Deila á Facebook
« Helgin - Dauð, dramarík og ofbeldisfull | Aðalsíða | The Departed »

Frábær dagur!
Skrifað mánud. 30. október 2006 - 21:32
athugasemdir skrifaðar - toppur / botn
Þetta var aldeilis frábær dagur.

Ég byrjaði á því að fara í skólann kl 10 eftir sirka 4 tíma svefn. Eftir hann fór ég bara heim í tölvuna. Var að vinna einhver verkefni og eitthvað. Svo kemur Sigga á MSN og segist vera að koma í bæinn að versla. Hún býður mér með og auðvitað þáði ég það.

Hún kom svo til mín rétt fyrir 6 og bað mig um að keyra. Ég veit ekki af hverju, ætli hún hafi ekki bara verið þreytt eða eitthvað eftir langa leið frá Keflavík.

Við brunuðum í Kringluna og ætluðum að versla en það endaði með því að við fórum í Smáralindina. Við fórum svo bara að skoða og versla. Svo fórum við inn í Optical Studio og ég athugaði með gleraugun mín, en þau voru ekki tilbúin, þannig við fórum bara. Svo dregur Sigga mig allt í einu inn í Zöru og þar hitti ég Guggu fyrrverandi. Hún var ekkert allt of hress sýndist mér. Sigga fór og skoðaði eitthvað og svo fórum við bara og ég kvaddi Guggu.

Eftir það ætluðum við að fá okkur að borða en við áttum erfitt með að ákveða hvar við ætluðum að borða. Við ætluðum fyrst á American Style uppi á Höfða en klukkan var 7 þannig það var brjálað að gera og við nenntum ekki að bíða endalaust eftir matnum, þannig við tókum rúnt niður í bæ á meðan við ákváðum hvað við ætluðum að fá okkur, en það gekk ekkert. Það endaði með því að við fengum okkur bara McDonalds. Það var fínt, fyrir utan það að ég pantaði mér 4 ostborgara og kók en Sigga pantaði sér 1 ostborgara, franskar og gos. Hún gat ekki einu sinni klárað franskarnar. Talandi um að borða lítið.

En svo spjölluðum við bara fyrir utan McDonalds og fórum svo bara heim. Fyrir utan hjá mér spjölluðum við meira saman. Æðislegt að spjalla við hana. Svo kvöddumst við bara með faðmlagi. Hún þurfti að standa á tánum til þess að ná að faðma mig, hí hí, en svo stóð hún uppi á kantinum þannig hún þurfti ekki að standa á tánum. Hehehe, þetta var æðislega gaman.

Takk æðislega fyrir mig, Sigga. Þú ert æði.

En núna er ég bara að fara í bíó með Svenna á The Departed. Sigga gat ekki komið með mér í bíó, þar sem hún þurfti að fara að passa. Eftir að hún gat ekki komið með ætlaði ég ekkert í bíó en svo núna rétt áðan bað Svenni mig um að koma í bíó, þannig ég ákvað að slá til.

En jæja, ég blogga síðar um myndina og kvöldið. Ciao.




Athugasemdir ():