Gamlárskvöld - The Beginning of the End
Skrifað þriðjud. 2. janúar 2007 - 18:38Þá er kominn tími á smá nýjársblogg. Ég veit ekki hvað ég á að skrifa þar sem mér líður ekkert allt of vel. Þetta var allavega ömurlegasta gamlárskvöld sem ég hef upplifað í mörg ár.
En það er saga að segja frá því.
Allavega, ég vaknaði geðveikt seint á gamlársdag og hékk bara í náttfötunum langt fram eftir kvöldi. Ég borðaði svo yndislegan mat, sem mamma eldaði, sem var jólasúpan okkar og svo hátíðarkjúkling eða kalkún. Þetta var frábær máltíð og var ég gjörsamlega afvelta eftir hana. Eftir matinn horfðum við á Skaupið, sem mér fannst nú frekar glatað fyrir utan þessa örfáu brandara sem ég skildi. Já, ég fylgist voða lítið með stjórnmálamönnum og fréttum á Íslandi þannig það er ekki von að ég hafi ekki skilið rassgat í þessu.
Eftir Skaupið dreif ég mig í sturtu og dressaði mig upp. Það voru nokkrar mínútur í að klukkuna myndi slá 12, þannig ég dreif mig ennþá meira og náði rétt fyrir miðnætti á nýju ári til þess að kyssa mömmu og pabba. Svo komu Ella, Gummi og Össi til þess að fagna nýju ári með okkur.
Eftir að við horfðum á flugeldana saman fór ég heim til Jökuls. Þar voru hann, Oddur bróðir Grétars, Agnes kærastan hans, mamma Jökuls, pabbi Jökuls og eitthvað frændfólk þeirra. Þegar ég kom var mér boðið kampavín til þess að skála með þeim. Svo stóðum við bara inni í eldhúsi og spjölluðum saman. Stuttu síðar kom Grétar og skálaði með okkur.
Svo seinna um kvöldið færðum við okkur niður í íbúðina hans Jökuls og héldum áfram að djamma þar. Þetta var mjög rólegt til að byrja með, þar sem það var ekkert af fólkinu mætt, en svo kom Sigga. Ég var svo ógeðslega þunnur eftir fylleríið kvöldið áður að ég ákvað að fara heim og fá mér einhverja töflu og fá mér einnig að borða. Við Sigga skruppum heim til mín og ég eldaði mér pizzu.
Eftir pizzuátið fórum við aftur til Jökuls en þá var helling af fólki mætt. Fyrst til að byrja með ætlaði Helgi ekki að koma en svo kom hann fyrir rest þegar hann sá að sér hversu mikið hann væri að beila á vinum sínum. Allt gott og blessað með það. Ég fór svo bara beint í vodkann og þambaði nokkur glös af honum mixuðum í Z-up eða Mix þegar ég fattaði að klukkan væri orðin 2 um nótt og Broadway biði.
Eftir slatta drykkju var ég orðinn góður. Sigga fór þá og sótti Kareni og Valentínu og skutlaði þeim á Broadway. Helgi fékk að fljóta með, þar sem Grétar var búinn að redda sér, mér og Jökli fari hjá Hildi og Kella. Æðislegt það. Svo skutluðu þau okkur á Broadway og fóru svo bara heim.
Við strákarnir röltum út fyrir og ég hringdi í Siggu og bað hana um að koma með lyklana að bílnum sínum út, svo ég gæti sett frakkann minn inn í bíl og strákarnir auka áfengið sitt. Svo kemur Helgi eitthvað með lyklana til mín og lætur mig fá þá. Við skilum bara draslinu inn í bíl. Svo klárum við eina flösku af vodka í Mix og röltum svo áleiðis inn.
Ég verð nú bara að segja að það var mjög mikið stuð á Broadway. Ég hef sjaldan skemmt mér svona vel þegar hljómsveit er að spila, en við strákarnir gerðum það bara gott og vorum bara allan tímann á dansgólfinu. Sálin eru líka snillingar og er ekkert smá gaman að dansa við þá vera að spila. Svo kom smá svona óvæntur glaðningur og það voru Magni og Dilana sem tóku nokkur lög áður en Stebbi Hilmars tók við aftur. Þetta var frábært!
Svo leið tíminn og það kom nokkrum sinnum fyrir að maður týndi fólkinu. Hvað gerði maður þá? Jú, maður rölti bara um og fór að leita að fólkinu. Svo gafst ég upp og fór á dansgólfið og beið bara þar. Svo komu strákarnir til mín og drógu mig inn á dansgólfið og þar hélt stuðið svo áfram.
