Deila á Facebook
« The Prestige | Aðalsíða | Föstudagur - Misheppnuð brettaferð! »

Byrgið - Mergur málsins
Skrifað fimmtud. 18. janúar 2007 - 00:20
athugasemdir skrifaðar - toppur / botn
Jæja, er ekki kominn tími til að ég fjalli smá um Byrgið? Þetta blessaða meðferðarheimili og kristilega líknarfélag, sem Guðmundur Jónsson sá um að reka. Fyrst til að byrja með vissi ég ekkert um þetta mál og heyrði alla vera að tala um Byrgið, þannig ég fór aðeins að forvitnast í þessu máli og ákvað að skrifa svolítið um það.

Til að byrja með vil ég taka fram að Byrgið var meðferðarheimili fyrir fíkla og alkohólista en þetta var allt rekið á kristilegum grunni. Í dag er búið að loka Byrginu.

Þetta byrjaði allt í desember þegar fréttaskýringaþátturinn Kompás fjallaði um Guðmund Jónsson, forstöðumann Byrgisins, og höfðu þeir undir höndunum gögn sem sönnuðu að Guðmundur hafi tælt meðferðarsjúklinga sína til kynlífsathafna. Um var að ræða m.a. BDSM kynlíf.

Sönnunargögn Kompáss voru m.a. vitnisburðir fjögurra kvenna sem segjast hafa lent í að Guðmundur hafi tælt þær til kynlífsathafna. Ásamt vitnisburðunum hefur Kompás gögn sem sýna m.a. getnaðarlim hans sendan í tölvupósti og myndskilaboðum. Þrátt fyrir öll þessi sönnunargögn Kompáss þvertekur Guðmundur fyrir að þessar sannanir séu sannar.

Guðmundur hélt því fram að Guð læknaði í gegnum hann, þar sem hann gæti fyrirgefið syndir fyrir hönd Guðs og að sæði hans hefði lækningarmátt. Þannig er talið líklegt að hann hafi tælt saklausa fíkla til kynlífsathafna með sér, ásamt því að hafa keypt gjafir handa þeim, þ.á.m. skartgripi og föt.

Skoðaðar voru fjármálaskrár Byrgisins og var sagt að fjármálastjórn Byrgisins væri í molum. Þrátt fyrir það hefur Byrgið árinu 1999 fengið allt upp í 200 milljónir króna úr ríkissjóði og verið með ýmsa þjónustusamninga við ýmsar ríkisstofnanir.

Fyrst var haldið því fram að það væri ekki grundvöllur fyrir nánari rannsókn á þessu máli, þar sem sýslumanni hafði ekki borist nein kæra á hendur Guðmundar, en það hefur breyst örlítið í dag, þar sem í dag hefur honum borist tvennar kærur á hendur sér.

Byrgið höfðaði síðar meiðyrðamál gegn Stöð 2 vegna umfjöllunar Kompáss um Guðmund Jónsson, forstöðumann Byrgisins. Ég hef ekki heyrt neitt frá því máli og tel því að það eigi eftir að taka það mál upp eða þá að því sé lokið og tapað.

Nokkrum dögum eftir umfjöllun Kompáss um Byrgið og forstöðumann þess, Guðmund Jónssonar, barst kæra á hendur Guðmundar. Sú kæra kom frá Ólöfu Ósk Erlendsdóttir, 23 ára gömlum meðferðarsjúklingi í Byrginu. Hún sakaði hann um kynferðislega misbeitingu, en samband hennar og Guðmundar hafði staðið yfir í um 2 ár.

Þrátt fyrir þessa kæru hafði Guðmundur ítrekað neitað því að hafa átt í kynferðissambandi við skjólstæðinga sína.

