Deila á Facebook
« SKO mig! | Aðalsíða | Bommaðu þessu bara inn! »

Casino Royale
Skrifað fimmtud. 30. nóvember 2006 - 02:38
athugasemdir skrifaðar - toppur / botn
Í dag svaf ég bara út. Ég vaknaði samt klukkan 12 og dreif mig í skólann kl hálf 3. Eftir skóla fór ég svo bara heim og fékk mér að borða og horfði á White Chicks í 17. skiptið á Stöð2 Bíó.

En núna í kvöld skellti ég mér á Casino Royale með Jökli. Ég bauð honum þar sem ég átti 2 frímiða í Laugarásbíó. Það var nú ekkert annað spennandi í sýningu þar nema James Bond, þannig við skelltum okkur bara á hana.


Ég verð nú bara að segja að þessi mynd er mjög góð. En fyrir þá sem ekki vissu þá er þetta endurgerð af fyrstu myndinni sem gerð var árið 1967. En með varðandi nýja leikarann í hlutverki Bond. Ég hélt alltaf að hann myndi ekki passa inn í hlutverkið, en hann sannaði sig heldur betur í þessari mynd. Hann er bara helvíti svalur sem James Bond.

Þrátt fyrir að myndin sé hátt í 3 tímar með hléi þá er hún mjög góð. Ég gef henni 4 stjörnur af 5 mögulegum.

En úr einu inn í annað. Ég las pælingu á netinu um þessa blessuðu útlendingaþróun hér á landi. Hvað finnst ykkur um það?

Nú í dag hefur menning Íslands þróast út í það að vera sambland af íslenskri, pólskri og tælenskri menningu. Maður er byrjaður að geta keypt pólskan og tælenskan hátíðarmat úti í stórmörkuðum, ásamt því að það er auglýst á ensku og pólsku í fjölmiðlum. Pólskur matur er að stíga sín fyrstu skref inn í íslenska framleiðslu.

Ég veit ekki hvað er í gangi, en þetta er alveg út í hött. Við eigum ekki að þurfa að aðlagast þeirra menningu, heldur eiga þau að aðlagast okkar menningu. Við eigum ekki að breyta okkur menningu fyrir þau, heldur eiga þau bara að bíta í það súra epli að þurfa að taka upp okkar menningarhætti, t.d. að læra íslensku.

Það er sagt að þeir séu að taka alla vinnuna okkar, en ég get ekki alveg verið sammála því, þar sem þeir eru bara að taka vinnu sem við höfnum. En með þessa breyttu menningarhætti hér á landi, er það ekki bara áhrifavaldur út af fyrir sig að hafa þetta fólk í vinnu hérna?

Ég er náttúrulega búinn að lenda í leiðindarmáli við einn pólverja, en ég bý ekki yfir fordómum gagnvart þessu fólki, en það er bara staðreynd að íslensk menning er að deyja út af þessu! Ég set ekki alla pólverja undir sama hattinn, þó einn sé slæmur. Ég þekki m.a.s. nokkra pólverja sem eru bara frábærir.

En þetta finnst mér vera svolítið heit umræða í dag. Hvað verður um Ísland? Endar þetta kannski með því að við nennum ekki að stemma stigum við þessa útlendinga og tökum bara upp enskuna eða jafnvel pólskuna?

Maður spyr sig...




Athugasemdir ():