En þetta var fínt kvöld. Ég hitti gamla vinkonu mína þarna, hana Rakeli, og ætlum við að byrja að hafa samband við hvort annað aftur. Það er svo leiðinlegt að sjá svona góða vináttu fara í vaskinn bara út af einhverju sambandsleysi. Það þýðir ekkert!
Eftir Broadway hittumst við öll uppi og spjölluðum saman. Áður en gamlárskvöldið kom vorum við strákarnir búnir að ákveða að leggja bíl þarna með áfengi í, taka hlý föt með okkur og labba svo að kvöldi loknu heim. Það klikkaði eitthvað, þar sem við þrír; Ég, Grétar og Jökull löbbuðum bara heim. Ég veit ekkert hvað varð um hina, en það er leiðinlegt þegar menn standa ekki við það sem þeir segja. Frekar bara í byrjun að neita þessu. En hvað um það!
Ég get svo sannarlega sagt ykkur það að það var nú bara helvíti gaman að labba heim, þrátt fyrir gnístingskulda. Við Grétar áttum langt og gott spjall, þar sem við vorum báðir hálf edrú eftir Broadway. Svona er að eiga engan pening til þess að kaupa sér áfengi inni á Broadway.
Helgi splæsti samt á mig einu glasi af Töfrateppi. Takk fyrir það, vinur. 
En eins og ég sagði í upphaf þessarar færslu þá var þetta eitt ömurlegasta gamlárskvöldið sem ég hef upplifað lengi. Og af hverju ætli það sé? Maður spyr sig. Þetta er allavega mjög löng saga að segja frá og veit ég ekki hvort ég eigi að láta hana flakka hér, en þar sem ég er nú ekki vanur að sleppa því að tjá mig um hvað sem er hér inni, læt ég það bara allt flakka.
En svona í endann áður en ég slútta þessu með sögunni langar mig bara að óska vini mínum, Helga, innilega til hamingju með afmælið.
Here it goes...
Ég er ekki að reyna að draga sögupersónurnar (viðkomandi aðila) niður í einhvern skít, heldur er ég bara að segja söguna eins og hún gerðist.
Þegar ég byrjaði að vinna á Kringlukránni kynntist ég frábærum strák sem heitir Andri. Það var alltaf geðveikt gaman að vinna með honum, þar sem hann var alltaf ógeðslega hress og skemmtilegur.
Eitt kvöldið þegar við Andri vorum að vinna kemur kærastan mín, Sigrún, með vinkonu sinni, Bríet Sunnu (já, fræga söngkonan sem var í Idolinu). Andri hoppar um af kæti og stressi þar sem hann var svo ógeðslega hrifinn af henni Bríet Sunnu. Allavega, hann fer og talar við hana.
Dagarnir liðu og alltaf biður Andri mig um að redda þessu með sig og Bríet Sunnu. Ég segist ekki geta verið einhver milliliður, þar sem ég þekkti Bríet Sunnu ekki neitt. Ég bað hann þá um að tala við Sigrúnu, kærustuna mína, og athuga hvort hún gæti hjálpað honum eitthvað, þar sem hún er vinkona Bríet Sunnu. Ég gef honum þá númerið hjá Sigrúnu svo hann gæti "plöggað" þessu með Bríet Sunnu.
Nokkrum dögum/vikum seinna voru Sigrún, kærastan mín, og Andri, vinur minn, byrjuð að tala voða mikið saman. Allt upp í 2 klst á dag. Ég vissi að eitthvað væri ekki rétt þá og sagði Sigrúnu að ég hefði áhyggjur af þessu, og sagði hún að þau væru bara vinir. Eins sagði Andri alltaf við mig: "Ég myndi aldrei reyna við kærustuna þína, þar sem ég myndi aldrei geta gert þér það, þar sem þú ert vinur minn".
Ég trúði því alltaf, þar sem ég treysti þeim báðum. Núna í gær kom Sigrún til mín og sagði mér að Andri hefði kysst hana á Broadway og hún hefði kysst hann á móti. Svo fékk ég að frétta það í gær að þau hefðu einnig kysstst í bílnum hennar eftir að ég var farinn að labba heim með Grétari og Jökli.
Já, þetta er svo sannarlega búið á milli okkar Sigrúnar.
Lag færslunnar:
Sugababes - Too Lost in You

Athugasemdir (