Deila á Facebook
« Smá blogg | Aðalsíða | Jahá »

Afmælispartý dauðans!
Skrifað laugard. 19. nóvember 2005 - 17:51
athugasemdir skrifaðar - toppur / botn
Þetta afmælispartý var skrautlegt frá A-Ö.

Þetta byrjaði á því að ég gerði mig kláran, skrapp í sturtu og sjænaði mig til. Klukkan 6 kom Grétar og fórum við út að borða. Við ætluðum fyrst á Ítalíu eða Hereford en enduðum einhvernveginn á KFC.

Eftir það brunuðum við upp á Players, þar sem afmælisveislan var haldin. Við vorum mættir kl 7 á Players. Afmælisveislan átti ekki að byrja fyrr en kl 8. Við heilsuðum starfsfólkinu og byrjuðum að gera allt klárt. Settum snakk á borðin og svona og höfðum allt rosa fínt.

Þegar klukkuna sló 8, mættu fyrstu gestirnir. Það voru Gummi og Sandra. Þegar klukkuna sló hálf 9, byrjaði allt fólkið að streyma inn. Ég verð nú bara að segja að þetta hafi heppnast ágætlega, þessi veisla. En eitt er víst, ég mun aldrei aftur versla við Players aftur. Þeir voru mjög tregir með að fara eftir skipulagi okkar Grétars.

Ég byrjaði bara að þamba fría bjórinn og hafði það notalegt með vinum mínum. Ég var mjög ánægður að sjá allt þetta fólk. Allt yndislegt fólk. Ég fékk mjög skemmtilegar afmælisgjafir. Ég fékk að mestu leyti bara áfengi frá öllum. Ég á allnokkra lítra af sterku áfengi, Tópas, Smirnoff ofl. Vill ég þakka öllum fyrir innlitið og gjafirnar, þó gjafir hafi verið óþarfi.. en takk takk.

Seinna um kvöldið þegar allir voru orðnir vel fullir, byrjaði fólk á trúnó og byrjaði að tjá tilfinningar sínar á mjög skemmtilegan máta. Þá byrjaði fullt af drama. Ég var blindfullur en nógu jarðbundinn þannig ég gat huggað og leyst vandamál. En sumu var ekki við bjargað.

Þegar hljómsveitin byrjaði að spila, var ég þarna á bakvið að leysa drama situation. Seinna kemur Grétar til mín og segir mér að það séu kolklikkaðar kellingar frammi sem hefðu stappað á löppina á sér og kýlt sig, bara fyrir það eitt að vera að dansa þarna. Ég fer fram og byrja að dansa geðveikt ofan í þeim. Þær horfa skringilega á mig og ég byrja að dansa geðveikt dirty. Ég var bara að fíflast og athuga viðbrögðin hjá þeim. Ein kerlingin byrjar að ýta mér og þá spyr ég hana hvort hún sé í Femínistafélagi Íslands og þá segir hún: "Æji þegiðu, haltu kjafti og drullaðu þér í burtu" og ég fer að hlæja.
Örstuttu seinna byrja slagsmál á milli Herdísar og einni af þessum trukkalessum. Ég, Ingvar og Grétar stoppum þessi "slagsmál". Ég held stelpunni sem byrjaði þetta og Grétar öskrar: "Út með þær!". Ég dreg hana að hurðinni þótt erfitt væri. Allar hinar vinkonur hennar réðust á mig og rifu í mig og lömdu mig. Ég lét það ekki á mig fá, var of drukkinn til að finna fyrir því. Ég held áfram að draga hana að hurðinni, þegar dyraverðirnir koma þarna og taka í mig og henda mér út. Einn dyravörðurinn kemur með mér út og ég reyni að útskýra fyrir honum að þessar stelpur hafi bara verið með vesen. Hann hlustaði ekki á mig og hleypti mér inn með því skilyrði að ég hagaði mér vel. Hehehe, hagaði ég mér ekki vel? Ég var að stoppa kíting milli vinkonu minnar og einhverrar trukkalessu. Ef þetta hefðu verið slagsmál á milli stráka, hefði öllum verið hent út sem hefðu átt þátt í slagsmálunum og punktur. En það er víst allt annað þegar kemur að slagsmálum á milli stelpna.
Ég vil bara segja að dyravarslan á Players er ekki upp á marga fiska. Þetta eru allt einhverjir steraguttar sem líta svo stórt á sig að það hálfa verið hellingur. Þeir horfa ekki á staðreyndir, eru ósanngjarnir og eru bara fífl yfir höfuð. Ég og Grétar leigðum þennan helvítis sal og gátu þeir alveg hlustað á okkur þegar eitthvað kom upp á. En nei nei, þeir voru bara í sínum eigin heimi. Þeir voru allir ömurlegir. Ég hitti engan sanngjarnan dyravörð. Enginn, ekki á Players, nei.

