Jólabloggið!
Skrifað fimmtud. 28. desember 2006 - 04:07Jæja, þá ætla ég að koma með smá jólablogg.
Það má eiginlega segja það að ég hafi bara ekki komist í neitt jólaskap um þessi jól. Það var allt brjálað að gera í vinnunni hjá mér, þannig mér gafst enginn tími til þess að komast í jólaskapið. Ef ég hefði ekki verið að vinna neitt og bara verið alla daga í Kringlunni að versla eða heima að skreyta herbergið mitt, hefði þetta kannski verið allt annað mál.
Laugardagurinn 23. des var mjög svo skrautlegur. Það var allt vitlaust að gera í vinnunni. Hvað gerir fólk á Þorláksmessu? Jú, það fer og verslar jólagjafir á síðustu stundu. Og hvar gerir það, það? Auðvitað í verslunarmiðstöðvum, eins og t.d. Kringlunni. Og hvað gerir það þegar það er orðið hungrað eftir jólainnkaupin á síðustu stundu? Jú jú, það fer auðvitað og fær sér að borða. Og hvar er tilvalinn staður til þess? Jú, auðvitað Kringlukráin. Þetta tengist allt get ég sko sagt ykkur.
En eftir vinnu fór ég bara heim og skellti mér aðeins í tölvuna og svo í sturtu. Ég velti því fyrir mér hvað væri hægt að gera á Þorláksmessu. Mér datt sniðugur hlutur í hug og var það að drekka. Ég fékk mér nokkra bjóra og hringdi svo í strákana. Þeir voru niðri í bæ. Ég bað Jóa, sem var edrú, um að koma og sækja mig þar sem mig langaði svo að fara að djamma, og auðvitað gerði kallinn það. Hann og Helgi komu þá og sóttu mig.
Við skelltum okkur til Jökuls og sóttum hann. Við fórum að spá í því hvað við gætum gert á þessu skemmtilega kvöldi. Strákunum datt þá í hug að hringja í einhverjar stelpur og fíflast eitthvað. Helgi og Jói sáu aðallega um það
Svo varð það grín þreytt, þar sem þeir áttu takmarkaða inneign og batterý, þannig við ákváðum að skella okkur á Esso Ártúnshöfða og fá okkur Subway.
Þegar við komum þar inn vorum við búnir að ákveða að haga okkur eins og algjörir hálfvitar, enda vorum við Helgi undir áhrifum.
Við byrjuðum á því að syngja hástöfum (aðallega ég og Helgi) og létum eins og fífl. Svo settumst við og borðuðum bátinn okkar. Svo eftir það ákváðum við Helgi að gerast fyndnir og setjast þar sem búið var að þrífa. Við tókum bandið frá og tókum niður stólana og settumst. Við vorum m.a.s. það fyndnir og sniðugir að við tókum Subway bréfin með okkur, bara til þess að vera eins pirrandi og við gátum. 
Sumir voru ekki ánægðir með hegðun okkar og var það litli feiti samkynhneigði gaurinn sem vinnur þarna. Ég er alls ekki að segja þetta til þess að niðurlægja hann, heldur bara til þess að þið þekkið hann ef þið farið þarna. Hann er frekar lítill, feitur og talar mjög hommalega, enda er hann hommi. Ég hef heldur ekkert á móti samkynhneigðum, þar sem einn af mínum góðvinum er samkynhneigður. Þetta er bara svo þið þekkið hann.
En allavega, hann tók mjög illa í þetta og sagði okkur að drulla okkur út. Við neituðum og þá hótaði hann að hringja í lögguna. Við sögðum honum bara að gera það. 
Svo kom löggan! Það fyndna var að þetta voru 2 löggugellur, ein ljóshærð og ein dökkhærð. Út frá því kom heillangt spjall. Þær reyndu að reka okkur út en við streittumst á móti í mjög margar mínútur. Að lokum voru þær orðnar þreyttar á þessu og þá fórum við út. Svo spjölluðum við svolítið fyrir utan Esso en svo fóru þær bara eftir að við vorum farnir. Þetta var fyndið grín.
