Deila á Facebook
« Ísöld? | Aðalsíða | Laugardagurinn 13. janúar »

Föstudagurinn 12. janúar
Skrifað laugard. 13. janúar 2007 - 02:38
athugasemdir skrifaðar - toppur / botn
Þið sem haldið að þið þekkið mig, gerið það í raun og veru voða lítið, þar sem ég kem sífellt á óvart og það er alveg ótrúlegt hvað ég er stundum vitlaus og væminn. Smá saga að segja frá þessu.

Eftir að við Sigrún hættum saman hef ég verið með annað augað á einni stelpu í skólanum. Ég ætla nú ekkert að segja nafnið hérna en ég allavega fékk að vita það í dag þegar kennarinn var að lesa upp. Ég hef aldrei vitað nafnið hennar en ég fékk loksins að vita það í dag.

Eins og ég sagði þá kemur fyrir að ég geri algjörar vitleysur og er þetta einn af þeim dögum.

Allavega, í tíma í dag starði ég á þessa stelpu og þar sem ég kann ekki að teikna, orti ég ljóð um hana. Þetta ljóð átti nú aldrei að verða upplýst en þar sem núna eftir á finnst mér þetta svo fyndið að ég verð að birta þetta hérna á eftir.

Eftir skóla fór ég heim og fletti upp nafninu hennar á vef nemendafélagsins og fann símanúmerið hennar. Eftir það sendi ég henni sms og svaraði hún á móti. Hér er samtalið:

Ég: Halló, afsakaðu ég þekki þig ekki neitt en ertu svarthærð og varst í landafræði 103 áðan hjá Óttari?
Hún: Já af hverju og hver ert þú?
Ég: Þetta er hálf kjánalegt og virkar virkilega desperate, en ég var með þér í landafræði áðan. Ég hef séð þig margoft í skólanum en aldrei vitað hvað þú heitir, en ég heyrði það áðan í tíma og varð að senda þér sms. Ég er ekki vanur að gera þetta.
Hún: Hvað heitiru?
Ég: Guðjón, kallaður Gaui. Sat fyrir aftan þig.
Hún: Ég á kærasta!
Ég: Allt í góðu. Flestir brjóta ísinn fullir á djamminu en ég ákvað að bregðast aðeins út af vananum og gera þetta edrú. Afsakaðu ónæðið bara.

Þetta er það sem fór okkar á milli og meira varð það ekki. Hvað heldur hún að ég sé núna? Einhver lonely ass gaur sem stalkar hana. Nei nei, ég myndi nú aldrei gera það. En þetta var bara fyndið að gera þetta.

Ég hefði náttúrulega átt að gera þetta edrú og við hana í persónu, en þar sem ég er svo mikill aumingi ákvað ég að fara aumingjaleiðina og gekk hún ekki.

Fyndið líka að hún hafi verið geðveikt forvitin til að byrja með en svo eftir að ég hafi kynnt mig og sagt henni hver ég væri, þá bara: "Ég á kærasta!". Hehe, hún hefur örugglega hugsað: "Ojj, ógeðslegi gaurinn fyrir aftan mig!". En seriously, þetta er fyndið eftir á.

Og svo eitt í viðbót. Ef ég hefði ekki gert þetta, hefði ég aldrei vitað hvort hún hefði áhuga eða ekki. En núna þegar ég veit það, líður mér miklu betur og get snúið mér að öðru.

Ég veit ekki af hverju en fyrst var ég geðveikt stressaður að hitta hana næst í skólanum en núna er mér alveg sama. Hún á örugglega eftir að hlæja að mér og hvísla að vinkonum sínum um mig, flissa og gera grín að mér, en mér er alveg sama. Ég reyndi þó og það er meira en margir aðrir geta sagt.

En hérna er þetta súrelíska ljóð...

Hér sit ég og stari í tíma,
til skiptis á töfluna og þig.
Þori ekki að biðja um síma,
af ótta hvað þér finnist um mig.

Ég ætlaði að senda þér miða,
og reyna að spjalla við þig,
en reyndist það mér ofviða,
því orti ég ljóð fyrir þig.

Eitthvað þig góða gerir,
bros þitt og útlit svo flott.
Hausnum á mér þú hringsnérir,
sem ekkert er annað en gott.

Hér læt ég kvæðið gott heita,
og synd er að ekki þora,
en ef þú mér skyldir neita,
vil ég þú hendir þessum sora.

Hahaha, fyndið ljóð.

En svo fyrir utan þetta fór ég bara í skólann. Eftir skóla skrapp ég í Kringluna og skipti nokkrum bókum og keypti nokkrar í viðbót. Svo fór ég bara heim og gerði mig kláran fyrir vinnuna.

Það var bara fínt í vinnunni í kvöld. Ég var á barnum og verð nú bara að segja að það var bara helvíti skemmtilegt. Þetta virkar þannig að þjónarnir úti í sal taka pöntun hjá kúnnunum, fara svo í tölvuna og BOMMA því inn. Svo fæ ég útprentun á barnum og geri drykkina fyrir þjónana. Bara gaman.

En eftir vinnu fór ég bara heim og lagðist aðeins upp í rúm. Ég ætlaði nú ekki að sofna, þar sem ég ætlaði að kíkja til Hafdísar, sem er að vinna með mér á Kránni, og kíkja á fólkið þar. En ég þurfti auðvitað að sofna. Svo var ég að vakna núna. Ég er samt hálf feginn að ég hafi sofnað og vaknað núna, þar sem ég var búinn að lofa Vigga á Topp5.is að gera smá verkefni fyrir hann og núna er kjörinn tími til þess. Svo ef vel tekst til og ég klára verkefnið, kemst ég að djamma á morgun.

En eruði að grínast? Fólk er alltaf eitthvað að segja "Eruði að grínast hvað er kalt úti" eða eitthvað sambærilegt. En hvað er málið með þetta "Ertu að grínast". Þetta er nefnilega sjaldnast grín og ef þetta er grín, er þetta ekki fyndið grín. Jú jú, allt í plati! Það er ekkert svona kalt úti! Þetta var bara fyndið grín!

Segjum þetta ágætt í bili.




Athugasemdir ():