Deila á Facebook
« Gamlárskvöld - The Beginning of the End | Aðalsíða | Brjáluð helgi »

Kringluferð
Skrifað föstud. 5. janúar 2007 - 05:43
athugasemdir skrifaðar - toppur / botn
Ég veit ekki alveg hvað er að mér að blogga alltaf rétt áður en ég fer að sofa, en það er víst sagt að maður hugsi mest þá. Var ekki einhver snillingur back in the days sem skrifaði alltaf niður allar hugmyndir/uppfinningar sem hann fékk þegar hann var að fara að sofa og varð multi milli af þeim? Mig minnir það.

En dagurinn í dag (í gær?) byrjaði mjög rólega. Ég vaknaði klukkan 12 um hádegið og fór að sækja stundatöfluna mína upp í Borgó. Ég las eitthvað vitlaust á töfluna og fór í stofu 108, sem ég átti ekki að fara í. Í stofu 108 voru þeir sem voru fyrir neðan 85% í mætingu. Ég var ekki einn af þeim og vissi það vel. En þegar mér varð ljóst að ég væri á vitlausum stað þorði ég ekki að fara þannig ég sagði bara: "Ég er að sækja stundatöfluna mína. Ég man ekki hvort ég hafi verið fyrir neðan 85% eða ekki" og svo fundu þau ekki töfluna mína þannig þá fór ég. Algjör lúði.

Eftir á fór ég bara heim og aðeins í tölvuna. Davíð, sem er að vinna með mér á Kringlukránni, hafði verið að reyna að ná í mig og ætlaði að biðja mig um að koma á kaffihús eða eitthvað. Ég var alveg vel til í það og fór í Smáralind á Adesso, þar sem ég hitti Davíð, Óla, Braga og kærustuna hans Braga sem ég man ekkert hvað hét.

Við sátum þar í smá stund, spjölluðum saman og reyktum. Svo varð ég svo svangur að við Davíð ákváðum að fara og fá okkur að borða og varð WOK bar beint á móti fyrir valinu. Við fórum þarna inn og Davíð sagði að þetta væri bara Nings. Mér fannst þetta ekkert Ningslegt en svo sá ég skilti þar sem á stóð "NINGS".

Ég talaði við afgreiðslustúlkuna og bað um það venjulega sem ég fæ mér alltaf á Nings eða rétt númer 65. Hann var víst ekki til þannig þetta gat nú varla verið Nings. En þetta er víst það sama og Nings nema að þú velur það sem þú vilt í réttinn þinn.

Ég spurði afgreiðslustúlkuna hvort það væri hægt að fá stóran skammt en þá sagði hún að það væri bara hægt að lítinn. Ég sem fæ mér alltaf stóran á Nings venjulega fékk mér þá 2 litla. Ég valdi svo bara núðlur með eggjum og chili og svo voru 4 grænmetisföt með mismunandi blöndum af grænmeti. Í seinasta fatinu sá ég grænmetisblönduna sem er alltaf í rétti númer 65, þannig ég valdi það. Mig minnir að það hafi verið gulrætur, broccoli og einhver tegund af káli? Man ekki alveg.

Allavega, ég var sem sagt kominn með réttinn sem ég fæ mér alltaf á Nings. Svo setjumst við bara niður og bíðum eftir matnum okkar. Davíð fékk sér bara 1 skammt en ég fékk mér 2.

Svo nokkrum mínútum síðar kemur stúlkan með matinn til okkar. Nei nei, þá er þetta bara eins og stóru skammtarnir á Nings. Ég lofaði strákunum að ég myndi klára þetta og ég stóð við það. Ég borðaði sem sagt 2 stóra #65. Klappið fyrir mér! Ég get samt ekki sagt að mér hafi liðið vel eftir þá, þar sem ég gat varla labbað og var við það að fara að æla áður en ég náði að ropa.

Ekki beint merkileg saga en allavega, eftir á fórum við og heilsuðum aðeins upp á Alexsöndru, vinkonu mína, sem var að vinna í miðasölunni í Smárabíó. Svo fórum við í Kringluna á Café Bleu og sátum þar og spjölluðum saman. Svo fór Óli að vinna og Bragi og kærastan hans komu.

Davíð á Café Bleu.


Á Café Bleu settist einhver gamall fullur karl við hliðina á okkur og tók upp bjór og setti á bak við matseðilinn. Þá kom afgreiðslustúlkan og spurði hvort hún gæti aðstoðað hann eitthvað og þá rausaði hann: "Vatnsglas". Greyið var blindfullt. Eftir það tók afgreiðslustúlkan matseðilinn hjá honum, þar sem hann ætlaði ekki að borða neitt, og þá kom bjórinn í ljós. Svo náði stelpan í eigandann og hann kom og henti gaurnum út. Maður hálfvorkenndi greyinu... samt ekki.

Mjög skemmtilegur dagur og eftir hann skutlaði ég bara Davíði, Braga og kærustunni hans heim. Svo fór ég bara sjálfur heim.

Á meðan ég var á Café Bleu sendi ég Sigrúnu sms og spurði hana hvort hún vildi að við myndum tala saman. Hún svaraði því ekki en hringdi í mig þegar ég var á leiðinni úr Kringlunni og sagðist vera að vinna og var til í að við myndum tala saman eftir vinnu.

Svo eftir vinnu kom hún til mín og við spjölluðum um allt þetta mál. Við leystum það ekki, þar sem það var ekki neitt til að leysa, en við sættumst... svona hálfpartinn. Við ætlum ekki að vera óvinir, en við ætlum heldur ekki að vera neinir bestu vinir. Við ætlum bara að vera svona hlutlaus. Það skiptir ekki máli hvað fór okkar á milli þarna í bílnum, þar sem það er einkamál, en niðurstaðan var allavega þessi.

En núna er ég bara búinn að hanga í tölvunni í alla nótt og er að verða frekar þreyttur. Jökull kom til mín áðan og hjálpaði mér að tengja tölvuna við sjónvarpið, svo ég gæti horft á bíómyndir úr tölvunni í sjónvarpinu. Það gekk ágætlega að tengja það en myndin á sjónvarpinu var bara svarthvít, þannig við þurfum að fara á morgun og versla S-VHS snúru sem er með tveimur köllum og svo þurfum við einnig að kaupa SCART tengi sem er með 3 RCA tengjum og 1 S-VHS tengi. Spennó!

En núna ætla ég að segja þetta gott, þar sem ég er alveg að deyja úr þreytu. En ég er að vinna frá 6-4 um nótt alla helgina, þannig það er ekkert djamm hjá mér þessa helgi. Svo er skólinn að byrja og svona. Ciao!




Athugasemdir ():