ég get ekki talið upp alla sem voru þarna en það voru allavega: Ég, Grétar, Jökull, Gugga, Gugga fyrrverandi, Óli, Tara, Jón Kristinn, Kata, Böddi, Karen, Sigrún, Haffi, Davíð Fannar, Birgitta sem var með mér í grunnskóla, Dóri, ofl. Ég man ekki eftir fleirum, þar sem ég held ég sé búinn að telja upp alla sem ég þekkti þarna.

En þetta var alveg æðislega gaman. Ég fór á trúnó með Sigrúnu, sem var bara æðislegt. Það er svo gott að opna sig þegar einhver nennir að hlusta og þarna þurfti hún að opna sig og ég var tilbúinn að hlusta. Hreint út sagt æðislegt.

En svo söng ég fyrir fólkið Aladdin úti á palli, þar sem Birgitta manaði mig í að syngja. Ég get nú ekki sagt að þetta hafi verið flott, þar sem ég var truflaður af fólki í kringum mig sem gat ekki hætt að tala.

Svo stal ég bjór af Guggu fyrrverandi. Eða ég stal honum reyndar ekki, ég bara tók sopa og eftir það vildi hún ekki fá hann aftur, sem mér fannst frekar fyndið.

Ég hitti Davíð Fannar þarna, sem ég hef aldrei hitt áður á ævi minni, en ég veit nokkuð vel hver þetta er. Þetta er gaur sem var til svolítilla trafala á netinu forðum, en það skiptir ekki máli lengur. Fínn gaur og gaman að spjalla við hann. Hehehe, ég man þegar ég spurði hann hvort hann vissi hvað gaui.is væri og sagði hann já, og svo þegar ég sagði honum að ég væri gaui.is, þá missti hann næstum andlitið. Hehehe. Gaman að þessu.

En svo gerði ég svolítið sem ég sé eiginlega ekkert eftir, þó það eigi vissulega eftir að vera skrítið að hitta þessa manneskju í skólanum. Ég hringdi í Kötu B og fékk Kareni til þess að segja henni að ég hafi ekki verið að reyna við þær báðar í einu. Ég var einu sinni svolítið hrifinn af Kötu B en hún hélt að ég hefði verið að reyna bæði við hana og Kareni, þannig hún hætti að tala við mig. Ég fékk á hreint frá Kareni að ég hefði aldrei verið að reyna við hana og lét hana segja það við Kötu B, sem var svolítið fyndið. Svo þegar þær hættu að tala saman talaði ég við Kötu. Við sögðumst bara ætla að ræða þetta betur saman í skólanum. Djöfull gerir maður asnalega hluti þegar maður er fullur. Hahaha. Ég er ekkert hrifinn af Kötu lengur, þannig þetta er allt í lagi. Það á samt eftir að vera mjög vandræðalegt að hitta hana. Hahahahaha!

Eftir þetta fórum við niður í bæ. Fórum að sjálfsögðu á Sólon. Jökull var edrú þannig hann var á bíl. Við byrjuðum á því að skutla Guggu fyrrverandi og Óla á Klúbbinn. Hver djammar á Klúbbnum á laugardegi? Bara rónar og fólk sem hefur ekki aldur. En allavega, eftir að við skutluðum þeim fórum við á Sólon.

Það var mikið dansað á Sólon og var rosalega gaman. Ég hafði drukkið allt of mikið fyrr um kvöldið, þannig ég var svolítið fullur. Ég hitti Svenna félaga minn og settumst við þarna niður, ásamt Jökli. Ég bað Eygló um kók en hún sagðist ekki geta gert það, þannig ég bað hana fallega og setti upp hvolpasvipinn. Hún kom með kókið handa mér. Takk æðislega fyrir þetta, elsku dúllan mín!!! Þú bjargaðir mér frá dauða þetta kvöld!

En svo fórum við upp. Ég hitti Helga, Gumma, Andra, Steina, ofl. og fórum við bara að dansa. Svo hitti ég Ívar, Hjalta, Palla, Rafn og þetta fólk sem var í afmælinu hjá Ívari. Þetta var æðislegt kvöld. Það er svo miklu skemmtilegra að sleppa því að djamma á föstudögum og taka svo feitast á því á laugardögum. Það er æði, gerir kvöldið svo sérstakt og skemmtilegt.

En svo seinna um kvöldið eftir að Helgi var farinn, var Kamil og Ívari hrint af einhverjum hörðum gaur. Út frá því byrja svaka slagsmál og er ég inni í þeim. Það tók einhver glas og stútaði því á hausnum á gaurnum og flugu helling af glerbrotum í höndina mína, þannig það blæddi svaka mikið. Sömuleiðis skarst Kamil af glerbrotunum, þannig við vorum báðir með útúr blóðugar hendur. Svo í miðjum slagsmálunum náði gaurinn feitu höggi í kjálkann á mér, þannig stuttu eftir það bólgnaði ég alveg svakalega upp. Bólgan er samt aðeins búin að hjaðna núna, þannig hún sést ekki eins mikið, en hún er þarna enn til staðar. Svo komu dyraverðirnir og stoppuðu þetta. Ég held að Ívar og Kamil hafi náð helvíti góðum höggum í kauða, en ég sá bara um að reyna að stoppa þetta, sem tókst því miður ekki. Svo var kauði tekinn og hent út af dyravörðunum.

Skurðirnir á höndinni á mér eftir glasið. Það lítur út fyrir að ég sé þunglyndur og sé alltaf að skera mig.


Eftir þetta fór ég á klósettið með Ásu og Aníku, vinkonu hennar, þar sem ég þreif allt blóðið. Svo fórum við bara upp að dansa aftur. Svo lokaði Sólon og við fórum niður og út. Við röltum á Hlölla þar sem Júlía var svo góð að gefa mér bát og svo fórum við bara heim. Bróðir Svenna, hann Ragnar, kom og sótti okkur og skutlaði mér, Ásu og Aníku heim til mín.

Núna í dag vaknaði ég ógeðslega þunnur með ógeðslega mikinn hausverk. Ég skrapp aðeins á rúntinn með Kamil og Ásu og svo fór ég bara heim. Svo skrapp ég með pabba með bílinn hennar Ellu systir niður í vinnu. Svo á leiðinni heim fer pabbi og tekur bensín á stóra F250-inn. Ég get svo svarið það en heildarverð fyrir þetta var 26.000 kr!!! Ég missti næstum andlitið, en eins og pabbi sagði: "Það er dýrt að eiga stóran bíl". Það er sko satt.

En svo fórum við bara heim. Núna er ég að fara í skólann eftir 5 tíma sirka, þannig ég ætla að leggja mig smá. Hræðilegt að snúa sólahringnum svona við. En allavega, segjum þetta ágætt í bili. Þetta er nógu helvíti langt.




Athugasemdir ():