Deila á Facebook
« Ísland vs. Pólland | Aðalsíða | Kókisti á versta stigi »

Helgin 26. - 28. janúar
Skrifað mánud. 29. janúar 2007 - 04:15
athugasemdir skrifaðar - toppur / botn
Ætli maður verði ekki að skrifa aðeins um helgina sem var að líða.

Á föstudaginn var ég bara að vinna til 11. Ég mætti aðeins of seint, þar sem ég svaf yfir mig. Ég lagði mig í sófanum eftir skóla og stillti enga vekjaraklukku eða neitt. Hversu gáfulegt er það? Svo vaknaði ég klukkan hálf 5, leit á klukkuna og hugsaði að ég ætti að mæta kl 6. Svo vaknaði ég 10 mínútur í 5 og mundi þá allt í einu að ég ætti að mæta kl 5 en ekki 6 og dreif mig í vinnuna.

Það var bara ágætt í vinnunni. Ég var bara á barnum allt kvöldið og verð nú bara að segja að það var mjög gaman. Ég er hættur að láta þetta mál með Andra hafa áhrif á vinnuna, þar sem ég brenndi mig frekar illa á því um daginn. Við látum eins og ekkert sé í vinnunni og gengur það miklu betur en að vera með einhver leiðindi og sleppa því að tala við hvorn annan.

Eftir vinnu ákvað ég bara að vera edrú. Grétar, Gummi og Gaui bróðir Gumma kíktu á mig upp í vinnu og settumst við niður og spjölluðum saman og hlustuðum á hljómsveitina Signýju. Ég bauð Gumma og Gaua upp á bjór og Grétari upp á Z-up. Ég fékk mér svo bara einn bjór og settist niður með strákunum. Eftir það fórum við bara heim til mín.

Eftir að við vorum komnir heim til mín sátum við bara frammi í sófanum, hlustuðum á tónlist og spjölluðum saman. Jökull kíkti svo yfir. Heitustu umræðurnar þarna um kvöldið snérust út á að Gaui bróðir Gumma var að sannfæra aðallega Grétar um að það væri sælla að gefa en að þiggja og það væri ekki sjálfsagður hlutur að Grétar fengi bara alltaf sígarettur hjá mér þegar honum hentaði. Gaui hafði náttúrulega alveg 100% rétt fyrir sér og kom með mjög sterka og góða punkta.

Svo seinna um kvöldið vantaði strákunum far niður í bæ og bauðst ég til þess að skutla þeim niður í bæ og kíkja með þeim inn.

Það var nú ekki það mikið fólk niðri í bæ og var m.a.s. laust stæði beint fyrir framan Sólon, þannig ég lagði bara þar. En ég verð nú bara að viðurkenna að ég hef sjaldan skemmt mér jafn vel edrú og þarna um kvöldið. Ég var samt mest ánægður með DJ'inn sem var þarna um kvöldið, þar sem hann spilaði tónlist frábrugðna því sem maður heyrir vanalega þarna. Hann spilaði helling af nýjum remixum sem ég hef aldrei heyrt áður og sem ég var að fíla í botn. Ég án djóks hef aldrei séð svona marga í einu á dansgólfinu á Sólon á föstudegi og einmitt þarna um kvöldið. Þó það væru kannski ekki margir á Sólon þarna um kvöldið þá voru flestir á dansgólfinu.

Eftir kvöldið voru Gummi og Gaui farnir þannig ég skutlaði bara Grétari, Helga og Jónasi heim. Svo fór ég bara sjálfur heim að sofa.

Á laugardaginn vaknaði ég svo ógeðslega seint og skellti mér bara strax í það að taka mig til fyrir vinnuna. Það var fínt í vinnunni. Horfði á leikinn á milli Íslands og Slóveníu og unnum við 32-31, sem var mjög tæpt! En það var nú bara ekkert að gera í vinnunni fyrir utan einhvern 17 manna hóp sem kom þarna og þá var svolítið mikið að gera. En svo datt allt niður aftur og ég fékk að fara heim kl hálf 11. En Grétar var þá kominn þarna og settumst við aðeins niður og slöppuðum af.

Svo fór ég bara heim í sturtu og Grétar fór að ná í Helga. Svo komu þeir til mín og svo Jökull. Gummi missti ömmu sína þannig hann sleppti því að djamma þetta kvöld og skil ég það fullkomlega. Ég vil einnig votta honum og hans nánustu dýpstu samúð mína.

En svo seinna um kvöldið hringdi Hulda fyrrverandi í mig og spurði mig hvað ég væri að gera og auðvitað bauð ég henni í partý. Þá komu hún, Erla, Valdís og Gísli bróðir Valdísar til mín. Það var helvíti gaman þó ég hafi orðið allt of fullur og gat varla tekið þátt í því að skemmta mér vegna hversu fullur ég var. En þetta var frábært. Gaman að sjá ykkur báðar, Hulda og Erla.

En eftir það skelltum við okkur í bæinn. Grétar var edrú og keyrði en Jökull ákvað bara að fara heim. Svo þegar við komum niður í bæ þurftum við að bíða heillengi í VIP röðinni þangað til að við fengum að fara inn bakdyramegin. Það er sko flottast og fær bara úrvals fólk að fara þar inn. Við hittum Mumma, Hallla, ofl. fara þar inn líka, enda eins og ég sagði fær bara aðal fólkið inngöngu bakdyramegin.

En ég hef aldrei upplifað svona steikt djamm. Ég vissi varla hvað ég hét ég var svo fullur.


En við töpuðum fyrir Þjóðverjum á sunnudag var staðan 33-28. Ég ætlaði að vakna og horfa á leikinn en ég vaknaði því miður ekki. Ég held við séum komin í 8-liða úrslit þó ég sé ekki alveg klár á því. Ég held við höfum komist í 8-liða úrslitin eftir Slóveníu leikinn.

En ég var að spá varðandi Superman partýið á Pravda á laugardaginn 27. janúar. Ég var að skoða myndir þaðan og sé bara einhverjar stelpur berbrjósta þar. Svo sagði einhver mér að þetta væri keppni að sú sem myndi heilla Superman gaurinn mest myndi vinna. Átti gaurinn afmæli eða hvað? Hvert heldur partý í samstarfi við skemmtistað og heldur svo keppni um hver nær að heilla mann best? Ég skil þetta ekki.

En ég ætla að segja þetta ágætt í bili.




Athugasemdir ():