Guðmundur Týr Þórarinsson, forstöðumaður Götusmiðjunnar, einnig þekktur sem Mummi í Götusmiðjunni, sendi frá sér yfirlýsingu þar sem hann óttaðist að fólk myndi rugla honum og Guðmundi Jónssyni, forstöðumanni Byrgisins, saman, þar sem þeir eru í svipuðum bransa og heita báðir Guðmundur, og átti fólk til að rugla Byrginu og Götusmiðjunni saman. Í yfirlýsingunni tók hann bara fram að ekki væri um Götusmiðjuna eða hann að ræða. Einnig er ágætt að taka fram í leiðinni að Byrgið og Götusmiðjan tengjast ekki á neinn hátt, skv. yfirlýsingu Mumma í Götusmiðjunni.

Einnig kom fram í byrjun rannsókn málsins í desember að Byrgið hefði verið að brjóta lög allan þennan tíma, þar sem það væri ekki skráð sjúkrastofnun og hefði því ekki leyfi til að stunda afeitrun.

Núna 15. janúar 2007 var svo Byrginu lokað. Guðmundur sagði stjórnina hafa tekið þessa ákvörðun eftir að félagsmálaráðuneytið ákvað að stöðva greiðslur þangað vegna rannsókn málsins.

Einnig lagði þrítug kona fram kæru í dag á hendur Guðmundar Jónssonar, fyrrverandi forstöðumanns Byrgisins, þar sem hún sakaði hann um kynferðislega misbeitingu, svipað og Ólöf í desember.

Eins og staðan í dag er getur Guðmundur Jónsson átt yfir höfði sér 6 ára fangelsi verði hann kærður og fundinn sekur um fjárdrátt, umboðs- og bókhaldssvik.

Alls hafa borist 2 kærur á hendur Guðmundar en þrátt fyrir þær neitar Guðmundur enn því að hafa átt í kynferðissambandi við skjólstæðinga sína.

Í gær vísaði ríkissaksóknari máli Byrgisins til efnahagsbrotadeildar Ríkislögreglustjóra, skv. Helga Magnúsi Gunnarssyni, saksóknara í efnahagsbrotadeild hjá Ríkislögreglustjóra.

Guðmundur Jónsson, fyrrverandi forstöðumaður Byrgisins


Þetta er orðið svipað mál og hjá Baugi. Risastórt og óleysanlegt, þó framgangur þessa máls sé mun hraðari en í Baugsmálinu.

En allavega nýjustu fréttir eru þær að lekið hefur á netið myndband með Guðmundi og einum af skjólstæðingum hans, þar sem þau eru að stunda BDSM kynlíf. Svipað og Kompás hafði sönnun fyrir því með vitnisburði kvennanna, en hann neitaði því í sífellu, en núna er komið myndband á netið sem sannar þetta. Sjón er sögu ríkari.

En allavega, þessar konur sem kærðu hann fyrir nauðgun. Ég held nú að þær fari með rangt mál þar sem það sést augljóslega í myndbandinu að henni sé ekki haldið gegn hennar vilja, þar sem hann er bundinn á meðan hún er frjáls. Hvað kom í veg fyrir að hún hafi bara hlaupið út og strokið ef hún heldur því fram núna að hann hafi nauðgað sér? Það væri mun líklegra að hún hafi verið að nauðga honum og haldið honum gegn sínum vilja, en því miður heyrist annað á hljóðinu, þar sem samtölin eru á vinalegu og rólegu nótunum.

Er það ekki bara þannig að þau hafi ákveðið að stunda kynlíf í sameiningu, en svo þegar Kompás komst að þessu hafi þau orðið hrædd við viðurlögin, þar sem skv. lögum er starfsmönnum stofnana óheimilt að hafa mök við vistmenn sína. Eftir það hafi hún ákveðið að koma allri sök á Guðmund til þess að sleppa eins auðveldlega og hún gat hugsað sér. Ég get samt ekki sagt að hann hafi hana neytt hana til eins né neins, þar sem þetta samband þeirra gekk yfir í um 2 ár.

Hann er vissulega sekur fyrir fjár- og bókhaldssvik Byrgisins, en varðandi hitt segi ég: Saklaus uns sekt er sönnuð.

Myndband + myndir:




Athugasemdir ():