Jahá
Skrifað sunnud. 20. nóvember 2005 - 06:17En skemmtilegur dagur. Vaknaði þunnur og ógeðslegur.
Ég fór seint á fætur. Var í tölvunni eitthvað fram eftir og svo biður Kristín, fyrrverandi kærastan hans Kamils, mig um að hitta sig. Ég fer og hitti hana og við spjöllum saman.
Áður en ég fór út hringdi Hulda í mig og baðst afsökunar á því að hún hefði ekki komið í afmælið í gær. Ég sagði að það væri allt í lagi. Hún spyr mig hvað ég sé að fara að gera í kvöld og ég segi henni að ég ætli ekki að gera neitt sérstakt, bara rúnta eða eitthvað. Hún segir við mig að ef ég vilji megi ég alveg kíkja til hennar.
Eftir að ég hitti Kristínu fer ég til Huldu. Ég hringi í hana þegar ég er fyrir utan hjá henni og segi henni að ég sé kominn. Þá spyr hún af hverju ég hafi ekki hringt á undan mér því hún var farin í eitthvað partý hjá vini sínum. Ég segi bara allt í lagi. Alveg típískur ég að láta alltaf draga mig á asnaeyrunum. Þá segir hún: "Farðu bara til Guðrúnar og láttu hana vorkenna þér og þá færðu kannski að sofa hjá henni". Ok, heyrði ég rétt?! Er ég eitthvað að leita mér að ríða? Og þarf ég að láta stelpuna vorkenna mér? Ég bara WHAT!!! Af hverju í andskotanum sagði hún þetta? Ég og Guðrún erum góðir vinir en það er ekkert svoleiðis í gangi á milli okkar. Ég skil ekki af hverju hún sagði þetta. Ömurlegt af henni. Særði mig djúpt
Ég er ekki að vonast neitt með Huldu. Vildi bara hitta hana og spjalla því að mér fannst hún geðveikt skemmtileg. Ég átti ekki von á þessu frá henni.
Ég sagðist vera hættur að væla um Huldu, og er ég hættur því. Mig vantaði bara að tjá mig.
Eftir þetta fer ég bara að rúnta niðri í bæ. Hringi í Kamil og við förum að rúnta saman. Seinna um kvöldið, var hann eitthvað að þenja bílinn sinn og svo kemur allt í einu geðveikur reykur úr vélarsalnum. Við förum inn á Essó til að kíkja á þetta. Þá hafði slangan frá kælivökvanum yfir í intercoolerinn, sprungið! Við förum á mínum bíl í Shell í Öskjuhlíð og kaupum kælivökva, förum svo og setjum kælivökvann á bílinn hans og hann klippir smá af slöngunni og setur hana aftur á. Allt reddað. Leiðinlegt samt þegar svona gerist.
En núna er ég bara að fara að sofa. Ég er að fara að vinna á morgun þannig ég þarf að vakna fyrir 6. Spurning hvort að það sé gerlegt.
Góða nótt, elskurnar.
Lag morgundagsins:
Janis Joplin - The Rose

Athugasemdir (