The Prestige
Skrifað þriðjud. 16. janúar 2007 - 21:53Jæja, ætli ég hendi ekki inn smá bloggi um sl. daga, þar sem ég gleymdi víst að skrifa eitthvað um þá. 
Á aðfaranótt mánudags var ég bara í tölvunni langt fram eftir nóttu. Ég ákvað svo að vera duglegur og læra fyrir tíma og fór að glósa úr Snorra-Eddu fyrir íslensku. Ég kláraði það í kringum 5 um morguninn og fór þá bara að sofa.
Svo stillti ég vekjaraklukkuna á 11:00 þar sem ég átti að mæta kl 11:20, en ég vaknaði ekki fyrr en kl 12 þegar pabbi ákvað að vekja mig. Spáið í kaldhæðninni að vera að læra langt fram eftir nóttu og sofa svo yfir tímann sem maður var að læra fyrir. Það er mun skárra að gera ekki heimavinnu heldur en að fá skróp.
En núna í gær ákváðum við Alexía að fara í bíó saman í milljónasta skiptið. Hún stakk upp á að við færum á Apocalypto, sem er leikstýrð af Mel Gibson. Ég vildi nú ekki að við færum á eitthvað The Passion of the Christ hryðjuverk þannig ég stakk upp á The Prestige.

Myndin fjallar um þá Robert Angier og Alfred Borden, sem byrja sem hinir mestu mátar og áhugamenn um sjónhverfingar. Þeir byrja að vinna saman á sýningum við að þykjast vera áhorfendur sem koma upp á svið og binda hnúta á konu Angiers, áður en hún fer ofan í vatnið og leysir hnútana. Eitthvað klikkar og nær hún ekki að leysa hnútinn sem Borden batt og endar það með því að hún lætur lífið. Eftir það brestur vináttan á milli þeirra þar sem Borden segist ekki vita hvaða hnút hann batt. Þeir fara þá í sitthvora áttina og setja upp sínar eigin sýningar og byrjar þá hörku samkeppni á milli þeirra, sem endar með vígalegri orustu.
Handritið og leikurinn er tær snilld og ekki er hægt að segja að leikararnir séu af verra taginu, þar sem þá skarta engir nema Christian Bale, sem leikur Alfred Borden, Hugh Jackman, sem leikur Robert Angier, Michael Caine sem leikur Cutter og skvísan Scarlett Johansson sem leikur Oliviu.
Christian Bale lék m.a. í Batman Begins og er þekktastur hjá mér sem aðalhlutverkið í American Psycho. Snilldar leikari þar á ferð og fer með hlutverk sitt snilldarlega. Hugh Jackman er held ég mest þekktastur fyrir hlutverk sitt í X-Men myndaröðunum, þar sem hann leikur Wolverine. Hann fer einnig með hlutverk sitt snilldarlega. Michael Caine þekki ég hins vegar best úr Batman Begins, þar sem hann leikur brytann Alfred. Að lokum Scarlett Johansson en hún hefur verið að færa sig æ meir upp á bátinn varðandi leikaraferil sinn og nú þann dag í dag er hún orðin hörku leikkona.
Ég þarf ekki að fara leynt með það að lýsa þessa mynd þá bestu sem komið hefur út á þessu nýja ári, en ég hef ekki séð slíka mynd síðan ég sá The Departed í nóvember. Þessa mynd verðið þið að sjá og gæti ég vel hugsað mér að kaupa hana á DVD þegar hún kemur út.
Ég ætla að gefa þessari mynd 5 stjörnur af 5!
En eftir bíóið skutlaði ég bara Alexíu heim en ég þurfti að útskýra myndina svolítið fyrir henni þar sem hún var ekki alveg að fatta.
En á endanum fattaði hún hana. En takk æðislega fyrir bíóið, elskan. 
En núna fyrir sirka tveim árum skrifaði ég um krakka sem voru að henda snjóboltum í bílinn minn. En það gerðist einmitt í dag. Ég var á leiðinni heim úr skólanum og keyrði fram hjá Hamraskóla, gamla grunnskólanum mínum, og sé ég þá ekki krakka standa þarna og bíða eftir að ég myndi keyra fram hjá svo þeir gætu kastað snjóbolta í bílinn minn. Ég keyrði rosalega hægt fram hjá þeim og horfði á þá á meðan en svo sá ég einn kasta og það var ekkert smá flikki. Það lá við að ég hefði fundið titringinn undan klakanum sem krakkahelvítið kastaði í bílinn minn. Ég snarhemlaði, fór út og labbaði að krakkanum. Hann var ekki lengi að hlaupa í burtu. Ég skoðaði svo bílinn vandlega en ég sá enga beyglu þannig ég fór bara.
Hefði krakkagerpið beyglað bílinn hefði ég talað við krakkana sem voru þarna, sem voru mjög viljugir við að benda mér á strákinn, farið svo upp á skrifstofu til skólastjórans og heimtað að fá heimilisfangið hjá gerpinu. Svo hefði ég farið heim til hans og lamið hann í klessu! Nei, ég segi svona.
Ég hefði allavega rætt við foreldra hans og krafist af þeim að borga skemmdina.
Vááá, ég þoli ekki svona krakka sem hugsa ekki neitt um hvað getur valdið skemmdum á hlutum. Bara henda snjóboltum og hugsa ekki neitt, lang best!

Athugasemdir (