Atvik í vinnunni í kvöld
Skrifað mánud. 21. nóvember 2005 - 02:01Ég fór að vinna kl 6 og ég lenti á mjög hressum gaur. Ég verð bara að deila þessu með ykkur.
Ég var uppi í vinnu og það kemur strákur með 600 kr. og segir: "Einn winston lights" og ég spyr hann um skilríki. Þá brjálast hann og öskrar: "Ég er með skegg og er tvítugur!". Ég fer að hlæja og segi "So?". Þá hleypur hann út og kemur inn aftur stuttu seinna og hendir skilríkinu í mig. Ég tek það upp og skoða það. Hann var fæddur 84. Ég get nú ekki sagt að þetta hafi verið sérlega líkt honum en ég ákvað að selja honum, þar sem ég hafði enga sönnun um að þetta væri ekki hann. Ég læt hann fá pakkann og þá hendir hann 600 kallinum í mig og þýtur út. Ég öskra á eftir honum: "Já rólegur!" og þá gefur hann mér puttann! Hahaha. Vá hvað hann var svekktur , greyið. Djöfull hló ég mikið af þessu. Hefði hann verið harður í alvöru, hefði hann ráðist á mig eða eitthvað en hann ákvað bara að gefa mér puttann og flýja. Hah, aumingi.
Ég varð bara að deila þessu með ykkur. Alltaf skemmtilegt að lenda í einhverju svona rugli.
Klukkan er samt að ganga 2 og ég á að fara í skólann kl 8. Það sem ég get ekki er að fara að sofa um miðnætti. Ég verð alltaf að vaka til 1-2, jafnvel lengur. Algjört rugl. Ekki skrítið að ég sé alltaf svona drulluþreyttur og þunglyndur allan daginn. Ég verð að fara að taka mig á. Ég er allavega farinn að sofa.
Góða nótt.

Athugasemdir (