Eftir að þær voru farnar stukkum við Helgi inn að pissa. Gaurinn var sko ekki sáttur.
Svo drulluðum við okkur bara aftur út. 
Á sunnudaginn 24. des var svo aðfangadagur. Hann byrjaði á því að ég vaknaði klukkan eitthvað í kringum 5. Skellti mér svo aðeins í tölvuna. Svo þegar mamma, pabbi, Ella systir og Gummi kærastinn hennar fóru í kirkju fór ég að taka mig til. Skellti mér í sturtu og svo í jakkafötin. Svo komu þau heim og við fórum að borða. Það var jólasúpa í forrétt (eins og vanalega) og svo í aðalrétt voru rjúpur og svínapurusteik.
Ég borða náttúrulega ekki rjúpur þannig ég gæddi mér bara á purusteikinni.
Eftir matinn fór ég aðeins í tölvuna á meðan mamma, pabbi, Ella og Gummi tóku til eftir matinn. Að því loknu settumst við fram í sófann og opnuðum gjafirnar og borðuðum ís í eftirrétt. Þetta var æðislegt. Ég fékk marga hluti í jólagjöf en hér er listi yfir þá:
Takk allir kærlega fyrir gjafirnar sem þið gáfuð mér. Ef ég er að gleyma einhverju endilega takið það þá fram og ég laga þennan lista.
En allavega, eftir að við vorum búin að opna gjafirnar og borða eftirréttinn fór ég og sótti Siggu. Klukkan var að verða 12. Eftir að ég sótti Siggu fórum við á BSÍ til þess að kaupa sígarettur, en það var lokað. Ég sem hélt að BSÍ væri opið allan ársins hring. Samt var skilti sem logaði á "ALLTAF OPIÐ", en samt var lokað. Svo var miði í glugganum sem stóð á: "Opnar aftur 12:30 á jóladag". Ég hélt auðvitað að það myndi opna eftir hálftíma og beið þangað til, en það opnaði ekki. Meira ruglið.
Eftir þetta fórum við heim til Jökuls þar sem við drukkum vodka og spiluðum Actionary. Það var ógeðslega gaman. Við gerðum þetta nokkra daga í röð yfir hátíðirnar, þannig basically var fríið svona: Vakna geðveikt seint, fara heim til Jökuls og drekka og spila spil, fara geðveikt seint að sofa. Þetta var frábært jólafrí.
Um daginn voru ég, Sigga, Jökull, Grétar, Helgi, Jói og Gunni heima hjá Jökli að spila og drekka og ákváðum að fara eftir á upp á Esso Ártúnshöfða og fá okkur að borða. Þegar við komum vorum við búnir að plana að Gunni, vinur Jóa, myndi fara inn og kaupa 6 pylsur og svo þegar búið væri að afgreiða þær, myndum við koma valsandi inn og borða pylsurnar.
Þetta var snilldarplan og tókst með eindæmum vel, þar sem Gunni hafði ekki gert hommanum neitt þannig hann afgreiddi hann með 6 pylsur.
Eftir að við vorum búnir að vera í stutta stund þarna kom löggan... AFTUR! Við höfðum ekkert gert af okkur í þetta skiptið en homminn er greinilega búinn að ákveða að setja okkur í lífstíðarbann fyrir smá sprell þarna á Þorláksmessu. Skiljanlega, hver yrði ekki bitur ef hann væri neyddur til þess að vinna á Þorláksmessu og einhverjir gaurar kæmu og létu eins og hálfvitar? Skiljanlega rak hann okkur út þarna á Þorláksmessu, en rólegur að setja okkur í lífstíðarbann fyrir smá fylleríssprell. Ef þetta heldur áfram svona, að það sé kallað á lögguna í hvert skipti sem við stígum fæti þarna inn fyrir, verður farið með þetta lengra!
En á annan í jólum eða þriðjudaginn 26. des vöknuðum við Sigga á slaginu 1. Skelltum okkur í sturtu og gerðum okkur fín, þar sem við vorum að fara í jólaboð heima hjá Ömmu hennar Siggu. Ég verð nú bara að segja að það var mjög gaman að hitta fjölskylduna hennar alla saman komna á einum stað. Fínn dagur.
