Kókisti á versta stigi
Skrifað þriðjud. 30. janúar 2007 - 01:04Það er alveg pínlegt að þurfa að hugsa til þess að ég geti ekki keypt mér meira kók þangað til ég fæ útborgað. Þetta er ein versta fíkn sem ég hef þurft að berjast við - fyrir utan reykingarnar. Það bara er svo gott að slappa af í tölvunni og sötra kók.
Hingað til hef ég keypt mér minnst 2 dósir í skólanum og svo kaupi ég alltaf 2 dósir á leiðinni heim. Ég drekk þær reyndar ekki fyrr en eftir kvöldmat og alveg til 12 um miðnætti. En ég verð að drekka kók! Það er bara ekkert flóknara.
Fyrir nokkrum árum var ég samt SLÆMUR og þá hefði ég eflaust þurft meðferð. Ég drakk í þá daga 2-4 lítra af kóki/pepsi á dag. Ég var eitt sinn kókisti á versta stigi en þegar pabbi bannaði mér að drekka kók fór ég bara yfir í pepsi'ið. Hahaha, svindlari.

En það er ekki að auðvelda mér lífið að ég fái ekki útborgað fyrr en annan virka dag eftir mánaðarmót. Ég ætti ss. að fá útborgað 2. febrúar en það er aldrei að vita nema þeir borgi ekki út á föstudögum þannig ég gæti í átt í hættu á að fá útborgað 5. febrúar. Ég gæti nú alveg lifað það af þar sem ég er hvort sem er að vinna alla helgina. Ekkert djamm næstu helgi.
En dagurinn í dag var gjörsamlega ömurlegur. Þreytan er búin að vera að reyna að drepa mig í allan dag þar sem ég fór að sofa kl 6 í gærmorgun.
Ég gerði bókstaflega ekki neitt í dag. Ég sat í tölvunni í allan dag eftir skóla og gerði það sem ég geri vanalega... ekki neitt. Mig langaði nú alveg að kíkja með vinunum í bíó, á kaffihús, í pool eða eitthvað en það á enginn pening svona í lok mánaðarins. Ætli maður verði ekki bara að sætta sig við það.
Mér var samt boðið að kíkja á MMA æfingu í kvöld en ég fór ekki. Ég var bara of þreyttur til þess að geta skít. Ég stefni samt á það að mæta á miðvikudaginn. Maður verður nú að byrja að taka sig á fyrir sumarið. Spurning bara hvort maður fái þetta metið inn í skólaleikfimina.
En núna ætla ég að skella mér út í sígó og svo bara að sofa. Skóli eldsnemma á morgun. Ekki frá því að það sé próf í Landafræði á morgun. Annað hvort núna á morgun eða á miðvikudaginn eins og 2 önnur próf; Saga og Snorra-Edda.
Væri ekki verra ef dönskukennarinn minn væri veikur aftur á morgun eins og hann var í dag. Típískt samt að hann sé veikur og að ég taki ekki eftir því fyrr en ég kem í skólann. That's just my luck!
Jæja... segjum þetta ágætt.

Ég á leiðinni í skólann með besta vini mínum, kókinu

Athugasemdir (