Deila á Facebook
« Snjóbrettaferð #2 - American Idol? | Aðalsíða | Ísland vs. Pólland »

Fölsuð skilríki?
Skrifað miðvikud. 24. janúar 2007 - 22:26
athugasemdir skrifaðar - toppur / botn
Þetta var nú ekki beint merkilegur dagur en hann er þó loks búinn og helgin nálgast óðum.

Í dag stóð ég fyrir utan íslenskustofuna og heyrði nokkrar stelpur vera að tala um eitthvað djamm núna næstu helgi.

Samtalið var eitthvað á þessa leið...

Stelpa 1: Ég fer sko feitt að djamma næstu helgi. Ætlið þið ekki að koma?
Stelpa 2: Júm, ég kem pottþétt!
Stelpa 3: Ég bara á ekki skilríki.
Stelpa 1: Það er ekkert mál að redda sér skilríkjum! Ég er t.d. með skilríki hjá kærustu bróðir míns.

Jesús, stelpur sem eru allt niður í 14 ára eru komnar með fölsuð skilríki og komast allstaðar inn. Ekkert mál að breyta skilríkjum nú til dags þar sem flestir skemmtistaðir eru nú ekkert það harðir á þessu. Og þær sem eru ekki með fölsuð skilríki eru með skilríki hjá vinkonu, frænku, systir eða jafnvel kærustu bróðir síns!

Ég er mjög á móti þessu þar sem þar sem ég djamma vil ég ekki sjá einhverjar óþroskaðar gelgjur og smá patta sem eru ennþá í grunnskóla. En stelpurnar eru víst duglegar í því að fela það með allri málningunni sem þær troða framan í sig. Hvernig er heimurinn orðinn?

Hvað gerist ef dyravörður er heppinn og tekur falsað skilríki af stelpu eða strák? Hvað gerist? Ekki neitt! Þau eru bara tekin af viðkomandi og send upp á lögreglustöð þar sem réttur eigandi getur sótt þau. Hvað varð um hegningarlögin fyrir skjalafals og að villa á sér heimildum? Þetta er bara rugl.

Ég er alveg handviss um það að ef lögreglan færi að taka harðar á þessu og ef unglingar myndu vita að þetta væri stór áhætta fyrir þau og að það væru þung viðurlög við þessu, myndi þetta vandamál hverfa. Það er ég alveg viss um.

En af hverju taka dyraverðir og skemmtistaðir ekki harðar á þessu? Ætli það sé ekki vegna þess að því fleiri sem sækja staðinn, því meiri gróði fyrir staðinn, sama hvort það séu grunnskælingar eða ekki. Það væri of mikil vinna fyrir þá að taka skilríkin af viðkomandi, hringja í lögguna og kæra einstaklinginn fyrir skjalafals og fyrir að villa á sér heimildum. En er það ekki bara of mikil vinna fyrir þá? Auk þess að þeir græða ekkert á þessum viðskiptavinum.

En þetta vandamál fer ört stækkandi í samfélaginu og ekki reynir lögreglan að gera neitt í því, né skemmtistaðirnir. Þeir staðir sem taka hart á þessu, krakkarnir eru orðnir svo klárir að þeir eru búnir að leggja nafnið, kennitölu, stjörnumerkið og m.a.s. bankaútibúið á heilann. Gott hjá þeim.

En ég held þetta sé komið ágætt af þessari umræðu. Ég fer nánar út í þetta seinna og gagnrýni þá smástelpur sem eru farnar að mála sig, bæði upp á fegrun og þroska, þ.e. að líta út fyrir að vera eldri en þær eru í raun og veru. En þetta er skemmtileg pæling.

Núna er ég eflaust búinn að pirra geðveikt margar ungar stelpur sem hugsanlega eiga eftir að lesa þetta. Þetta er ekkert persónulegt, þetta er bara staðreynd.

En í kvöld skellti ég mér á MMA æfingu hjá Halla. Ég fór reyndar bara að horfa á en Grétar, Helgi og Halli tóku allavega vel á því. Halli er vinur minn, algjör snillingur, og er með svarta beltið 2. dan í Tae Kwon Do. Don't mess with him. En allavega, hann kenndi okkur ýmis brögð, þ.á.m. nokkra lása í grappling (ground fight) ofl. Þetta var alveg frábært.

Heimasíðan hjá Halla um MMA er hér.

En núna var ég bara að koma heim og er alveg að deyja úr þreytu. Er búinn að fara allt of seint að sofa á hverju kvöldi, þrátt fyrir að ég þurfi alltaf að vakna kl 8 í skólann. Ég ætla að brjóta upp úr vananum í kvöld og fara að sofa fyrir 1.

Segjum þetta ágætt í bili.




Athugasemdir ():