En já, þetta var bara eitt af fjölmörgu drama uppákomum sem gerðust í þessu blessaða partýi.

Eftir þegar við fengum upp í kok af því að vera þarna, fórum við (ég, Grétar, Guðrún, Eygló og Ingvar) niður í bæ. Við reyndum að fara inn á Glaumbar en þar var einn dyravörður sem ákvað að vera með einhverja macho stæla við Guðrúnu og sagði: "Þetta ert ekki þú." og punktur. Hann vildi ekki líta á þær staðreyndir að þetta gæti hafa verið gömul mynd á þessu blessaða korti? Ég reifst smá við hann og sagði honum að spyrja hana um kennitöluna og nafn og hvaðeina. En hann hlustaði ekki á mig. Vá hvað ég elska dyraverði.

Eftir það fórum við á Gaukinn og stuttu seinna fór Eygló heim. Seinna fóru Grétar og Ingvar að fá sér frískt loft og ég og Guðrún vorum bara ein þarna. Þeir voru búnir að vera í burtu svolítið lengi þegar við ákváðum bara að fara. Við fórum á Opus, Viktor, Pravda og allt en ekkert gaman neinstaðar. Hehe, kannski út af því að maður var svona fullur og pirraður.

Eftir smá rölt, hringdi ég í Grétar og þá var Ingvar farinn og einhver Jói kominn í staðinn. Við hittumst seinna á Pizza Pronto. Ég verð nú bara að segja að þessar pizzur eru mjög góðar, þó mér líki best við Devitos. Þetta eru svona þunnar pizzur eins og á Devitos, það er lang best. Allavega, við fengum okkur að borða á Pizza Pronto og svo fórum við bara heim.

Þegar ég kom heim, fór ég beinustu leið inn í rúm að sofa. Ég var út úr fókus ég var svo fullur og þreyttur.

Ég verð nú bara að segja að ég er ekki alveg sáttur við þetta fyrirkomulag þarna á Players.
Fyrst og fremst borguðum við Grétar 50.000 kr. fyrir 2 kúta þarna hjá þeim (100% álagning).
Í öðru lagi sagði Oddur okkur, einn af eigendum Players, að hann myndi loka fyrir bjórinn okkar kl 11. Þetta sagði hann okkur kl hálf 11. Hann sagði okkur þetta aldrei þegar við pöntuðum salinn. Við áttum sem sagt að drekka 60L af bjór á innan við 3 tímum. Haha. Enn fyndnara hefði það verið hefðum við pantað 3 kúta. En Grétar segir að við höfum klárað bjórinn og verð ég bara að trúa því, þó ég vilji það ekki.
Í þriðja lagi voru dyraverðirnir þarna ekki að standa sig. Þeir hleyptu fólki ekki inn sem var í afmælinu og varð ég alltaf að redda því með því að rífast við þá. Svo hentu þeir öllum út sem voru undir aldri klukkan 11. Þó það hefði verið sagt við okkur að það myndi ekki vera gert.
Ég er ekki alveg sáttur. Enda vorum við búnir að ákveða að ef við myndum lenda í einhverju öðru ósanngjörnu veseni með þessa dyraverði, hefðum við ekki látið það kyrrt standa. Já, við vorum komnir með nóg af þessum hálfvitum.

En núna er ég vaknaður og er bara að skrifa einhverja þvælu á þetta blessaða blogg. En núna í kvöld er planið að fara bara að rúnta eða eitthvað. Ég nenni varla að drekka aftur, þó ég eigi nóg áfengi til að verða fullur á hverjum einasta degi fram að áramótum.

Ég vill bara þakka öllum sem komu í gær kærlega fyrir komuna og takk fyrir frábært kvöld.

Ég óska eftir myndum úr partýinu! Hafið bara samband við mig!




Athugasemdir ():