Ísöld?
Skrifað fimmtud. 11. janúar 2007 - 23:59Ég held svei mér þá að það sé komin ísöld. Það er alltaf eitthvað í kringum -6°C úti og snjór út um allt. Ég skrapp í einn tíma í skólanum og kom svo út og það var snjór út um allt og bíllinn á kafi í snjó. Það er komin ísöld, gott fólk.
En allavega, áfram með smjérið. Ég vaknaði tiltölulega snemma í morgun. Eitthvað í kringum hálf 8, fékk mér að borða og dreif mig í skólann. Fékk strax stæði og var mættur á hárréttum tíma í tíma.
Eftir tíma fór ég með Jökli á Kringlukránna, þar sem ég skrifaði undir starfssamning. Það gleymdist víst þegar ég byrjaði, þannig við redduðum því bara núna í dag. En svo sátum við bara þarna í smá stund eftir á og ég fékk mér að borða. Svo fórum við bara.
Á leiðinni heim var ég að keyra inn götuna hjá mér og bíllinn rann til og lenti á kant. Ég fann þungt högg og var alveg handviss um að felgan væri rammskökk, en svo var sem betur fer ekki. Við Jökull skoðuðum bílinn rækilega og sáum að það var byrjað að leka úr dekkinu eftir áreksturinn. Ég fór þá upp á dekkjaverkstæði og lét þá kíkja á þetta. Þeir tóku dekkið undan, tóku það af felgunni og settu það aftur á. Svo athuguðu þeir loftið í dekkjunum og rukkuðu mig svo 2.600 kr. fyrir. Það er náttúrulega ekkert verð þar sem ég hefði þurft að borga MIKLU meira hefði felgan skekkst, þannig ég reyni að hugsa jákvætt um þennan kostnað. Þetta er samt dýrt fyrir fátækan námsmann.
Eftir þetta rugl skrapp ég bara aðeins heim í tölvuna. Það var ekkert að gerast þar þannig ég fór bara að gera mig kláran aftur fyrir skólann. Svo lagði ég af stað í skólann og var mættur á hárréttum tíma í skólann aftur. Ég get nú ekki sagt að þetta hafi verið skemmtilegur tími þar sem þetta var tvöfaldur stærðfræðitími og þetta voru heilar 160 mínútur.
Eftir skólann fór ég bara heim og horfði aðeins á Melrose Place og dottaði smá í sófanum. Eftir það borðuðum við bara kjötfars, sem er að mínu mati einn besti maturinn sem ég fæ í dag. Ég veit ekki af hverju en þetta er ógeðslega gott!
Eftir mat spjallaði ég aðeins við Sergio. Ég bað hann um að koma með mér á Live2Cruize samkomu og var hann alveg til í það ef ég myndi sækja hann í skólann. Hann er í kvöldskóla í Borgó og auðvitað sótti ég hann. Við fórum svo bara aðeins heim til hans, þar sem hann skipti um föt og lagaði hárið. Hárið hans verður að vera perfect. EMO!
En svo brunuðum við á samkomuna. Við vildum ekki vera lúðarnir sem voru fyrstir þannig við komum við í efri Kringlukjallaranum þar sem Sergio tók fram brunaslönguna þar og skolaði saltið af bílnum mínum. Hahaha, það var algjör snilld.
Svo þegar klukkan var orðin 20 mínútur í 10 skelltum við okkur bara á samkomu. Það var mikið af hressu fólki þarna eins og vanalega og spjallaði maður bara við það. Það voru sumir þarna í glasi þar sem það er jú fimmtudagur og þá á fólk til að detta smá í það.
En á samkomunni hitti ég Huldu fyrrverandi og ég verð nú bara að segja að djöfull var gaman að hitta hana. Hún var með vinkonum sínum, Sæunni og Önnu. Við spjölluðum heillengi saman. Það er gott að gera smá catch up. Allavega, yndislegt að sjá þig, Hulda mín.
Við verðum að dobbla Erlu með okkur á kaffihús eitt kvöldið og rifja upp gamla tíma. 
En svo eftir samkomuna skutlaði ég Sergio bara heim og fór sjálfum heim. Skellti mér aðeins upp á Húsgagnahallarplanið og horfði á fólk vera að spóla og leika sér. Ég viðurkenni nú að ég hafi tekið einn hring en ekki mikið meira en það. Þetta er bara svo gaman!
En núna ætla ég bara að fara að sofa, þar sem það er langur og strangur dagur á morgun. Ég verð víst að fara að vinna kl 5-9 og svo er eitthvað staffapartý hjá Hafdísi, sem ég er að vinna með. Ég má víst ekki missa af því.
En allavega, segjum þetta ágætt í bili.

Athugasemdir (