Deila á Facebook
« Föstudagurinn 12. janúar | Aðalsíða | Leynilegur aðdáandi? »

Laugardagurinn 13. janúar
Skrifað sunnud. 14. janúar 2007 - 23:07
athugasemdir skrifaðar - toppur / botn
Ég kíkti á djammið í gær. Það var nú bara helvíti fínt. Fyrsta alvöru djammið mitt eftir að ég kom úr sambandi. En það er frá mörgu að segja hvað gerðist í gær.

Þetta byrjaði allt með því að Grétar hafði boðið mér í spilakvöld með strákunum. Ég var ekkert sérlega spenntur fyrir að fara að spila þannig ég sat bara í tölvunni til að verða 12 um miðnætti og ákvað þá að byrja að taka mig til. Skellti mér í sturtu og klæddi mig í jakkafötin, þar sem Grétar hafði sagt mér að koma í jakkafötum. Ég gerði það auðvitað.

Svo eftir að ég var klár rölti ég heim til Grétars. Það var helling af liði þar. Þ.á.m. Grétar, Helgi, Gummi, Jökull, Steini, vinur Steina, Palli, Rafn, Jói, Gunni, Oddur og Agnes kærasta hans, Hlynur og kærasta hans og svo helling af sveittum tölvuspilurum, sem voru vinir hans Odds.

Þegar ég kom voru strákarnir allir uppi að spila, en það var búið stuttu eftir að ég kom. Sem betur fer. Svo kíktum við Helgi bara niður til Odds og Agnesar og fórum að syngja þar og Helgi spilaði auðvitað á gítarinn. Þetta var geðveikt gaman.

Þegar það var dregið svolítið á kvöldið ákváðum við að kíkja niður í bæ. Jökull var á bíl þannig hann gat tekið 4. Það var fljótt að verða fullt hjá honum þar sem strákarnir sem voru hjá honum voru fljótir að panta. Ég fór og spurði hann hvort það væri laust pláss fyrir mig og svaraði hann játandi. Svo kom Helgi og spurði hvort það væri laust pláss fyrir sig en þá var allt fullt. Ég bauð þá Helga plássið mitt og tók bara leigubíl með Rafni, Steina og vini Steina.

Eftir að við komum niður í bæ þurftum við að bíða heillengi í röð fyrir utan Sólon. Við gerðum bara gott úr því og fórum að syngja I Wanna Dance With Somebody með Whitney Houston, sem var einmitt verið að spila inni á Sólon. Það var geðveikt gaman og hlýnaði okkur smávegis við það.

En þegar við loksins komumst inn skelltu strákarnir sér á klósettið og ég á barinn. Á leiðinni á barinn hitti ég kærasta Hlínar, sem ég sendi sms'ið til um daginn. Hann spurði mig hvort ég hefði verið að reyna við kærustuna hans og ég kom alveg af fjöllum og sagði bara: "HA???" en þá útskýrði hann að hann væri kærasti Hlínar. Þá fór ég aðeins að skilja. Svo sagði ég bara við hann að strax og ég hefði komist að því að hún hætti kærasta hefði ég hætt að tala við hana, þannig ég var ekki fífl eins og fyrir nokkrum mánuðum með Lísu. Allavega, fínn gæji þarna á ferð.

En varðandi barferðina, ég var án djóks edrú þannig ég varð að gera eitthvað róttækt í því og skellti mér á Tópasskot og bjór. Svo skellti ég mér aðeins á dansgólfið með Steina, Rafni og Ingu.

Eftir smá dans fór ég að spá í hvar Helgi, Gummi, Grétar og þeir væru þannig ég hringdi í símann hans Grétars og þá hafði hann víst gleymt símanum sínum heima og ég hafði öskrað nokkrum sinnum á mömmu hans: "HVAR ERTU?".

Svo hringdi ég í Helga og spurði hann hvar hann væri. Hann sagðist ætla að koma hjá stiganum. Eftir að ég var búinn að tala við Helga í símann hitti ég Jóa dyravörð á Sólon. Hann var búinn að týna öllum og var með 2 Töfrateppi og bauð mér 1 þeirra út af því að hann var búinn að týna öllum.

En djöfull er ég reiður út í sjálfan mig. Af hverju? Út af því að ég er sjálfselskt helvítis fífl. Jói er kærasti Lísu, sem ég var að "reyna við" fyrir nokkrum mánuðum.

Hérna er smá úr færslunni...

En á föstudaginn kynntist ég stelpu, sem heitir Lísa. Ég var með henni meiri hlutann af föstudagskvöldinu. Svo í lok kvöldsins á föstudaginn bað ég um númerið hjá henni, en hún vildi ekki gefa mér það, þar sem hún sagðist vera á föstu, og sagði mér bara að hitta sig næsta kvöld. Ég lofaði henni að gera það, og viti menn, ég hitti hana aftur í gær. Hún var með vinkonu sinni, Thelmu, sem er núna kennd við það að drekka meirihlutann af öllum drykkjum sem ég kaupi á barnum. En allavega, ég hitti Lísu og við settumst eitthvað niður og fórum að spjalla. Hún var þá ekkert að djóka með að hún hefði verið á föstu. Hún hætti með honum einmitt þetta kvöld (laugardag). Fyrrverandi kærastinn hennar var víst þarna líka og eitthvað. Æjj, greyið. En svo fórum við að dansa, en hún þorði ekki að dansa eins og við Eygló höfðum verið að dansa. Ég sagði henni bara að ég myndi stýra, en hún vildi það samt ekki.

