Mánudagur - Skólinn byrjaður aftur
Skrifað mánud. 8. janúar 2007 - 18:56Jæja, nú er mánudagur og maður er eiginlega ekki í neinu stuði til þess að blogga. Ég var að enda við að horfa á Beverly Hills á Skjá1 uppi í rúmi þegar ég sofna.
Sem betur fer svaf ég ekki lengi þar sem mamma hringdi í mig. Ég hef aldrei verið jafn feginn að fá símtal frá mömmu, þó ég hafi ekki látið hana heyra það.
En djöfull verður maður myglaður við það að dotta! 
En dagurinn í dag var bara mjög góður. Ég byrjaði á því að vakna á hárréttum tíma, þökk sé leiðinlega mp3 laginu sem ég mixaði í scheduler í Windowsinu. Það er einhvern veginn svona: "Gaui, vaknaðu! Þú hefur nákvæmlega 1 mínútu til þess að drullast á fætur. Klukkan byrjar núna. 1 mínúta... 50 sekúndur eftir... 40 sekúndur eftir... 30 sekúndur eftir... 20 sekúndur eftir... 10 sekúndur eftir... 9, 8, 7, 6, 5, 4, 3, 2, 1. Núna byrjar leiðinleg tónlist út af því að þú ert ekki búinn að slökkva á þessu" og svo byrjar Jeff Who - Barfly lagið, þar sem það er ömurlegast í heimi að vakna við það. Hehe, sniðugt mix sem gefur mér eina mínútu til þess að slökkva áður en Barfly byrjar.
En allavega, ég kom í skólann og þá var ekkert bílastæði. Dagurinn var sko ekki að byrja vel. Ég sá eina 2006 Imprezu sem var lögð ská í 2 stæði þannig ég tróð mér bara við hliðina á honum. Sem betur fer var ég farinn aftur áður en hann kom út. Hann hefði ekki verið sáttur hversu nálægt ég lagði við bílinn hans.
Ég drullaðist í tíma og kom því miður of seint út af þessu helvítis bílastæðaleysi. Ég ætla að kvarta í stjórnendur skólans út af því að það er ekki gaman að byrja skólaönnina á því að fá of seint. En allavega, ég komst loksins í tíma.
Skóladagurinn var nú ekki það langur, þar sem kennararnir létu okkur bara fá kennsluáætlun og röfluðu aðeins og leyfðu okkur svo bara að fara. Það var fínt að losna fyrr úr skólanum en venjulega og að þurfa ekki að sitja í heilar 80 mínútur í hverjum tíma hóstandi yfir allt liðið. Já, ég er með helvíti leiðinlega hálsbólgu og hósta.
En það var svolítið fyndið sem íslenskukennarinn minn, hún Bergdís, sagði við okkur. Hún lét okkur fá kennsluáætlunina og svo eitthvað blað með reglum sem hún hafði sérútbúið til.
Ein reglan var án djóks að allar klósettferðir væru bannaðar og ættu bara að eiga sér stað í frímínútunum. Að lokum bætti hún við: "Ef þið getið ekki haldið í ykkur í 80 mínútur þurfið þið að koma með læknisvottorð". Hahaha, læknisvottorð!
Ég var svo forvitinn af hverju maður þyrfti að koma með læknisvottorð ef maður gæti ekki haldið í sér í 80 mínútur og spurði hana. Þá sagði hún: "Jú, það er einfaldlega út af því að ef þið getið ekki haldið í ykkur í 80 mínútur er eitthvað að ykkur. Blöðrubólga eða eitthvað". Vááá, hversu mikill Hitler er hægt að vera?
Ég finn á mér að þessi kennari á eftir að vera hundleiðinlegur! 
En eftir fyrsta tímann skrapp ég á KFC með Jökli. Kallinn er bara byrjaður í FB á rafvirkjabraut og líkar bara helvíti vel. Hann var að fræða mig um segulliða þegar við vorum að borða og svei mér þá, rafmagn hefur aldrei verið jafn spennandi!
En smá innskot... Karen er með mér í Sögu 203. Ég bjóst nú við því að hún væri kominn í Sögu 403 eða eitthvað, á miðað við hversu vel og dugleg hún er í skólanum. Spáið í því, '88 módel og hún er að verða búin!
Og ég '85 módel og á 2 ár eftir. Þetta er grátlegt! 
En núna sit ég bara í tölvunni og hálfleiðist bara. Spái bara í því hversu langar kennslustundirnar verða á morgun, þar sem ég meika ekki að sitja í heilar 80 mínútur í fyrstu tímunum þegar ég er ekki einu sinni búinn að kaupa bækur eða neitt.
Ég er einnig að spá í því hversu langt er síðan ég opnaði iTunes. Það eru allavega nokkrir dagar komnir síðan það gerðist. Ahh... vinna alla helgina, þess vegna er það.
En djöfull er gott að sitja hérna og hlusta á rólega og góða músík. Verst bara að ég rak augun í frekar steikt lag sem heitir Dick in a Box og er sungið af Justin Timberlake og einhverjum gaur. Þetta var eitthvað grín í SNL, þar sem þeir syngja um að þeir gefi kærustunni sinni typpið sitt í kassa á hverjum einasta hátíðisdegi. 
En segjum þetta ágætt í bili.

Athugasemdir (