Eftir jólaboðið fórum við heim og lögðum okkur, þar sem við sváfum mjög lítið um nóttina. Svo vöknuðum við nokkrum klukkutímum seinna. Við ætluðum að drekka en svo varð bara ekkert úr því. Við sátum bara að horfa á sjónvarpið þegar Andri, sem er að vinna með mér á Kringlukránni, hringdi í mig. Hann bað okkur um að koma niður í bæ og djamma með sér, og auðvitað var ég til í það.
Ég fór þá og tók mig til. Svo kom Davíð, sem er einnig að vinna með mér á Kringlukránni, og sótti mig og skutlaði mér á Pravda, þar sem Andri var. Hann skutlaði mér bara niður í bæ og svo ætlaði hann að sækja okkur seinna um kvöldið. Ég skil ekki alveg af hverju en bærinn var opinn til 3 um nótt á þriðjudegi. Skrítið.
Ég verð nú bara að segja að þessi bæjarheimsókn var ömurleg. Ég kom þarna og þá var Andri að reyna við einhverju útlenska stelpu, þannig ég sat bara þarna og beið eftir honum. Svo skelltum við okkur á dansgólfið seinna og við áttum það gjörsamlega. En svo lét hann sig hverfa og fór að reyna við einhverjar stelpur og þá var ég bara einn að dansa. Voða ömurlegt eitthvað þegar maður er edrú.
Svo þegar Pravda lokaði fórum við Andri á Essoplanið og hittum Davíð og Siggu. Svo fórum við Sigga bara heim að sofa.
Í dag er ég ekki búinn að vera að gera margt. Ég vaknaði geðveikt seint og þá bað Jökull mig um að koma á KFC og auðvitað var maður til í það. Við ætluðum fyrst í bíó, þar sem hann átti 2 frímiða, en svo þarf mamma hans að sækja miðana þar sem þeir eru stílaðir á hennar kennitölu. Asnalegt.
Við fórum þá bara á KFC í staðinn. Svo skutlaði hann mér bara heim. Takk fyrir hænuna, elskan! 
Svo seinna um kvöldið kom Sigga til mín. Við steinsofnuðum bæði tvö en vöknuðum klukkan 10. Þá fór hún bara heim til sín, þar sem hún er að fara að vinna eldsnemma í fyrramálið, eða eftir 4 klukkutíma.
Núna sit ég bara hér í tölvunni og er að horfa á How I met your mother. Nei, þetta er ekki klám.
Þetta eru bara fyndnir grínþættir. 
Ég ætla samt að fara að lúlla eftir smá, þar sem ég er að fara að vinna kl 7 næsta kvöld.
Svo eru stúdentaveislur Grétars og Herdísar á næsta leyti. Ég verð að vinna til 11 bæði kvöldin en ég kíki bara eftir það.
Note to self: Ekki drekka fyrir gamlárs (yfirvofandi þynnka). 
En hvað er planið á gamlárs? Er ekki feitt djamm málið? Spurningin er bara hvernig þetta verður. Hvort maður fari í partý í heimahúsi fyrst og svo á djammið niðri í bæ eða á Broadway eða hvað. Endilega segið mér hvað þið ætlið að gera á gamlárs! Ég er alveg til í að fara í partý í heimahúsi fyrst og svo á Broadway eða í gamlárspartýið á Pravda eða eitthvað. Það er bara peningavesen.
Það er eina vandamálið. 
Segjum þetta bara ágætt í bili.
Það má eiginlega segja það að ég hafi bara ekki komist í neitt jólaskap um þessi jól. Það var allt brjálað að gera í vinnunni hjá mér, þannig mér gafst enginn tími til þess að komast í jólaskapið. Ef ég hefði ekki verið að vinna neitt og bara verið alla daga í Kringlunni að versla eða heima að skreyta herbergið mitt, hefði þetta kannski verið allt annað mál.
