Ný jakkaföt
Skrifað laugard. 11. nóvember 2006 - 16:55Jæja, gærdagurinn og dagurinn í dag voru með sanni frábærir.
Á föstudaginn eða í gær byrjaði ég bara á því að fara í skólann. Svo kom Sigga til mín og við lögðum okkur í nokkra klukkutíma. Svo vöknuðum við og fengum okkur að borða. Eftir mat fór ég bara og tók mig til fyrir vinnuna. Svo þegar ég var tilbúinn kvaddi ég bara Siggu og fór í vinnuna. Hún fór þá bara heim til sín í Vogana.
Það var bara fínt í vinnunni. Ég kynntist helling af nýju fólki, þ.á.m. Siggu, Bigga, Emil, Sif, Betu, Gumma, Dóra, Palla, Óla, ofl. Allt frábært fólk. Það var víst voða lítið að gera, að sögn hinna, á miðað við venjuleg föstudagskvöld. Kannski var það bara út af óveðrinu. Hver veit? En allt kvöldið var ég bara á gólfinu að þjóna. Ég fékk mitt eigið veski, þar sem ég var bara úti á gólfi að selja. Svo þegar fólk pantaði eitthvað fór ég bara á barinn og gerði pöntunina og færði svo fólkinu það. Ásamt því var ég á barnum þegar það vantaði. Þetta er æðislegt.
Díana og Ásgeir komu þarna og voru mest allt kvöldið. Þau voru með vini sínum, sem var þarna að spila á píanóið. Djöfulsins snillingur er þessi gæji, þar sem hann syngur eldgömul lög með flottri gamaldags söngrödd í anda Elvis Presley og Franks Sinatra, ásamt því að hann hefur aldrei lært á píanó. Hann er sem sagt alveg sjálflærður. Algjör snillingur. En þið eruð æði, Díana og Ásgeir!
Svo seinna um kvöldið komu Jói frændi og Kalli mágur hans. Þeir voru óvenjuhressir og færði ég þeim drykki allt kvöldið.
Stuðmannabandið frá Borgarnesi var að spila og kostaði 1200 kr. inn. Þetta var snilldar hljómsveit. Hún spilaði ný Sálarlög ásamt því að spila eldgömul ensk lög. Frábærir.
En svo eftir að kráin lokaði tókum við bara til og svona. Svo eftir að við vorum búin að taka til, fengum við pizzu að borða. Svo sátum við bara þarna við borðið, borðuðum og spjölluðum saman um kvöldið. Svo röltum við bara niður í bílakjallara og spjölluðum aðeins meira saman. Svo skildu leiðir og við fórum heim. Ég vil bara þakka kærlega fyrir kvöldið. Þið eruð allt frábært fólk!
En svo þegar ég settist inn í bílinn minn og ætlaði að bakka, leit ég í hliðarspegilinn og tók þá eftir að það var enginn spegill. Mig minnir að ég hafi öskrað orðrétt: "What the fuck?". Svo hljóp ég út og skoðaði þetta nánar. Þá var búið að brjóta spegilinn af bílnum.
Ég fór þá inn í Kringlu og talaði við Securitas. Hann kom og skoðaði þetta og hringdi á lögregluna. Svo kom einhver jeppi með fólki sem sagðist hafa séð atburðinn. Þau tóku niður bílnúmerið hjá gaurnum sem gerði þetta. Ég veit hver gerði þetta og ætlar viðkomandi að borga þetta gegn því að ég geri ekki mál úr þessu, þannig þetta er nokkurn veginn leyst. Ég ætla ekki að setja nafn hans hér, þar sem ég var beðinn um að gera það ekki, auk þess að þetta mál er leyst.
En svo í dag vaknaði ég snemma. Ég fór allt of seint að sofa en mamma vakti mig núna í morgun og við skelltum okkur í Smáralind ásamt Ellu systir. Markmiðið var að finna flott jakkaföt á mig fyrir kvöldið, jólin og svona. Mamma splæsti þar sem þetta var afmælisgjöfin mín.
Við byrjuðum í Zöru, þar sem ég mátaði nokkur jakkaföt. Við fundum ein helvíti flott, en ermarnar voru svo stuttar en við máttum ekki fá jakka nr. 54 og buxur 52, þannig við ákváðum að kíkja eitthvað annað. Við kíktum þá í Dressmann þar sem ég fann helvíti flott jakkaföt. Það var m.a.s. svona pakkatilboð þar sem jakkaföt + skyrta + bindi var á einhverju tilboðsverði, í kringum 20.000 kr.

En núna sit ég bara hérna í tölvunni og er að blogga. Ég var að fá nýja diskinn með í Svörtum Fötum sem heitir Orð. Ég er bara að hlusta á hann og er eitthvað að skoða á netinu.
Í kvöld er svo Önfirðingaball sem haldið er á Seltjarnarnesi. Ég fékk Grétar til að koma með mér, þar sem ég vil hafa einhvern sem ég get verið með um kvöldið. Þetta er mest allt bara gamalt fólk og eitthvað fólk sem ég þekki ekki neitt. En svo eftir það fer ég bara niður í bæ einn, þar sem Grétar verður að fara snemma heim. Ég djamma sem sagt bara einn í kvöld.
Vonandi kemur Helgi eða einhver með mér, en annars ef þið viljið félagsskap megið þið endilega bjalla. 
Segjum þetta ágætt í bili.
Bætt við kl 18:51

Mynd af mér í jakkanum. Ég bað mömmu um að taka þessa mynd af mér og var hún alveg í nokkra stund að átta sig á því hvernig myndavélin/síminn snéri, svo tók smá stund að útskýra fyrir henni að hún ætti að halda takkanum lítið inni í smá stund og svo smella alveg af. Þetta tók nokkrar tilraunir en þetta kom ekki betur út en þetta. Mömmur og tækni. ![]()
En núna sit ég bara hérna í tölvunni og er að blogga. Ég var að fá nýja diskinn með í Svörtum Fötum sem heitir Orð. Ég er bara að hlusta á hann og er eitthvað að skoða á netinu.
Í kvöld er svo Önfirðingaball sem haldið er á Seltjarnarnesi. Ég fékk Grétar til að koma með mér, þar sem ég vil hafa einhvern sem ég get verið með um kvöldið. Þetta er mest allt bara gamalt fólk og eitthvað fólk sem ég þekki ekki neitt. En svo eftir það fer ég bara niður í bæ einn, þar sem Grétar verður að fara snemma heim. Ég djamma sem sagt bara einn í kvöld.
Segjum þetta ágætt í bili.
Bætt við kl 18:51

Hérna er ég fullklæddur og tilbúinn á skrallið ![]()
Athugasemdir (