Deila á Facebook
« Símavesen | Aðalsíða | Löng og erfið helgi framundan »

Mikill söknuður
Skrifað miðvikud. 19. október 2005 - 20:55
athugasemdir skrifaðar - toppur / botn
Málið er það að ég og kærastan mín hættum saman 22. september og ég er ekki ennþá kominn yfir hana. Vinkona mín sagði mér svo áðan að hún hefði séð hana kyssa einhvern gaur í gær.

Nokkrum vikum eftir að við hættum saman, laug ég að henni að ég væri kominn yfir hana. Hún varð alveg brjáluð og sagði "ef þú ert strax komin yfir mig hefuru aldrei elskað mig!". Ég spurði þá sjálfan mig, hvern ég væri að blekkja og sagði henni sannleikann; að ég væri ekki kominn yfir hana.

Ég er alveg í rusli. Sendi henni sms áðan sem ég sé svolítið eftir, eins og t.d. "Vonandi getur hann gert þig hamingjusama" og eitthvað svona. Svo hringdi hún í mig tvisvar og ég skellti á. Svo hringdi hún aftur og ég svaraði. Þá sagði hún bara að við værum hætt saman og að henni væri nákvæmlega sama hvað ég gerði.
Svo sagði hún: "ég nenni ekki svona dramatík, ég tala við þig seinna" og þá sagði ég "ekki tala við mig aftur". Þá sagði hún: "enn betra" og skellti á.

Ég hitti hana síðustu helgi og hún kyssti mig og við vorum saman allt kvöldið. Svo stakk hún mig af (cold feet?)

Ég er alveg í rusli. Hvað segið þið um þetta?
Er ekki svolítið ótímabært að kyssa annan gaur núna? Á ég kannski engan rétt á því að vera reiður/sár út í hana?




Athugasemdir ():