Föstudagur - Misheppnuð brettaferð!
Skrifað laugard. 20. janúar 2007 - 22:32Ég vil byrja á því að segja VÓÓÓÓÓ yfir því hversu margir eru búnir að skoða þessa blessuðu Byrgisfærslu, og þakka ég kærlega fyrir allar athugasemdirnar sem bárust þangað inn. En þetta verður nú ekkert svaka blogg, þar sem ég er hálf máttlaus að skrifa svona mikið um Byrgið.
En allavega...
Á föstudaginn sl. fór ég með Jökli á snjóbretti upp í Bláfjöll. Ég byrjaði á því að fara út í bílskúr upp á háaloft og leita að brettinu og snjóbrettafötunum, en það tók sirka hálftíma að róta til uppi á háalofti þangað til ég fann helvítis draslið.
Eftir það fórum við á KFC í Mosó þar sem við fengum okkur að borða áður en við fórum á bretti. Verst var að maður borðaði aðeins of mikið þannig maður var hálf afvelta eftir máltíðina.
En þegar við komum upp í Bláfjöll var mjög löng röð í miðasölunni og þurftum við að bíða í sirka hálftíma áður en við gátum keypt miða. Svo labbaði lítill svartur maður fram hjá okkur og ég kallaði: "Óli" og þá kom hann til okkar. Þetta var þá Óli, fínn félagi okkar.
En eftir að við höfðum keypt miða vildu strákarnir fara beint í stólalyftuna en ég vildi byrja á því að fara í barnabrekkuna og renna okkur svo þaðan niður í stólana, og að lokum samþykktu þeir það.
Svo þegar við renndum okkur niður í stólana og vorum nýsestir í stólinn fór rafmagnið af öllu í Bláfjöllum. Þá hafði einhver gáfulegur sendimaður frá Rúv keyrt með loftnetið á bílnum uppi og rifið niður rafmagnslínu. Glæsilegt!
En hefðum við farið beint í stólalyftuna og strákarnir hefðu ekki hlustað á mig um að fara fyrst í barnabrekkuna hefðum við verið í þessari stöðu. Ég er skyggn!
Við fórum þá bara heim eftir þessa glötuðu brettaferð og ætlum svo sannarlega að fá endurgreitt eða frítt í eitt skipti. Fyrir 1200 kr. fengum við eina bunu niður barnabrekkuna. Ég hefði frekar sleppt því að fara þarna hefði ég vitað að þetta yrði svona.
En svo seinna um kvöldið komu strákarnir til mín; Grétar, Jökull, Helgi og Andri. Við vorum bara heima hjá mér til svona 3 um nótt en í millitíðinni pöntuðum við Jökull okkur 18" pizzu frá Hróa Hetti. Mmmmm... það var gott. Helgi og Andri fengu örbylgjuhitaðar kjúklingabollur, þar sem þeir áttu engan pening.
Svo komu Íris og vinkona hennar og sóttu okkur og skutluðu mér, Helga og Andra niður í bæ. Takk æðislega fyrir það.
Grétar og Jökull fóru bara heim. 
Svo endaði þetta með því að ég var einn eftir á Sólon, þar sem Helgi og Andri fóru bara heim. Ég var þá bara einn fyrst en hitti svo Eygló og Svövu. Svo skutlaði Gummi okkur bara heim í lok kvöldsins. Takk æðislega fyrir farið, Gummi minn.
En nú í kvöld... það kemur í ljós.

Athugasemdir (