Ísland vs. Pólland
Skrifað föstud. 26. janúar 2007 - 00:00Eins og þið flest vitið sem fylgist eitthvað með, þá er árið 2007 runnið í garð og þá byrjar auðvitað HM og að þessu sinni í handbolta. Ég verð nú að viðurkenna að ég er ekki búinn að fylgjast allt of vel með þessu, en ég er núna búinn að horfa á tvo síðustu leiki, og líkar bara vel!
Á miðvikudag spiluðum við á móti Túnis og unnum þá 36-30, sem er glæsileg frammistaða. Svo sem ekkert að setja út á leikinn nema það að mér fannst við með rosalega slappa vörn í fyrri hálfleik, og var einnig mikið af fljótfærnismistökum. En sem betur fer löguðu þeir þetta í seinni hálfleik, og enduðum við með því að sigra. Þetta var samt helvíti tæpt á tímabili.
En núna í kvöld á fimmtudag spiluðum við á móti Pólverjum, en töpuðum því miður fyrir þeim 35-33. Við vorum rosalega sterkir í fyrri- og seinni hálfleik en eitthvað fór úrskeiðis og annað hvort fór stressið svona með menn eða þá að þeir urðu of sigurvissir, þannig allt fór í vaskinn þarna í lokin.

Þetta eru samt engin endalok fyrir okkur vegna þess að við eigum enn eftir að spila við Slóvena og Þjóðverja. Ég veit ekkert hvernig lið Slóvenar og Þjóðverjar eru með, en ég held með okkar mönnum að sjálfsögðu. Ef við komumst úr milliriðlinum förum við í 8-liða úrslit, sem þýðir bara harðari átök og meiri spennu!
Hvernig fannst ykkur annars leikirnir?
Ef þið viljið fylgjast með þessu og sjá hvað er að gerast, endilega farið þá inn á ibliduogstridu.is og fylgist með gang mála.
En það er svo sem ekkert annað í fréttum en það að ég fór bara í skólann í dag. Þetta er orðið alveg hroðalegt að vera svona einn og yfirgefinn í skólanum. Ég er með 90 og 91 módelum í sumum tímum, þ.á.m. dönsku, sem er hræðilegt! Djöfull er maður orðinn gamall.
En svo hannaði ég þetta logo fyrir MMA síðuna hans Halla...

Ég held nú bara að þetta sé eitt flottasta og best heppnaðasta logo sem ég hef gert á minni ævi.
En segjum þetta ágætt í bili. Vinna um helgina en samt ætla ég að djamma. Kjéllinn skoh!

Athugasemdir (