Svo þegar Sólon var að loka bað ég um númerið hennar aftur, og gaf hún mér það. Ég treysti henni fyrst ekki, þar sem hún var nýhætt með kærastanum sínum, þannig ég tók mig til og hringdi í númerið sem hún gaf mér, og viti menn, þetta var hennar rétta númer. Geðveikt paranoid gaur. Eftir þetta sá ég hana vera að tala við sinn fyrrverandi, og eftir að þau voru hætt að tala saman spurði ég hana hvort þetta væri kærastinn hennar, og hún sagði já. Ég fór þá geðveikt að baktala hann við hana og eitthvað, og skil ég engan veginn af hverju ég gerði það, enda var ég allt of fullur. Hún missti örugglega áhugann á mér eftir að ég gerði það. Hvað er að mér?!

Án djóks, hvað er að mér? Ég talaði við Jóa af alvöru í gær og þetta er bara frábær gaur! Ég, frá mér, til mín að reyna við Lísu sem var nýhætt með honum (sama kvöld).

Ég komst að því að hann les bloggið mitt og hafði lesið þetta sem ég skrifaði þarna fyrir nokkrum mánuðum. En ég sé ótrúlega eftir því að hafa verið svona ógeðslega sjálfelskur og reynt við fyrrverandi kærustuna hans og þar að auki talað illa um hann við hana! Jesús, hvað er að mér stundum?! Ég þekkti Jóa ekki neitt en samt var ég að baktala hann. Hahaha, vá talandi um aula (MIG)!

En allavega, ef ég væri hann myndi ég lemja mig í klessu fyrir það að vera svona mikið fífl. En hann sagði að þetta skipti ekki máli og að við værum góðir. Þetta er eðal náungi!!! ALVEG EÐALL! Stundum þarf maður að kynnast fólki áður en maður fer að baktala það. Það er alveg á kláru! Jesús, sem kemur mér aftur að því... HVAÐ VAR ÉG AÐ SPÁ?

En allavega, við Jói spjölluðum saman og svo kom Helgi. Helgi vildi að ég hætti að tala við Jóa og kæmi með honum upp að dansa en það var mjög gaman að tala við Jóa og vil ég þakka honum kærlega fyrir frábært spjall. Þ.e. ef hann sér þetta.

En svo fór ég upp með feita svíninu að dansa. Við hittum vinkonu Helga og Ingu, vinkonu Steina, og fórum að dansa við þær.

Svo aðeins seinna sé ég Jóa aftur og hann bendir mér að koma til sín og fer ég til hans og þá var hann búinn að týna fólkinu sínu aftur og bauð mér annað Töfrateppi. Hahaha, talandi um brilliant gaur!

En eftir mikinn dans og mikla drykkju ákvað ég að fara bara niður með Helga og kæla okkur aðeins. Við sáum þá Grétar, Palla, Gaua bróðir Gumma ofl. sitja þarna við eitthvað borð. Við Helgi settumst þá bara hjá þeim, en um leið og ég settist niður varð ég allt í einu ÓGEÐSLEGA fullur. Jesús, ég var við það að deyja, en það lagaðist þegar við fórum út.

Ég, Helgi og Palli röltum að Hlöllavagninum en hann var búinn að loka, þannig við fórum á Hlöllabáta á Ingólfstorgi. Ég lánaði Helga fyrir Hlölla og kók. Eftir það röltum við í rónahornið og borðuðum þar. Eftir það röltum við bara í leigubílaröðina.

Ég sagði að þessi röð væri ógeðslega löng en Palli sagði að þetta væri engin röð, sem var bara kjaftæði! Við biðum alveg heillengi bara eftir því að komast inn í helvítis strætóskýlið. En við hittum helvíti hressa Frakka. Einn þeirra heitir Baco og þekkti ég hann af Devitos minnir mig. Svo fór Palli að rífa kjaft og ætluðu Frakkarnir að ráðast á Palla en ég sagði þeim að Palli væri vinur minn. Þá tókust þeir í höndina og eitthvað. Svo var eitthvað annað fífl sem var að ryðjast í röðinni og ég sagði honum að hætta því, þá starði hann geðveikt á mig og ætlaði að berja mig. Hehehe. Svo byrjaði Helgi eitthvað að spyrja hann...

Helgi: Af hverju ertu að stara svona á hann? Finnst þér hann svona fallegur?
Gaurinn: Pfff, hann er sko ekki fallegur.
Helgi: Af hverju ertu þá að stara svona á hann? Ætlaru að berja hann?
Gaurinn: Kannski.

Svo byrjuðu heilmiklar umræður um það hversu grimmur ég hefði verið þegar ég sagði honum að hætta að ryðjast. Jesús, ég spurði hann bara hvað hann væri að gera og sagði honum að hætta að ryðjast. Rólegur, félagi.

En svo kom loksins leigubíll fyrir okkur og settumst við inn í hann. Svo fórum við fyrst til Helga og svo til mín. Ég þurfti að lána Helga líka fyrir leigubílnum og svo fór ég út og Palli með leigubílnum upp í Mosó.

En djöfull var þetta einmanalegt kvöld. Jæja, farinn að læra. Segjum þetta ágætt í bili. Bless bless!

P.S. Ég eyddi 10.000 kr. í gær!




Athugasemdir ():