Deila á Facebook
« Brjáluð helgi | Aðalsíða | Mánudagur - Skólinn byrjaður aftur »

Employee of the Month
Skrifað mánud. 8. janúar 2007 - 02:46
athugasemdir skrifaðar - toppur / botn
Jæja, þetta var nú meiri dagurinn. Ég vaknaði hálf níu um kvöldið og þá bað Gummi mig um að koma í bíó. Auðvitað var ég til í það.

Við fórum á Employee of the Month og fór ég með Alexíu vinkonu minni, Gumma, Jökli og Palla. Við vorum svolítið sein út af því að ég fann ekki hvar Alexía átti heima og keyrði nokkrum sinnum framhjá. En svo komum við og þá var bara allt troðfullt í salnum. Ég hafði beðið Gumma um að passa 3 sæti fyrir mig, Alexíu og Jökul, en það var eitthvað fífl hliðiná þeim sem geymdi jakkann sinn í einu sætinu og urðum við Alexía að sitja annarstaðar.

Myndin fjallar um Zack, sem vinnur í stórmarkaði sem ber nafnið Super club. Daginn sem Amy (Jessica Simpson) byrjar að vinna þarna komast Zack og starfsfélagi hans, Vince, að því að hún er mikið fyrir að deita starfsmenn mánaðarins. Um leið og þeir komast að því byrja þeir að keppast um bæði titilinn og gelluna.


Þessi mynd er bara ágætis ræma. Þetta er reyndar ekki mynd sem ég myndi kaupa en það var alveg þess virði að sjá hana einu sinni. Ég get nú ekki sagt að Jessica Simpson sé einhver góð leikkona en útlit hennar bætir mikið upp fyrir leik hennar.

Ég gef þessari mynd 2 stjörnur af 5 mögulegum.

En eftir bíóið skutlaði ég Alexíu bara heim og fór svo sjálfur heim. Núna er ég að rembast við að tengja tölvuna við sjónvarpið en það gengur voða lítið. Myndin er perfect svarthvít en þegar ég stilli á PAL og fæ liti, brenglast þeir og verða ofur skærir. Ég er búinn að prófa allt.

En núna fer ég bráðum að skella mér í háttinn þar sem skólinn byrjar kl hálf 12 á morgun og verður maður að vera ferskur fyrsta daginn. Ömurlegt samt að núna er ég einn í skólanum! Jökull er farinn yfir í FB, Grétar, Herdís og Palli eru útskrifuð og Helgi ætlar að taka þetta í fjarnámi. Er þá málið að fara að kynnast nýju fólki þarna? Úff, erfitt líf.




Athugasemdir ():