Deila á Facebook
« Föstudagur - Misheppnuð brettaferð! | Aðalsíða | Snjóbrettaferð #2 - American Idol? »

Apocalypto & laugardagur
Skrifað mánud. 22. janúar 2007 - 02:28
athugasemdir skrifaðar - toppur / botn
Ég gleymdi víst að skrifa um fimmtudaginn þannig ég ætla bara að gera það núna ásamt laugardeginum.

Á fimmtudag fór ég með Alexíu í bíó á myndina Apocalypto eftir Mel Gibson. Við vorum alltaf búin að ákveða að fara á hana en svo fórum við alltaf á einhverjar aðrar myndir í staðinn, þannig við sáum hana aldrei. En við sáum hana núna á fimmtudaginn sl. og verð ég bara að segja að hún kom mér svolítið á óvart.

Hún fjallar um frumbyggja ættbálk sem býr á eyðieyju. Einn dag ræðst annar ættbálkar inn í þorpið þeirra, rænir fólkinu og brennir svo þorpið. Þeir fara með allan ættbálkinn til indíána, sem kallast Aztekar, og leyfa þeim að fórna þeim fyrir sólarguð sinn. Að lokum nær Jagúarloppa (e. Jaguar Paw) að flýja frá óvinunum og snýst myndin að mestu leyti um það.


Þessi mynd kom mér svolítið á óvart þar sem ég er ekki mikið fyrir svona frumbyggjamyndir, en þessi var held ég bara ein besta svona mynd sem ég hef séð. Ég verð nú að vera hreinskilinn og segja að ég myndi aldrei kaupa þessa mynd á DVD en þetta er fín mynd til að sjá einu sinni eða tvisvar. Ágætis mynd hjá Mel Gibson eftir The Passion of The Christ.

Ég gef henni 3 stjörnur af 5 mögulegum.

En núna á laugardaginn var auðvitað djammað. Áður en strákarnir komu til mín ákvað ég að panta pizzu og voru strákarnir allir til í það. Ég pantaði pizzuna og náðu svo Helgi og Andri í hana áður en þeir komu til mín. Svo komu þeir með pizzuna og Helgi fór svo strax aftur að hitta Herdísi. Grétar og Jökull voru ógeðslega lengi að koma sér yfir, en þeir voru víst í útskriftarveislu hjá Agnesi systir hans Jökuls og kærasta Odds, bróðir Grétars. Greyin fengu þá bara kalda pizzu.

En þetta var fínt heima hjá mér, engin læti og ekki neitt. Bara allir rólegir þrátt fyrir mikla drykkju. En svo eftir að við vorum búnir að drekka nóg fór Jökull bara heim til sín og ég, Grétar, Helgi og Andri fórum niður í bæ. Helgi keyrði og var kallinn edrú. Maður er ekki vanur að verða vitni að því um helgar og sérstaklega ekki á laugardegi!

Ég held það hafi nú ekki neitt sérstakt skeð þarna um kvöldið. Bara enn eitt laugardagsdjammið. En í lok kvöldsins skutlaði Gummi mér, Grétari og Andra heim. Ég man að ég var ógeðslega fullur en ég man samt allt sem gerðist þetta ágæta kvöld. Svo næstu helgi er örugglega smá djamm og svo 2 vikna löng djammpása, þar sem ég verð að vinna 2 helgar í röð.

En ég ætla að enda þessa færslu á samtali Helga við einhverja stelpu í símanum á föstudaginn síðasta...

Helgi: Hæ maður. Hvað segiru?
Stelpa: Ég segi bara allt fínt. Hver er þetta?
Helgi: Helgi.
Stelpa: Og hvaða Helgi er það?
Helgi: Verslunarmannahelgi.

Eftir þetta sprungum við allir úr hlátri. Algjör snilld!

En segjum þetta ágætt í bili. Ég er með einhverja ritstíflu núna vegna einhvers þunglyndis sem ég er að glíma við, en það reddast vonandi. Þetta kemur stundum og fer svo aftur. Kemur fyrir að maður vaknar bara einn daginn, nennir ekki að gera neitt og situr bara fyrir framan tölvuna og spyr sig: "Hver er tilgangurinn með lífinu?". Ekkert til að hafa áhyggjur af samt. Þetta fer með tímanum.




Athugasemdir ():