Laugardagurinn 23. des var mjög svo skrautlegur. Það var allt vitlaust að gera í vinnunni. Hvað gerir fólk á Þorláksmessu? Jú, það fer og verslar jólagjafir á síðustu stundu. Og hvar gerir það, það? Auðvitað í verslunarmiðstöðvum, eins og t.d. Kringlunni. Og hvað gerir það þegar það er orðið hungrað eftir jólainnkaupin á síðustu stundu? Jú jú, það fer auðvitað og fær sér að borða. Og hvar er tilvalinn staður til þess? Jú, auðvitað Kringlukráin. Þetta tengist allt get ég sko sagt ykkur.
En eftir vinnu fór ég bara heim og skellti mér aðeins í tölvuna og svo í sturtu. Ég velti því fyrir mér hvað væri hægt að gera á Þorláksmessu. Mér datt sniðugur hlutur í hug og var það að drekka. Ég fékk mér nokkra bjóra og hringdi svo í strákana. Þeir voru niðri í bæ. Ég bað Jóa, sem var edrú, um að koma og sækja mig þar sem mig langaði svo að fara að djamma, og auðvitað gerði kallinn það. Hann og Helgi komu þá og sóttu mig.
Við skelltum okkur til Jökuls og sóttum hann. Við fórum að spá í því hvað við gætum gert á þessu skemmtilega kvöldi. Strákunum datt þá í hug að hringja í einhverjar stelpur og fíflast eitthvað. Helgi og Jói sáu aðallega um það
Þegar við komum þar inn vorum við búnir að ákveða að haga okkur eins og algjörir hálfvitar, enda vorum við Helgi undir áhrifum.
Sumir voru ekki ánægðir með hegðun okkar og var það litli feiti samkynhneigði gaurinn sem vinnur þarna. Ég er alls ekki að segja þetta til þess að niðurlægja hann, heldur bara til þess að þið þekkið hann ef þið farið þarna. Hann er frekar lítill, feitur og talar mjög hommalega, enda er hann hommi. Ég hef heldur ekkert á móti samkynhneigðum, þar sem einn af mínum góðvinum er samkynhneigður. Þetta er bara svo þið þekkið hann.
Svo kom löggan! Það fyndna var að þetta voru 2 löggugellur, ein ljóshærð og ein dökkhærð. Út frá því kom heillangt spjall. Þær reyndu að reka okkur út en við streittumst á móti í mjög margar mínútur. Að lokum voru þær orðnar þreyttar á þessu og þá fórum við út. Svo spjölluðum við svolítið fyrir utan Esso en svo fóru þær bara eftir að við vorum farnir. Þetta var fyndið grín.
Á sunnudaginn 24. des var svo aðfangadagur. Hann byrjaði á því að ég vaknaði klukkan eitthvað í kringum 5. Skellti mér svo aðeins í tölvuna. Svo þegar mamma, pabbi, Ella systir og Gummi kærastinn hennar fóru í kirkju fór ég að taka mig til. Skellti mér í sturtu og svo í jakkafötin. Svo komu þau heim og við fórum að borða. Það var jólasúpa í forrétt (eins og vanalega) og svo í aðalrétt voru rjúpur og svínapurusteik.
Eftir matinn fór ég aðeins í tölvuna á meðan mamma, pabbi, Ella og Gummi tóku til eftir matinn. Að því loknu settumst við fram í sófann og opnuðum gjafirnar og borðuðum ís í eftirrétt. Þetta var æðislegt. Ég fékk marga hluti í jólagjöf en hér er listi yfir þá:
- Geðveikir brúnir skór (Hanna amma)
- Geðveikur frakki úr Zöru, Giorgio Armani svitalyktareyðir og rakspíri, gull jólakúla og Joe Boxer náttföt og bolur (Mamma og pabbi)
- Armband og bindisnæla (Sigga mín)
- Morgunkornaskammtari (Cocoa Puffs pakki með) og silfurskeið (Kolla, Hlölli og dætur þeirra)
- DVD mynd: Præsten i Vejlby og sturtubursti (Helgi)
- Kínaprjónar (Jói Depp)
- Fyndin mynd af Helga (Gummi Jónss)
- Geðveikt ALDO úr og geðveik ALDO sólgleraugu (Ég
) - Nokia Bluetooth handfrjáls búnaður (Ella og Gummi)

Athugasemdir (